Morgunblaðið - 09.05.2018, Side 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2018
✝ Magnús ÞórGunnarsson
fæddist í Reykja-
vík 12. janúar
1963. Hann lést
eftir löng og erfið
veikindi á sjúkra-
húsi í Bergen, Nor-
egi, 14. apríl. 2018.
Foreldrar hans
eru Jóhanna Har-
aldsdóttir, f. 26.
nóvember 1938, og
Gunnar Víðir Magnússon, f. 22.
júlí 1929.
Bræður Magnúsar eru Har-
aldur Ingi Gunnarsson, f. 18.
desember 1961, kona hans er
Kristín Másdóttir, f. 5. október
1964, og eiga þau tvö börn.
Sverrir Helgi Gunnarsson, f.
14. október 1967, kona hans er
Vilborg Helgadóttir, f. 21. febr-
úar 1970, og eiga þau þrjú
ágúst 1982. Daði Hrafn, f. 24.
maí 1990. Linda, f. 1. febrúar
1993, hennar sambýlismaður er
Remi Andrè Øverli Sture, f. 10.
júní 1985.
Fyrstu árin ólst Magnús upp
í Norðurmýri, Gunnarsabraut,
húsi ömmu og afa. Fjölskyldan
söðlaði um og flutti til Banda-
ríkjanna vorið 1969. Eftir tæp-
lega fjögurra ára dvöl ytra var
flutt aftur til Íslands og þá haf-
ist handa við húsbyggingu í
Breiðholti. Vorið 1975 var síð-
an flutt á Vesturbergið þar sem
fjölskyldan bjó næstu 23 árin.
Magnús lauk stúdentsprófi
frá Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti vorið 1983. Síðar lá
leið Magnúsar í Tækniskólann
og hann lauk þar prófi í bygg-
ingartækifræði vorið 1997.
Hann starfaði í þeim geira
bæði á Íslandi og í Noregi með-
an heilsa og kraftar entust.
Bálför fór fram í Bergen 24.
apríl 2018.
Útför fer fram frá Linda-
kirkju í Kópavogi í dag, 9. maí
2018, kl. 13. Jarðsett verður í
Lindakirkjugarði.
börn og eitt barna-
barn.
Magnús kvænt-
ist 24. október
1992 Marín Krist-
jánsdóttur, f. 1.
desember 1971.
Þau skildu 2017.
Foreldrar hennar
eru Kristján
Georgsson, f. 4.
júní 1949, og Jó-
hanna Guðrún
Gunnarsdóttir, f. 26. ágúst
1949.
Börn Magnúsar og Marínar
eru: Karl Víðir, f. 25. júní 1985,
og á hann börnin Eirík Þór, f.
28. maí 2009, og Sigurlín Unni,
f. 24. september 2011. Móðir
þeirra er Ríkey Eiríksdóttir, f.
25. janúar 1986. Þau skildu
2017. Sambýliskona Karls er
Sigríður Ástmundsdóttir, f. 22.
14. apríl rann sá dagur upp
sem ég vonaðist til að aldrei
mundi koma. Heimsins besti,
klárasti, fyndnasti – og umfram
allt; besti vinur og pabbi, er far-
inn frá okkur. Mér líður eins og
ég hafi misst hluta af sjálfri mér.
Orð geta ekki lýst sorginni. Það
hafa runnið mörg tár seinustu
mánuði. Þessir mánuðir eru bún-
ir að vera langir og þungir vegna
veikindanna. En á hverjum ein-
asta degi sýndi pabbi hversu
sterkur hann var. Það er eigin-
lega alveg ótrúlegt hversu mikið
hann kom sér í gegnum. En á
endanum varð það of mikið fyrir
þig líka, elsku pabbi minn. Ég
vildi ekki missa þig, en ég veit að
það var það besta fyrir þig eins
og staðan var orðin. Að sjá þig
svona veikan var erfitt að horfa
upp á. Þú munt alltaf eiga sér-
stakan stað í hjarta mínu.
Nú færðu að hvíla í friði. En
þín verður sárt saknað og enginn
mun taka þinn stað í hjarta
mínu.
Ég elska þig pabbi.
Linda Magnúsdóttir.
Ég man ennþá daginn sem ég
hitti þig fyrst Maggi, þegar ég
var 11 ára gamall og fullur aðdá-
unar, því nokkrum dögum áður
en ég hitti þig hitti ég bílinn
þinn. Fyrir utan húsið okkar á
Seltjarnarnesi vaknaði ég einn
daginn við það að sjá eitthvert
guðdómlegt, rautt, blátt og hvítt
skrímsli á stærstu dekkjum sem
ég hafði á minni stuttu ævi séð.
Ég vissi ekki að það væru til
svona stórir bílar nema í teikni-
myndum. Ég gat ekki ímyndað
mér hvers konar mannvera gæti
átt svona bíl. Bíllinn bar ekkert
nafn í raun því hann var, eins og
allt sem þú áttir, smíðaður af þér
sjálfum eftir eigin höfði og eigin
fyrirmynd. Þú varst ekki nýj-
ungagjarn og snobbaður fyrir
nýjum fínum hlutum eins og
flestir, heldur fannstu mesta
gleði í hlutum sem voru gamlir,
mikið notaðir, bilaðir, helst ónýt-
ir – því þá gastu lagað þá og gert
þá að þínum eigin.
Ég átti eftir að komast að því
með árunum að þó að þú værir
maður fárra orða, ólíkt systur
minni henni Marín, léstu verkin
tala. Það sást á öllu því sem þú
gerðir hve mikið væri í þig
spunnið, og þegar þú loksins
sagðir eitthvað var það fyndið og
beint í mark. Það fóru aldrei orð
til spillis hjá þér. Ég byrjaði
snemma að passa Daða og Lindu
heima hjá ykkur og með tíð og
tíma fór ég jafnvel að þvælast til
útlanda með ykkur og svo enn
síðar í jeppaferðir ásamt henni
Soffíu minni og á ég gríðarlegt
safn af frábærum minningum
sem ég verð þér ævinlega þakk-
látur fyrir. Ég varði einnig
mörgum jólum með ykkur þar
sem hápunktur kvöldsins var
alltaf þegar hún systir mín opn-
aði „pakkann“ sinn frá þér. Ég
setti orðið „pakkann“ í gæsa-
lappir því þessi pakki var í raun
samansafn af vandlega pökkuð-
um pökkum innan í öðrum pökk-
um, sem þú varst sennilega allt
árið að föndra í skúrnum þínum,
þar sem þú naust þess að vera,
innan um verkfærin þín. Börnin
þín eru uppáhaldsfólkið mitt í
öllum heiminum fyrir utan mín
eigin börn, og ég mun leggja mig
fram að vera til staðar fyrir þau í
fjarveru þinni. Þú varst mér
mikil fyrirmynd alla tíð og þú
varðst snemma varanlegur með-
limur í mínu fjölskyldumynstri
og verður það alltaf.
Þinn vinur og litli bróðir á ská,
Kristján Unnar.
Elsku Maggi minn.
Það er svo ótal margt sem
kemur upp í hugann og mig
langar að skrifa þér svo mikið að
ég veit varla hvar ég á að byrja.
Kannski best að byrja á upp-
hafinu okkar er Hrabba henti
mér út úr bílnum fyrir utan rað-
húsið sem þú varst nýbúinn að
kaupa og sagði við mig: Marín!
Komdu þér út og reyndu nú að
haga þér vel því Maggi verður
maðurinn þinn.
Hvað gerðist! Jú, ég 18 ára
gömul með nýfæddan son hitti
prinsinn minn sem elskaði okkur
svo mikið frá fyrstu stundu og
hugsaði svo vel um okkur. Við
vorum ástfangin frá upphafi.
Kalla áttir þú fyrir og fljót-
lega kom Linda í heiminn. Árin
liðu og þú vannst og vannst en á
sama tíma gerðum við upp og
byggðum viðbygginguna á
Framnesveginum.
Svo skelltir þú þér í háskóla-
nám til að hagur okkar vænk-
aðist. En alltaf passaðir þú og
hlúðir að hjónabandinu og plan-
aðir óvissuferðir og helgarferðir
fyrir okkur tvö til að hlúa að
hjónabandinu án barna og vinnu.
Ferðuðumst mikið og skoðuð-
um heiminn og Ísland. Jeppa-
ferðir upp á hálendið voru þínar/
okkar ær og kýr. „One life, live
Magnús Þór
Gunnarsson
HINSTA KVEÐJA
Þeir sem guðirnir elska
deyja ungir.
Þú hlýtur að vera einn af
þeim, elsku Magnús Þór.
Það er sárt að missa þig
en minningarnar getur
enginn tekið frá okkur.
Við söknum þín öll og
biðjum Guð og allar góðar
vættir að vaka yfir þér.
Mamma, pabbi, bræður
og fjölskyldur þeirra.
SJÁ SÍÐU 24
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
ERFIDRYKKJUR
Veislulist sér um veitingar fyrir
erfidrykkjur af öllum stærðum,
hvort sem er í sali eða heimahús.
Í yfir 35 ár hefur Veislulist lagt áherslu á góða
þjónustu og framúrskarand matreiðslu.
Sjá nánar
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
s: 555 1810
veislulist@veislulist.is
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
HALLDÓR GUNNAR PÁLSSON
frá Hnífsdal,
lést miðvikudaginn 18. apríl.
Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju föstudaginn 11. maí kl. 13.
Birna Sigurðardóttir
Ingimar Halldórsson Kristín Karlsdóttir
Páll Halldórsson Jóhanna Hafsteinsdóttir
Guðrún G. Halldórsdóttir Stefán Jónsson
Dagmar Halldórsdóttir
og fjölskyldur
JÓHANNA KARLSDÓTTIR,
Víðihlíð 15, Sauðárkróki,
verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 12. maí klukkan 14.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
líknarfélög.
Karl Bjarnason
Grétar, Annika, Hanna Maja
Reynhildur
og aðrir aðstandendur
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
vinur,
KETILL LARSEN,
Tjarnarengi, Þjóðhildarstíg 8,
Reykjavík,
sem lést fimmtudaginn 26. apríl, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn
14. maí klukkan 13.
Hólmfríður Þórunn Larsen Ugo Morelli
Sólveig Dögg Larsen Brynjar Hilmarsson
Ívar helgi Larsen
Ólöf Benediktsdóttir og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
VALSTEINN JÓNSSON,
Þórunnarstræti 117,
lést föstudaginn 4. maí.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 14. maí klukkan 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á dvalarheimilið Hlíð.
Alda Þórðardóttir
Jón Viðar Valsteinsson
Arnar Valsteinsson Kristín Rós Óladóttir
Alda, María og Auður
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
RANNVEIG RAGNARSDÓTTIR,
Tjarnarlundi 13c,
Akureyri,
lést á heimili sínu sunnudaginn 6. maí.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 15. maí klukkan 13.30.
Ragnar Árnason Ingibjörg Sigurðardóttir
Elín Una Friðfinnsdóttir
Erla Hrund Friðfinnsdóttir Páll Baldursson
Elsa B. Friðfinnsdóttir
Emil Friðfinnsson Sabine Friðfinnsson
ömmu- og langömmubörn
Bróðir okkar og frændi,
VALDIMAR BJARNFREÐSSON
listamaður,
lést að Droplaugarstöðum föstudaginn 4. maí.
Jarðarför auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bjarnfreður Ólafsson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ARNÓR AÐALSTEINN STÍGSSON
húsgagnasmíðameistari,
frá Horni
lést á hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði,
sunnudaginn 6. maí. Útförin fer fram frá
Ísafjarðarkirkju laugardaginn 12. maí klukkan 11.
Stígur Arnórsson Björk Helgadóttir
Svanfríður Arnórsdóttir
Elfa Dís Arnórsdóttir
og fjölskyldur
Okkar ástkæra,
ANNA JÓHANNESDÓTTIR,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund í
Reykjavík sunnudaginn 6. maí.
Jarðarförin fer fram frá Neskirkju
þriðjudaginn 15. maí klukkan 13.
Jónas Tómasson Sigríður Ragnarsdóttir
Jóhannes Tómasson Málfríður Finnbogadóttir
Haukur Tómasson Ragnheiður Elísdóttir
Guðrún Anna Tómasdóttir Leon van Mil
barnabörn og barnabarnabörn