Morgunblaðið - 09.05.2018, Side 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2018
it“ voru þín einkunnarorð.
Keyptir gamalt hús í Hafnarfirði
fyrir okkur fjölskylduna við hlið-
ina á Halla bróður þínum og
Stínu og þar ólust okkar börn
upp. Gerðum það upp líka og
byggðum við og lífið var dásam-
legt.
Allt sem þú gerðir var svo vel
gert. Rúllaðir upp náminu og
vannst öll verðlaun skólans,
flinkur í vinnu og flottur pabbi
og eiginmaður minn i 25 ár.
En lífið er víst ekki bara dans
á rósum, elskan mín. Brestir og
vandamál verða stundum óyfir-
stíganleg og þá ákváðum við að
flytja úr landi og til Bergen og
prófa upp á nýtt og það gekk vel
til að byrja með.
Vandamálin fluttu með okkur
og þetta endaði með skilnaði. Við
uxum frá hvort öðru en alltaf
varstu til staðar og hugsaðir um
mig og ég um þig. Vorum alltaf
bundin órjúfanlegum böndum,
sama hvað. Slepptum einhvern
veginn aldrei takinu hvort af
öðru. Þú elskaðir okkur fjöl-
skylduna meira en allt. Hélst ut-
Magnús Þór
Gunnarsson
an um mig fram að síðasta and-
ardrætti og ég um þig.
Ég veit að þú ert kominn á
góðan stað núna og laus við erfið
veikindin, elskan mín, og ég er
svo stolt af þér eins og ég hef
alltaf verið, snillingurinn minn.
Börnin okkar hafa fengið í vega-
nesti hinn flotta karakter pabba
síns og þau munu passa upp á
mig, það veistu líka.
Mun alltaf elska þig og takk
fyrir allt, klári Magzinn minn.
Marín Kristjánsdóttir.
Ég ætlaði ekki að fara að
skrifa um Magga, þennan fína
dreng í dag né nokkurn annan
dag, en Maggi er allur.
Þegar ég las um að Maggi
væri ekki meðal okkar lengur
kom það ekki á óvart eftir þau
erfiðu veikindi sem á undan
hefðu gengið en samt var ég að
halda í vonina um að Maggi
myndi hafa þau af.
Ég kynntist Magga og Marín,
konunni, hans í gegnum Ísland
Rover, Landrover-klúbb okkar.
Okkur Magga kom strax vel
saman á ferðum okkar enda báð-
ir með dellu fyrir jeppum. Maggi
var traustur og hjálpsamur
ferðafélagi. Hann var alltaf
reiðubúinn að rétta hjálparhönd
og aðstoða aðra ef eitthvað bilaði
á fjöllum.
Ein af mörgum ferðum okkar
um vetur er mér minnisstæð.
Það var þegar við fórum ásamt
nokkrum öðrum inn á Hvera-
velli. Maggi var með tvo bíla,
einn breyttan og einn óbreyttan
Landrover. Þvílík bjartsýni hjá
Magga að drösla óbreyttum bíl
með. Sá óbreytti var reyndar
nokkuð oft í spotta en þetta
hafðist að lokum. Þarna var
Magga rétt lýst, þrjóskur og
ekki til í að gefast upp. Þannig
minnist ég Magga. Eftir erfiðan
og langan dag kom hann til mín
og sagði við mig: „Við höfðum þá
allavega eitthvað að gera í dag,“
og glotti út í annað.
Eitt skipti fórum við inn í
Hörpu þar sem hann hafði yf-
irumsjón með öllu járn- og víra-
virki. Hann sýndi mér alla króka
og kima, stoltur af sinni vinnu.
Maggi var einstakur í að byggja
og hanna mannvirki.
Við Maggi áttum margar fínar
stundir og spjölluðum oft saman
í bílskúrnum hans enda var al-
veg með ólíkindum hvað hann
tók sér fyrir hendur. Hann lag-
aði allt sem bilaði: bíla, hús, raf-
magnsdót og allt þar á milli.
Maggi var alltaf að bralla eitt-
hvað í bílskúrnum og stundum
botnaði maður ekkert í því hvað
hann var að gera. Eitt skipti
kom ég inn í skúr til hans þá var
húddið opið á bílnum hans:
38Disco. Mér til mikillar undr-
unar sá ég sex sultukrukkur með
allskonar vírum og fleira dóti.
Ég horfði á Magga og spurði
hvort það væri ekki betra að láta
Marín sjá um að sulta því þetta
væri ekki rétti staðurinn fyrir
sultugerð. Maggi snéri sér að
mér og sagði „Sérðu ekki hvað
þetta er? Núna er Landroverinn
farinn að framleiða metan enda
er lítrinn af dísilolíu orðinn svo
dýr í dag.“ Ég átti ekki orð og
spurði hvað ertu núna búinn að
búa til? Og Maggi svaraði mér:
„Það er líkega best að við séum
ekki að reykja hérna ofan í met-
anroverinn ef leki kæmi að. Lík-
lega færi skúrinn að grunnin-
um.“ Það var fljótlega drepið í.
Ég var mjög lánsamur að hafa
kynnst honum Magga. Þegar ég
frétti af veikindum hans í Noregi
hringdi ég í hann þar sem hann
lá á spítala og við áttum gott en
erfitt samtal. Það var mjög erfitt
fyrir okkur báða að geta ekki
talað saman eins og forðum daga
því hann var orðinn mjög veikur
því eins og hann sagði í þessu
símtali „líklega kem ég heim í
krukku“ og hann hafði rétt fyrir
sér eins og svo oft áður.
Maggi sagði að lokum: „Lík-
lega þarf ég ekki að borga fyrir
flugfarið heim. Marín tekur mig
bara með sér í handfarangri.“
Hann fékk fylgd yfir hafið og
heim.
Hvíl í friði, elsku vinur,
Jón Valgeir Kristensen.
Elsku Maggi.
Aldrei gleymi ég okkar fyrstu
kynnum. Við Marín skelltu okk-
ur á ball 18 ára gamlar og sáum
þennan hávaxna, flotta strák á
barnum. Það var ást við fyrstu
sýn hjá ykkur. Keyrði ég ykkur
heim og nánast henti henni út úr
bílnum heima hjá þér og þar var
hún í fangi þínu í 25 ár. 18 ára
stelpan með lítinn þriggja mán-
aða prins sem þú tókst að þér
um leið.
Það sem það var alltaf gott að
koma til ykkar og aldrei fannst
þér neitt mál þó að ég væri
þriðja hjólið undir vagninum.
Traustur og trúr varstu, alltaf
yndislegur fjölskyldumaður,
handlaginn og klár.
Hræðilegt að veikindin hafi
tekið þig frá okkur en mikið sem
ég er glöð að hafa komið til þín
yfir helgi áður en yfir lauk. Þótt
þú hafir verið mjög veikur þá var
húmorinn ekki langt undan. Gott
að geta knúsað þig. Vonandi ertu
kominn á góðan stað, Maggi
minn, og þín verður sárt saknað.
En minning þín mun ávallt lifa.
Elsku Marín, Linda, Daði og
Kalli, mínar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Kveðja,
Hrafnhildur (Hrabba).
Magnús Þór vann hjá verk-
fræðistofunni Línuhönnun um
langan tíma og aldrei höfðum við
starfsmann með viðlíka afköst og
öryggi og Maggi. Hann hafði
stáltaugar og gat unnið undir
pressu og álagi sem hefði drepið
hvern meðalmann. Hann var
m.a. aðalframleiðandi
burðarþolsteikninga að Smára-
lind, því stóra húsi. Maggi byrj-
aði að teikna um leið og verktak-
inn byrjaði að steypa sem er það
versta sem kemur fyrir hönnuði
en hvergi kom fram villa í teikn-
ingum né þurfti að breyta
nokkru.
Seinna vann hann stundum í
deild sem við kölluðum vitlausu
deildina því hún skipti sér hvorki
af því sem er venjuleg verk-
fræðivinna né tók nokkurt mark
á reglugerðafarganinu. Hann
hannaði t.d. með Árna Páli Jó-
hannssyni hönnuði stóra ískast-
ala á gamla torgið í Prag. Allir
staðlar voru sniðgengnir því við
reiknuðum ekki með að nokkur
myndi byggja „þessa vitleysu“.
En svo var allt í einu búið að
byggja þetta og allt hafði gengið
upp.
Maggi lenti í mjög alvarlegu
slysi meðan hann enn vann hjá
Línuhönnun. Það hrundi á hann
timburstæða í byggingavöru-
verslun. Hann var lengi að kom-
ast á fætur og náði sér aldrei al-
veg.
Honum fannst starfsgetan
hafa minnkað og óskaði eftir
launalækkun sem aldrei hefur
gerst hjá Línuhönnun hvorki
fyrr né síðar. Við sögðum hins
vegar að jafnvel þó að afköstin
hans minnkuðu um helming væri
hann ennþá toppmaður og höfn-
uðum beiðninni.
Löngu seinna lá leið okkar
aftur saman hjá ÍAV við að
byggja tónlistarhúsið Hörpu.
Maggi var ábyrgur fyrir samn-
ingum og byggingu stálvirkisins
og seinna gerði hann allar fram-
leiðsluteikningar af flókinni
rauðu klæðningunni innan í Eld-
borg sem er búin til úr einingum
og er gífurleg nákvæmnisvinna
og þar mátti engu skeika og
gerði það ekki heldur.
Síðasta sumar virtust leiðir
okkar enn að ætla að liggja sam-
an því Maggi réði sig til verk-
fræðistofunnar EFLU. En þá
var hann greinilega orðinn veik-
ur og fór skömmu seinna aftur
til Noregs og átti ekki aftur-
kvæmt.
Við vorum svo í tölvusam-
skiptum síðustu mánuði Magga.
Hann var algjörlega æðrulaus og
kveið engu fremur en fyrri dag-
inn og vissi nákvæmlega hvert
stefndi. Við rifjuðum upp okkar
sameiginlegu vegferð og ég held
að það hafi glatt hann svolítið að
sá sem lengst hafði verið vinnu-
veitandi hans hafði aldrei haft
eins afkastamikinn og öruggan
starfsmann.
Ríkharður Kristjánsson.
Smáauglýsingar
Bækur
Hornstrandir heilla og
seiða alla vestur -
Hornstrandir í sumar?
Hornstrandabækurnar okkar eru
skyldulesning!
Allar 5 í pakka á 7500.
Frítt með Íslandspósti.
Vestfirska forlagið
jons@snerpa.is
456-8181
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur, laga
ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Vantar þig
lögfræðing?
FINNA.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát okkar
ástkæru móður, dóttur, systur og mágkonu,
ÞÓRU STEPHENSEN
aðstoðarskólastjóra.
Einlægar þakkir færum við ennfremur þeim sem komu að
umönnun hennar og útför.
Örvar Andrésson
Dagbjört Andrésdóttir
Þórir Stephensen Dagbjört G. Stephensen
Elín Stephensen
Ólafur Stephensen Ragnheiður D. Agnarsdóttir
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð, hlýhug
og vináttu við andlát ástkærs sonar okkar
og bróður,
ÓLAFS KRISTINS ÞÓRÐARSONAR,
Hátúni 10b, Reykjavík,
sem lést á heimili sínu fimmtudaginn
26. apríl. Þeim sem vilja minnast hans er bent á SÁÁ.
Þórður Gísli Ólafsson, Jónína Sigurlaug Jónasdóttir,
Kjartan Valur Þórðarson,
Hjalti Jón Þórðarson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN MAGNEA
AÐALSTEINSDÓTTIR,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
þriðjudaginn 24. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Starfsfólki
Grundar eru færðar sérstakar þakkir fyrir góða umönnun.
María Sighvatsdóttir, Auðunn Eiríksson
Aðalheiður H. Sighvatsd.
Gunnhildur Friðþjófsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn