Morgunblaðið - 09.05.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2018
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Frumvarp félagsmálaráðherra um
húsnæðismál og hlutverk Íbúðalána-
sjóðs liggur undir miklu ámæli for-
stjóra nokkurra ríkisstofnana vegna
ákvæðis sem heimilar sjóðnum að
krefja stjórnvöld og aðrar stofnanir
um margvísleg gögn og upplýsingar
um efnahag heimila, tekjur, atvinnu-
þátttöku, örorku o.fl.
,,Ríkisskattstjóri telur ótækt að
frumvarpið verði samþykkt í
óbreyttri mynd,“ segir í umsögn
Ríkisskattastjóra um frumvarpið til
velferðarnefndar Alþingis.
Hagstofustjóri segir m.a. í sinni
umsögn: ,,Hagstofa Íslands gerir al-
varlegar athugasemdir við ákvæði 2.
mgr. 4. greinar frumvarpsins, þar
sem Íbúðalánasjóði er veitt heimild
til að krefja Hagstofu Íslands um
upplýsingar. Gengur það ákvæði
þvert á lög um Hagstofu Íslands og
opinbera hagskýrslugerð og er í and-
stöðu við þær alþjóðlegu skuldbind-
ingar sem íslensk stjórnvöld hafa
undirgengist.“
Bendir hagstofustjóri á að skv.
lögum ríki þagnarskylda um allar
upplýsingar sem Hagstofan safnar
til hagskýrslugerðar. Þær séu trún-
aðargögn og óheimilt skv. lögum að
afhenda þær öðrum stjórnvöldum.
Hagstofustjóri segir þessi ákvæði
frumvarpsins ganga í berhögg við
lög um Hagstofuna og opinbera hag-
skýrslugerð auk þess að ganga gegn
reglugerð Evrópusambandsins um
evrópska hagskýrslugerð og alþjóð-
legum skuldbindingum um hag-
skýrslugerð.
,,Loks má benda á að Íbúðalána-
sjóður er markaðsaðili sem starfar á
fjármálamarkaði og má draga í efa
að það standist að greiningardeild
sjóðsins sé gefinn aðgangur að upp-
lýsingum umfram aðra greiningar-
aðila á fjármálamarkaði og spurning
hvort ákvæði samkeppnislaga komi
til álita,“ segir hagstofustjóri.
Á svig við góða stjórnsýslu
Fleiri gera athugasemdir við þetta
vegna stöðu ÍLS á markaði, m.a.
Seðlabanki Íslands sem segir að ekki
sé víst að svo víðtækar heimildir til
gagnaöflunar samræmist hlutverki
sjóðsins sem lánveitanda á al-
mennum lánamarkaði. ,,Búi sjóður-
inn yfir verðmótandi upplýsingum
skarast hlutverk hans sem grein-
anda og lánveitanda.“
Forstjóri Tryggingastofnuanr
segir þagnarskyldu ríkja um söfnun
þeirra upplýsinga er stofnunin aflar
til að geta sinnt lögboðnu hlutverki
sínu. ,,Stofnunin hefur yfir að ráða
miklu magni persónulegra upplýs-
inga sem oft á tíðum eru afar við-
kvæmar. Eðli máls samkvæmt er af-
ar brýnt að fara varlega í að veita
almennar heimildir til miðlunar
þeirra. Það er því mat okkar að um-
rætt ákvæði um upplýsingaöflun og
samkeyrslu þessara gagna gangi á
svig við góða stjórnsýslu og persónu-
vernd.“
Unnið er að sátt
Ríkisskattstjóri telur að þær
heimildir sem veittar yrðu Íbúða-
lánasjóði samkvæmt orðalagi um-
rædds ákvæðis ,,séu langt umfram
tilefni, hvort heldur litið sé til hlut-
verks sjóðsins eða þeirrar víðtæku
gagnaöflunar sem lagt er upp með í
hans þágu.“ Og það veiti ÍLS að til-
efnislausu mjög víðtækar heimildir
til upplýsingaöflunar frá öllum
stjórnvöldum og stofnunum án þess
að tekið sé tillit til þagnarskyldu
þeirra sem slíkri fyrirspurn yrði
beint að.
Í nýrri umsögn ÍLS er sérstaklega
tekið fram að sjóðurinn muni ein-
göngu óska eftir ópersónugreinan-
legum tölfræðiupplýsingum. ,,Íbúða-
lánasjóður leggur ríka áherslu á að
sátt náist um gagnaöflunarheimild
sjóðsins og er nú unnið að því af
hálfu sjóðsins og velferðarráðuneyt-
is að móta tillögu að nýju orðalagi
ákvæðisins og verður sú vinna í sam-
ráði við þær stofnanir sem tilgreind-
ar eru í ákvæðinu,“ segir ÍLS.
Þjóðskrá leggur til í umsögn sinni
að ÍLS verði gert að semja við stofn-
anir ríkisins á jafnréttisgrundvelli
um gögn og upplýsingar. Eins og
ákvæðið er orðað séu ÍLS lítil tak-
mörk sett um aðgang að upplýsing-
um og geti sjóðurinn á grundvelli
þess krafist umfangsmikilla gagna
með ófyrirsjáanlegum auknum verk-
efnum fyrir Þjóðskrá sem geti leitt
til þjónustuskerðingar gagnvart öðr-
um viðskiptavinum stofnunarinnar,
nema að hún fái annaðhvort sam-
svarandi hækkað ríkisframlag eða
heimildir til hækkana í gjaldskrá.
„Ótækt“ ákvæði og „þvert á lög“
Hagstofustjóri, Ríkisskattstjóri, forstjóri Tryggingastofnunar, Þjóðskrá og fleiri gagnrýna ákvæði
í frumvarpi félagsmálaráðherra um Íbúðalánasjóð Lítil takmörk sett um aðgang að upplýsingum
Morgunblaðið/Ómar
Hús Lagt er til að ÍLS fái að kalla eftir gögnum um húsnæðismál sem varða efnahag, eignir, atvinnuþátttöku o.fl.
Nýtt deiliskipulag fyrir svæðið um-
hverfis Hlemm í Reykjavík á að
liggja fyrir í haust. Tvær arkitekta-
stofur, Mandaworks og DLD, voru
valdar til að vinna að verkefninu út
frá fyrirhuguðu deiliskipulagi.
„Megináherslur við hönnunina voru
að skapa heildstætt og líflegt borg-
arrými umhverfis Hlemm. Áhersla
var einnig lögð á sögulegar skírskot-
anir þar sem Rauðáin, klyfjahestar
og aðrar sögulegar minjar sem
tengjast staðnum eru dregnar fram.
Torgið verður kjarni Austurbæjar-
ins og enn á ný inngangurinn í
Miðbæinn,“ segir í frétt frá Reykja-
víkurborg.
Í umsögn matsnefndar segir: „Til-
laga Mandaworks er sannfærandi og
djörf. Hún grípur andann á Hlemmi
sem er nútímalegt borgarumhverfi. Í
tillögunni er mikill leikur og sögu-
legar tengingar vel útfærðar með
Rauðaránni sem læðist upp í gegn-
um gangstéttina sem gufa. … Það er
mikill kostur að raða hýsunum við
norðurenda torgsins sem myndi
styrkja götumynd Hverfisgötu. Til-
lagan ætti að gefa fólki ástæðu til að
staldra við á svæðinu. … Tillaga
DLD er hlý, nærgætin og umbreytir
útliti svæðisins. Hún er sannfærandi
og lífleg og styrkir svæðið fyrir við-
burði …“
Grípa andann á Hlemmi
Tvær arkitektastofur vinna saman að nýju deiliskipulagi fyrir Hlemmssvæðið
Áhersla lögð á að skapa heildstætt og líflegt borgarrými á svæðinu
Teikning/Mandaworks
Hlemmur Unnið er að hugmyndum að nýju skipulagi á svæðinu umhverfis.
Þrír sóttu um stöðu rektors
Menntaskólans við Hamrahlíð og
átta sóttu um stöðu skólameistara
Fjölbrautaskólans við Ármúla. Um-
sóknarfrestur um bæði embættin
rann út þann 30. apríl.
Þau sem sóttu um í MH eru Hulda
Birna Baldursdóttir framkvæmda-
stjóri, Ólafur H. Johnson, fv. skóla-
stjóri og Steinn Jóhannsson, settur
skólameistari við skólann.
Um stöðu skólameistara FÁ sóttu
Elvar Jónsson skólameistari, Hulda
Birna Baldursdóttir framkvæmda-
stjóri, Kolbrún Kolbeinsdóttir
skólastjóri, Kristrún Birgisdóttir
sérfræðingur, Magnús Ingvason að-
stoðarskólameistari, Ólafur H.
Johnson, fv. skólastjóri og Þórhall-
ur Halldórsson framhaldsskóla-
kennari. Mennta- og menningar-
málaráðherra skipar í embættin frá
og með 1. ágúst nk.
Átta vilja í FÁ og þrír
sækja um í MH
Eignir íbúðalánasjóðs, utan lána-
safns, námu í árslok 2017 um
254,5 milljörðum kr. og höfðu
aukist um tæpa 58 milljarða frá
fyrra ári. Þetta kemur fram í um-
fjöllun Fjármálaeftirlitsins um
stjórnarfrumvarpið um hlutverk
Íbúðalánasjóðs o.fl. Segir FME að
þessi aukning eigna utan lána-
safns sjóðsins skýrist af samn-
ingsbundnum greiðslum af út-
lánum og auknum uppgreiðslum
í lánasafninu.
Hreyfingar ÍLS kunna að
hafa áhrif á markaðinn
„Til að setja þessar eignir utan
lánasafns í samhengi bendir Fjár-
málaeftirlitið á að ef um væri að
ræða eignasafn lífeyrissjóðs væri
um fimmta stærsta lífeyrissjóð
landsins að ræða, á eftir LSR, Líf-
eyrissjóði verslunarmanna, Gildi
og Birtu. Ef um væri að ræða
eignasafn í stýringu hjá rekstr-
arfélagi verðbréfasjóða væri um-
rætt félag næstumsvifamesta
rekstrarfélag landsins, stærra en
Íslandssjóðir hf. og Landsbréf hf.
en nokkru minna en Stefnir hf. Er
nú svo komið að hreyfingar
Íbúðalánasjóðs til dæmis á
skuldabréfamarkaði kunna að
hafa áhrif á markaðinn í heild.“
Nema 254
milljörðum
MIKLAR OG VAXANDI EIGN-
IR ÍLS UTAN LÁNASAFNS