Morgunblaðið - 09.05.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2018
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Sterkir í stálinu
Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn
Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar
Svört- og ryðfrí rör og fittings
Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur
POM öxlar • PE plötur
Lokar af ýmsum gerðum
Opið virka daga kl. 8-17
Skútuvogi 4, Rvk
Rauðhellu 2, Hafnarfirði
Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is
9. maí 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 102.51 102.99 102.75
Sterlingspund 138.56 139.24 138.9
Kanadadalur 78.92 79.38 79.15
Dönsk króna 16.329 16.425 16.377
Norsk króna 12.639 12.713 12.676
Sænsk króna 11.625 11.693 11.659
Svissn. franki 102.16 102.74 102.45
Japanskt jen 0.9405 0.9461 0.9433
SDR 146.17 147.05 146.61
Evra 121.66 122.34 122.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 147.9687
Hrávöruverð
Gull 1309.35 ($/únsa)
Ál 2315.0 ($/tonn) LME
Hráolía 75.0 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Hagnaður Regins nam 1.460 milljónum króna á fyrsta árs-
fjórðungi, en til samanburðar var 620 milljóna króna hagnaður
á sama fjórðungi í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað,
matsbreytingar og afskriftir, EBITDA, var 1.173 milljónir króna
og reyndist 15% hærri en á sama tímabili 2017.
Matsbreyting fjárfestingareigna nam 1.509 milljónum króna
á fjórðungnum en hún var 331 milljón króna fyrir ári. Bókfært
virði fjárfestingareigna var 101 milljarður króna í lok mars, eig-
infjárhlutfall var 35% og skuldsetning sem hlutfall af fjárfest-
ingareignum var 59%. Fjöldi fasteigna var 117, þeirra á meðal
Smáralind, og var heildarfermetrafjöldi þeirra um 325 þúsund.
Hagnaður Regins 1,5 milljarðar á fyrsta fjórðungi
Helgi S.
Gunnarsson
STUTT
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Reykjavíkurborg mun á næstunni
breyta öllum skástæðum við Lauga-
veg milli Barónsstígs og Frakkastígs
í samsíða stæði. Markmiðið er að
auka rými fyrir gangandi vegfarend-
ur.
Þetta kemur fram í bréfi sam-
göngustjóra og borgarhönnunar til
íbúa og verslunareigenda í götunni.
Vísað er til umferðartalningar við
gatnamót Laugavegar og Frakka-
stígs í fyrra. Samkvæmt henni hafi
10.747 farið gangandi eða hjólandi
yfir gatnamótin en 2.202 ökutæki.
„Gangandi og hjólandi voru því 83%
vegfarenda um áðurnefnd gatnamót
á tímabilinu en 17% voru akandi,“
segir í bréfinu.
Vekur athygli að reiknað er með
einum farþega í ökutæki.
Samkvæmt talningu borgarinnar
fækkar bílastæðunum við þessa að-
gerð úr 29 í 24 á þessum kafla. Það
samsvarar 17% fækkun. Gert er ráð
fyrir að breytingarnar verði fram-
kvæmdar í síðari hluta maí.
Fleiri slík áform eru í bígerð. Til
dæmis á að loka tugum bílastæða
norðan við Hótel Miðgarð á Hlemmi
og þrengja efri hluta Laugavegar frá
Katrínartúni að Kringlumýrarbraut.
Eru að gefast upp á borginni
Sigurður G. Steinþórsson hefur
verið með verslunina Gull & silfur á
Laugavegi 52 í um hálfa öld. Hann
segir þessa breytingu vera kornið
sem fylli mælinn. Núverandi meiri-
hluti í borginni hafi markvisst fækk-
að bílastæðum á svæðinu. Afleiðing-
in sé sú að hefðbundnar verslanir
eigi mjög undir högg að sækja. Þá sé
ómarktækt að vísa til umferðartaln-
ingar að sumri til þegar þrengt er að
umferð neðar á Laugavegi.
„Menn eru að gefast upp á borgar-
yfirvöldum og stefnu þeirra í um-
ferðar- og aðgengismálum. Fólk
kemst ekki til okkar. Þetta er brjál-
æði. Menn skilja ekki að án versl-
unar er engin miðborg. Borgaryfir-
völd gera allt til að útiloka að fólkið
geti átt viðskipti í miðborginni. Að-
gengi er lítið sem ekkert. Fyrir vikið
segist fólk ekki nenna að fara niður í
miðbæ. Það fái ekki bílastæði,“ segir
Sigurður um áhrif þessarar stefnu.
Óraunhæft fyrir eldra fólk
Sigurður telur ekki raunhæft að
bjóða eldra fólki að þurfa að ganga
langar leiðir frá bílastæðahúsi að
vetri í snjó og hálku. Án erlendra við-
skiptavina væri verslunin að deyja.
Borgin hafi ekkert samráð við hags-
munaaðila vegna breytinganna.
Gunnar Guðjónsson, eigandi gler-
augnaverslunarinnar Profil-Optik á
Laugavegi og varaformaður Mið-
bæjarfélagsins, tekur í sama streng.
Hefur þróast til verri vegar
Gunnar rifjar upp að kaupmenn í
götunni hafi á sínum tíma farið fram
á að umrædd stæði yrðu skástæði.
Það hafi þeir gert til að greiða fyrir
aðgengi að verslunum með því að
fjölga bílastæðum.
„Þetta skiptir verulegu máli. Hlut-
irnir hafa síðan þróast til verri veg-
ar. Stöðumælagjöld hafa hækkað
mikið og bílastæðin eru orðin alltof
fá. Borgin hefur tekið um 50 bíla-
stæði í burtu á Frakkastíg og Hverf-
isgötu. Svo á að fækka þeim enn
frekar,“ segir Gunnar og rifjar upp
fyrri tilmæli borgarinnar vegna lok-
unar götunnar. Mælst hafi verið til
þess að fólk sem vinnur í götunni
notaði ekki stæðin.
Heiða Lára Aðalsteinsdóttir, for-
maður Miðbæjarfélagsins, segir
sumarlokanir á hluta Skólavörðu-
stígs og Laugavegar fela í sér veru-
lega fækkun bílastæða við göturnar
stóran hluta ársins. Slíkar lokanir
færist í vöxt, auk þess sem sumar-
lokun hafi verið lengd. Nú sé hún frá
1. maí til 1. október.
Boða fækkun bíla-
stæða á Laugavegi
Morgunblaðið/Baldur
Við Laugaveg 77 Þessi skástæði víkja á næstu vikum fyrir samsíða stæðum.
Hundruð hótelgesta
munu bætast við
» Unnið er að uppbyggingu
hótela á Laugavegi 55 og
Laugavegi 95-99 en þar verða
alls 150 herbergi. Þá er t.d.
verið að innrétta gististað á
Laugavegi 71, ásamt fjölda
annarra áforma um gististaði.
» Að óbreyttu mun hótel-
gestum við götuna því fjölga á
næstu misserum. Þá eru á
annað hundrað íbúðir að koma
á markað við Hverfisgötuna.
Verslunareigendur gagnrýna áform Reykjavíkurborgar
Hagnaður TM var 289 milljónir króna
á fyrsta ársfjórðungi, en til saman-
burðar var hagnaður félagsins 966
milljónir króna í sama fjórðungi í
fyrra.
Samsett hlutfall TM á fyrsta árs-
fjórðungi í ár var 109,8%, samanborið
við 106,5% árið 2017. Í rekstrarspá fé-
lagsins hafði verið gert ráð fyrir 106%
samsettu hlutfalli á tímabilinu.
„Fyrsti ársfjórðungur reyndist
óvenju tjónaþungur sem skýrir verri
afkomu af vátryggingastarfsemi en
spár félagsins gerðu ráð fyrir,“ segir
Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, í
afkomutilkynningu til Kauphallar.
„Þar munar mest um þrjú nokkuð
stór tjón í skipa- og eignatryggingum
sem urðu á tímabilinu.“
Eigin iðgjöld námu 3,8 milljörðum
króna og jukust um 9%. Á sama tíma
jukust eigin tjón um 15% og námu 3,3
milljörðum króna. Framlegð af vá-
tryggingastarfsemi var neikvæð um
371 milljón króna.
Fjárfestingatekjur námu 738 millj-
ónum króna á fyrsta ársfjórðungi sem
jafngildir 2,6% ávöxtun. Í afkomutil-
kynningunni kemur fram að fjárfest-
ingatekjur á fyrsta ársfjórðungi hafi
verið talsvert umfram spá félagsins,
sem gerði ráð fyrir að tekjurnar
myndu nema 419 milljónum króna.
Góð afkoma af fjárfestingarstarf-
semi skýrist að hluta til af tekjum af
óskráðum hlutabréfum sem hafði ver-
ið gert ráð fyrir á öðrum ársfjórðungi
í afkomuspá félagsins. Þar af leiðandi
hefur TM lækkað spá um fjárfest-
ingatekjur á öðrum ársfjórðungi um
210 milljónir króna, en hins vegar
hækkað spána fyrir árið í heild um
rúmar 100 milljónir króna.
TM gerir ráð fyrir að afkoma vá-
trygginga verði í járnum á öðrum árs-
fjórðungi, þar sem stór tjón, þar á
meðal stórbruni í Miðhrauni í Garða-
bæ, ásamt endurskoðun á iðgjöldum
vegna breytinga á viðskiptamanna-
stofni félagsins hafi leitt til endur-
skoðunar frá fyrri spá. Spáin gerir
ráð fyrir að árið endi í rúmlega 96%
samsettu hlutfalli.
Gengi hlutabréfa í TM lækkaði um
4,4% í Kauphöllinni í gær í kjölfar
birtingar uppgjörsins.
Morgunblaðið/Kristinn
TM Sigurður segir fyrsta fjórðung
hafa reynst óvenju tjónaþungan.
Stórtjón setja mark sitt á TM
Fjárfestinga-
tekjur yfir spám á
fyrsta ársfjórðungi
● Hagnaður Skelj-
ungs nam 416
milljónum króna á
fyrsta ársfjórðungi,
samanborið við
255 milljóna króna
hagnað á sama
tímabili í fyrra, sem
er 63% hækkun
milli ára. Hagnaður
fyrir fjármagnsliði
og afskriftir,
EBITDA, nam 815 milljónum króna og er
það 30% hækkun frá sama tímabili á
síðasta ári. EBITDA framlegð var 47%,
miðað við 38% á fyrsta fjórðungi í fyrra.
Framlegð nam 1.746 milljónum króna
og hækkaði um 5% milli ára.
Arðsemi eigin fjár var 22,6% á árs-
grundvelli, samanborið við 14,8% á
fyrsta ársfjórðungi 2017. Eigið fé í lok
mars nam 7,6 milljörðum króna og eig-
infjárhlutfall var 35,8%.
Félagið áætlar að EBITDA ársins verði
á bilinu 2,8 til 3,0 milljarðar króna.
Hagnaður Skeljungs
jókst á fyrsta fjórðungi
Hendrik
Egholm