Morgunblaðið - 09.05.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2018
Ármúla 24 - s. 585 2800
ÚRVAL ÚTILJÓSA
Donald Trump, forseti Bandaríkj-
anna, tilkynnti í gær að hann hefði
ákveðið að draga landið út úr samn-
ingnum við klerkastjórnina í Íran
um kjarnorkuáætlun hennar og
hefja refsiaðgerðir að nýju gegn
landinu. Trump sagði að samningur-
inn dygði ekki til að afstýra því að Ír-
anar eignuðust kjarnavopn og
Bandaríkjastjórn myndi vinna með
samstarfsríkjum sínum að varan-
legri lausn á vandanum.
Með samningnum við Bandaríkin,
Bretland, Frakkland, Kína, Rúss-
land og Þýskaland frá árinu 2015
skuldbatt klerkastjórnin í Íran sig til
að takmarka verulega kjarnorku-
áform sín gegn því að viðskipta-
þvingunum gegn landinu yrði aflétt.
Hassan Rouhani, forseti Írans, sagði
í gærkvöldi að Íranar hygðust hefja
viðræður við ríkin sem styðja enn
samninginn en varaði við því að tím-
inn til að semja um málið væri naum-
ur og Íranar kynnu að hefja kjarn-
orkuáætlun sína að nýju með því að
„auðga meira úran en áður“.
Emmanuel Macron, forseti
Frakklands, sagði að frönsk, þýsk og
bresk stjórnvöld hörmuðu ákvörðun
Trumps. Ríkin myndu vinna saman
að víðtækara samkomulagi sem ætti
m.a. að ná til kjarnorkumála, eld-
flaugatilrauna og „stöðugleika í
Mið-Austurlöndum, einkum í Sýr-
landi, Jemen og Írak“.
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra Ísraels, sagði að Ísraelar
styddu heils hugar „þá djarfmann-
legu ákvörðun Trumps að hafna
þessum hörmulega kjarnorkusamn-
ingi“.
Rauf samninginn við Íran
Trump dró Bandaríkin út úr kjarnorkusamningnum við klerkastjórnina í Íran
og boðaði refsiaðgerðir gegn landinu Íranar hóta að hefja auðgun úrans að nýju
AFP
Samningi hafnað Trump tilkynnir
ákvörðun sína í Hvíta húsinu.
Stuðningsmenn Nikols Pashinyan streymdu út á götur
Jerevan, höfuðborgar Armeníu, í gær til þess að fagna
því að armenska þingið hefði kosið hann til þess að
gegna embætti forsætisráðherra, en fjölmenn mótmæli
hafa verið í landinu síðustu vikur vegna deilna um skip-
un í embættið. Mikil gleði ríkti hins vegar meðal mót-
mælenda í gær og grét fólk af gleði á götum úti þegar
það frétti að Pashinyan hefði verið kjörinn.
AFP
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar kjörinn forsætisráðherra Armeníu
Grátið af gleði á götum úti
Dmitrí Medved-
ev, forsætisráð-
herra Rússlands
og einn nánasti
bandamaður
Vladimírs Pútíns
Rússlands-
forseta, hlaut í
gær yfirgnæf-
andi stuðning
neðri deildar
Dúmunnar til
þess að gegna embættinu áfram.
374 þingmenn greiddu atkvæði
með Medvedev en 56 á móti.
Sagðist Medvedev vera reiðubú-
inn til þess að gera hvað sem væri
til að tryggja framþróun Rúss-
lands og að hann myndi vinna að
þeim markmiðum sem Pútín setti
fram í ræðu sinni í fyrradag þegar
forsetinn sór embættiseið í fjórða
sinn.
Medvedev gegndi áður embætti
forseta Rússlands á árunum 2008
til 2012, en Pútín var þá forsætis-
ráðherra.
Medvedev hlaut
stuðning þingsins
Dmitrí
Medvedev
RÚSSLAND
Eric Schnei-
derman, rík-
issaksóknari
New York-ríkis,
sagði af sér emb-
ætti í gær, eftir
að hann var bor-
inn þeim sökum
að hafa beitt fjór-
ar konur lík-
amlegu ofbeldi.
Schneiderman
sagði að þó að ásakanirnar tengd-
ust ekki starfi hans eða saksókn-
araembættinu kæmu þær í veg fyr-
ir að hann gæti leitt það starf sem
þar væri unnið, og því myndi hann
segja af sér.
Schneiderman er 63 ára gamall
og hefur verið lýst sem „fram-
sæknum demókrata“ og hörðum
andstæðingi Trumps Bandaríkja-
forseta. Þá hafði Schneiderman
tekið sér opinberlega stöðu sem
baráttumaður fyrir #metoo-
hreyfinguna.
Sagði af sér eftir
ásakanir um ofbeldi
Eric
Schneiderman
BANDARÍKIN
Xi Jinping, forseti Kína, hvatti í gær
Donald Trump Bandaríkjaforseta til
þess að taka tillit til réttmætra ör-
yggishagsmuna Norður-Kóreu á
komandi vikum, en leiðtogarnir
ræddust við í síma.
Xi tjáði Trump einnig í símtali
þeirra að hann styddi fyrirhugaðan
fund Trumps og Kims, sem ætlunin
er að halda í næsta mánuði. Verði af
honum verður það í fyrsta sinn sem
leiðtogi Norður-Kóreu og sitjandi
Bandaríkjaforseti ræðast við í eigin
persónu.
Talsmenn Hvíta hússins í Wash-
ington greindu frá því að Trump og
Xi hefðu verið sammála í símtali sínu
um nauðsyn þess að halda áfram að
beita Norður-Kóreu viðskiptaþving-
unum þar til landið léti öll kjarn-
orkuvopn sín af hendi og hætti var-
anlega við eldflaugaáætlun sína, en
Kínverjar eru helstu bakhjarlar
Norður-Kóreumanna. Engu að síður
hafa þeir veitt viðskiptaþvingunum
Sameinuðu þjóðanna vegna kjarn-
orkudeilunnar fullan stuðning.
Fyrr um daginn hafði Xi fundað
óvænt með Kim Jong-un, einræðis-
herra Norður-Kóreu, og rætt við
hann augliti til auglitis um kjarn-
orkumál Norður-Kóreumanna og
deilu þeirra við alþjóðasamfélagið.
Var þetta annar fundur þeirra Kims
og Xis á síðustu sex vikum. Sagði Xi
eftir fundinn að hann væri ánægður
með það hvað tvíhliða samskipti Kín-
verja og Norður-Kóreumanna hefðu
batnað að undanförnu. Þá fagnaði
hann þeim árangri sem náðst hefði í
kjarnorkudeilunni á síðustu vikum.
Þurfa að taka
tillit til N-Kóreu
Xi Jinping og
Kim Jong-un
funduðu í gær
AFP
Fundur Kim Jong-un og Xi Jinping
ræddu m.a. um lausnir á kjarnorku-
málum Norður-Kóreu í gær.
Sergio Mattar-
ella, forseti Ítalíu,
lagði til í fyrradag
að „hlutlaus“ rík-
isstjórn yrði
mynduð, sem
myndi stjórna
landinu út þetta
ár og stefna að
nýjum kosning-
um í janúar á
næsta ári.
Kosið var til ítalska þingsins í
mars síðastliðnum en enginn flokkur
eða flokkabandalag fékk þar meiri-
hluta þingsæta. Þriðja tilraunin til
þess að mynda ríkisstjórn, með við-
ræðum milli Demókrataflokksins og
Fimmstjörnuhreyfingarinnar, náði
engu flugi og var slitið án nokkurs
árangurs um helgina.
Sagði Mattarella að flokkarnir á
þingi yrðu að sýna ábyrgð og styðja
við utanþingsstjórn hans. Að öðrum
kosti yrði að rjúfa þing og kjósa aftur
í sumar eða haust.
Leggur til
utanþings-
stjórn
Viðræður sigla
í strand á Ítalíu
Sergio
Mattarella