Morgunblaðið - 09.05.2018, Síða 13
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Notalegt Auður skoðar nýtt Andrésblað með syni sínum, Leifi Ottó Þórarinssyni, sem nýlega fékk áhuga á Andrési.
reyna að stauta sig í gegnum dönsk-
una, en ég skildi auðvitað GISP! og
aðrar upphrópanir.“
Auður segist hafa verið orðin
stálpuð þegar Andrésblöðin fóru að
koma út á íslensku. „Þá hélt Ari
áfram að kaupa blöðin og ég naut
góðs af því, las þau á íslensku hjá
honum. Þegar ég var um þrítugt þá
bankaði Ari upp á hjá mér og sagði
mér að koma út og hjálpa honum að
bera nokkra kassa úr bílnum inn til
mín. Þar var þá komið allt Andrés-
blaðasafnið hans. Hann gaf mér það,
og líka allar Tinnabækurnar. Mér
þótti vænt um það,“ segir Auður sem
flutti safnið með sér til Berlínar þeg-
ar hún flutti þangað búferlum fyrir
nokkrum árum. „Þetta eru víðförul
Andrésblöð, nú er þetta forláta safn
í gámi í skipi einhversstaðar á Atl-
antshafinu, á leið aftur til Íslands,
því ég er flutt heim.“
Hann er svo frekur og vitlaus
Auðir segist vera þakklát fyrir
að Andrésblöðin hafi orðið til þess að
hún á sínum tíma þjösnaði sér í
gegnum dönskuna sem talblöðr-
urnar geymdu. „Þetta snýst um að
þora að reyna að lesa eitthvað sem
maður skilur ekki. Þegar ég svo
flutti um þrítugt til Kaupmanna-
hafnar þá gerði ég þetta sama með
dagblöðin þar, ég þorði að reyna að
lesa og skilja. Að lesa danska fjöl-
miðla opnaði nýjan heim fyrir mér,
rétt eins og Andrés Önd opnaði
heima fyrir mér barninu á sínum
tíma. Dönsku fjölmiðlarnir voru í
þeim skilningi mín fullorðins Andr-
ésblöð.“
Auður bjó í þrjú ár í Kaup-
mannahöfn og segir fyrrverandi
mann sinn sem er mikill teikni-
myndasöguáhugamaður og ólst upp
í Danmörku, hafa ráðlagt sér að lesa
teiknimyndasögur á dönsku þegar
þau voru nýflutt til Danmerkur.
„Til að ég næði tökum á talmáli
hins daglega lífs, myndasögur henta
vel til þess, sem og slúðurblöð. Ég
gerði samkomulag við mann sem var
með fornbókabúð um að ég fengi að
vinna hjá honum endurgjaldslaust
gegn því að lesa teiknimyndasögur
og Andrésblöð. Þetta var því eins-
konar endurkoma fyrir mig að
myndasögulestri. Ég man að for-
sætisráðherra Danmerkur á þessum
tíma hét Anders Fogh, og ég komst
ekki hjá því að tengja hann alltaf við
Andrés Önd,“ segir Auður og hlær.
„Sama átti við um danska prinsinn
Jóakim, það vakti hugrenninga-
tengsl við Jóakim aðalönd.“
Þegar Auður er spurð að því
hver í persónugalleríi Andrésblað-
anna hafi höfðað mest til hennar sem
barns, segir hún að Mikki mús og
Fedtmule hafi verið þeir sem hún
var langhrifnust af. „Mér fannst þeir
viðkunnanlegri persónur en Andrés
sjálfur, hann er svo frekur og vit-
laus. En Rip, Rap og Rup voru auð-
vitað líka mínir menn, frábærir
grænjaxlar. Aftur á móti mundi ég
ekki nenna að vera lengi á eyðieyju í
lifanda lífi með Jóakim aðalönd eða
Hábeini heppna.“
Líka jólasveinninn og grýla
Auður segir að Andrés Önd og
allt hans slekti hafi örugglega haft
mótandi áhrif á hana sem persónu.
„Rétt eins og allt sem verður á vegi
manns í æsku, líka jólasveinninn og
Grýla, mér fannst þetta allt jafn
raunverulegt og hundurinn minn. Í
barnshuganum er allt bráðlifandi.
Og Andrés fór víða með mér, ég var
oft með Andrésblöðin hangandi aft-
an í mér, rétt eins og krakkar gera,
þau dröslast með dót með sér. Stjúp-
dóttir mín var alltaf með Andrésblöð
í töskunni sinni þegar hún var lítil,
en hún var svo heppin að mamma
hennar vann á bókasafni og hún var
því alltaf að stela Andrésblöðum.“
Sonur Auðar er sjö ára og hún
segir hann vera með nývaknaðan
áhuga á Andrési. „Hann fékk syrpu
um daginn og fær auðvitað að
sökkva sér í blöðin mín og Tinna-
bækurnar þegar safnið mitt kemur
frá Berlín. Ég geri ráð fyrir að hann
eigi auðvelt með að klóra sig fram úr
dönskunni, því hann kann þýsku, en
mér hefur alltaf fundist danska
liggja á milli íslensku og þýsku.
Teiknimyndasögur almennt eru til-
valdar til að auka lestrarkunnáttu,
því krakkar verða svo spenntir að
vita hvað stendur í talblöðrunum við
myndirnar, hvað persónurnar eru að
segja. Þetta er líka svo mátulega lít-
ið sem stendur í hverri talblöðru, svo
þau ráða vel við það.“
Öndin styrkti Laxnessútgáfu
Auður hitti í gærmorgun Kjart-
an Örn Ólafsson, son Ólafs Ragnars-
sonar sem stofnaði bókaforlagið
Vöku Helgafell, og komst þá að
óvæntum staðreyndum um sinn
gamla vin Andrés Önd. Að þræðir
hans liggja dýpra í íslenskri menn-
ingu en við gerum okkur grein fyrir.
„Danir reyndu að gefa út Andrés-
blöð á íslensku, og Ekman útgáfan
danska gerði það í þrjú ár. En þýð-
ingin var svo slæm að salan var fyrir
neðan allar hellur. Ólafur var á þess-
um tíma að koma unga útgáfufyrir-
tækinu Vöku Helgafelli á laggirnar
og þegar hann sér þessar lélegu þýð-
ingar finnst honum það ekki Íslend-
ingum bjóðandi. Svo hann hendist í
einum grænum hvelli til Danmerkur
á spariskónum, á fund hjá Ekman
útgáfunni. Þar landaði hann útgáfu-
rétti að Andrési Önd á íslensku, og
fékk afbragðs þýðanda í verkið,
Þránd Thoroddsen. Vaka Helgafell
var ungt fyrirtæki á þessum tíma
sem fékk enga fyrirgreiðslu og var
að ströggla. En Andrés Önd varð
lífssprautan fyrir Vöku Helgafell,
því blöðin seldust sem heitar lumm-
ur þegar þau koma í þessum flottu
þýðingum Þrándar. Fyrir vikið hafði
fyrirtækið burði til að gefa annað út,
en Helgafell var með útgáfuréttinn á
öllum bókunum hans afa, Halldórs
Laxness. Þannig má segja að Andr-
és Önd hafi styrkt útgáfuna á bókum
Laxness, og haft áhrif á menningar-
líf okkar Íslendinga. Við Íslendingar
fengum aðgang að Laxness í hinum
fjölbreyttustu útgáfum Vöku Helga-
fells. Þessi útgáfa á Laxnessverkum
blómstraði með öðrum orðum fyrir
tilstuðlan Andrésar Andar. Andrés
Önd fjármagnaði Laxness, hversu
flott er það?“
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2018
Sæbjúgu innihalda mikið kollagen og yfir 50
tegundir af næringarefnum sem hafa öll mjög
jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi
mannslíkamans
ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLA: Framleiðandi sæbjúgna er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fást á arcticstar.is
.
Arctic Star sæbjúgnahylki fást í flestum apótekum og heilsubúðum og í Hagkaupum.
Arctic Star Sæbjúgnahylki
Sæbjúgu
eru þekkt fyrir:
• Hátt prótíninnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið og mótstöðu
líkamans gegn ýmsum sjúkdómum
• Að auka blóðflæði sem minnkar líkur á blóðtappa
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla
að myndun húðpróteins
og insúlíns
Ragnars Inga Aðalsteinssonar, Jörðin
hún er móðir okkar. Titill lagsins er
einmitt þema mótsins í ár: Förum vel
með jörðina okkar. Í þessu sameig-
inlega lokaverki gengur Eydís Franz-
dóttir og þjóðlagahópurinn hennar
Regnboginn til liðs við verkefnið.
Um aðalskipulag mótsins sér stjórn
Tónmenntakennarafélags Íslands, en
hana skipa Þórdís Sævarsdóttir, Unn-
ur Þorgeirsdóttir, Kolbrún Hulda
Tryggvadóttir, Ólöf Björg Guðmunds-
dóttir og Rósa Jóhannesdóttir. Rósa
er stjórnandi stúlknakórsins Graduale
Futuri og eru stelpurnar spenntar að
taka þátt. Rósa hefur tekið tvisvar
þátt í Norbusang erlendis, í Danmörku
og í Noregi. Hún segir þetta vera ein-
staklega jákvæð upplifun fyrir krakk-
ana og vítamínsprauta fyrir söngv-
arana ungu.
Á opnunarkvöldinu í Myrinni
íþróttahúsi í Garðabæ í kvöld, er öll-
um þátttakendum boðið upp í dans,
og mun formaður Þjóðdansafélags Ís-
lands leiða dansinn en Rósa leika með
á fiðlu. Nánari upplýsingar á heima-
síðu kóramótsins: norbusang.org
Rósa Hún sér um að kenna og leiða
stjórn á sameiginlegu íslensku verki
eftir Báru Grímsdóttur.
Málþingið „Andrés Önd á Íslandi – Danmörk
sem gluggi Íslands að umheiminum“ verður
haldið í Veröld - húsi Vigdísar, í dag miðviku-
dag 9. maí kl. 15-17. Á þinginu verða flutt þrjú
erindi:
Davíð Þór Jónsson guðfræðingur og
prestur: „Gumle, gnaske“... Andabær í vitund
og samfélagi hafnfirskra barna.
Mag. art. Søren Vinterberg menningar-
blaðamaður á Politiken: ’Oh skænk mig en
grav...’ - verdenskulturhistorie i stribevis.
Auður Jónsdóttir rithöfundur: Andabær-
inn Kaupmannahöfn.
Að erindum loknum verða umræður.
Námskeið í teiknimyndagerð fyrir börn og unglinga verða haldin í
tengslum við málþingið, á morgun fimmtudag 10. maí, í Veröld - húsi Vig-
dísar, undir yfirskriftinni: Lærðu að teikna Andrés Önd & félaga!
Hinn þekkti danski teiknari Flemming Andersen stendur fyrir teikni-
myndaverkstæðinu og mun hann segja þátttakendum frá helstu einkenn-
um teiknimynda og leiðbeina um hvernig hægt er að teikna þær á einfald-
an og skemmtilegan hátt. Námskeiðin á teiknimyndaverkstæðinu verða
aldursskipt og klukkustundarlöng: Námskeið fyrir 6-9 ára hefjast kl. 10
og 11, námskeið fyrir 10 -14 ára hefjast kl. 13 og 14, og fyrir 10 ára og eldri
kl. 15. Skráning á námskeiðin fer fram á Tix.is, undir heitinu: Lærðu að
teikna Andrés Önd.
Andrés Önd á Íslandi
MÁLÞING OG TEIKNIMYNDAVERKSTÆÐI