Morgunblaðið - 09.05.2018, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2018
Páll fæddist íGraz íAusturríki
9.5. 1928 og hóf
ungur tónlistar-
nám. Hann kom
til Íslands 1949,
var ráðinn stjórn-
andi Lúðrasveitar
Reykjavíkur og 1.
trompetleikari
Útvarps-
hljómsveitar inn-
ar og síðan Sin-
fóníuhljómsveitar
Íslands frá stofn-
un, 1950. Hann
var trompetleik-
ari í SÍ til 1960
og stjórnandi
Lúðrasveitar
Reykjavíkur til
1973.
Frá 1956
stjórnaði Páll
Sinfóníu-
hljómsveit Íslands
reglulega í 35 ár,
hefur stjórnað
hljómsveitum
annars staðar á Norðurlöndunum og á meginlandi Evrópu, s.s.
Fílharmoníuhljómsveitinni í Stokkhólmi og Rínarfílharmoníunni.
Hann hefur kappkostað að hafa íslensk verk á efnisskrám tón-
leika sinna og frumflutt erlendis verk eftir Atla Heimi Sveinsson,
Jón Nordal, Jón Leifs og Þorkel Sigurbjörnsson.
Í Þjóðleikhúsinu og Íslensku óperunni hefur Páll stjórnað fjöl-
mörgum sýningum. Hann nam tónsmíðar í Austurríki og hefur
samið fjölmörg verk. Árið 1993 lét hann af störfum hér til að
helga sig tónsmíðum og býr nú í Graz. „Ég er fyrst og fremst
þakklátur fyrir góða heilsu í öll þessi ár og án stórra skakkafalla.
Lungann af starfsævinni bjó ég á Íslandi og náði að gera þar flest
sem hugur minn stóð til. Tónsmíðarnar eru mitt helsta áhugamál
og ég sinni þeim eftir bestu getu. Á afmælisdaginn býð ég til
veislu á gamalkunnum veitingastað hér í Graz og gleðst með
gömlum vinum héðan sem og fjölskyldu og vinum frá Íslandi. Í
sumar kemur svo Karlakór Reykjavíkur til að heiðra mig með
tónleikum í tilefni afmælisins. Allt þetta er mikið fagnaðarefni.“
Var lengi máttarstólpi
í íslensku tónlistarlífi
Páll Pampichler Pálsson er níræður
Níræður Páll Pampichler Pálsson, tónskáld og
fyrrv. stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
I
ngólfur H. Geirdal fæddist í
Reykjavík 9.5. 1968 og ólst
þar upp, fyrstu fimm árin í
Fossvogi en flutti síðan
með fjölskyldu sinni í
Breiðholt: „Ég hef haft áhuga á
tónlist frá því ég man eftir mér. Ég
var hins vegar kominn í Fellaskóla
þegar áhugi minn á töfrabrögðum
varð til þess að ég hélt mína fyrstu
töfrasýningu, 10 ára að aldri.
Um það leyti kynntist ég Baldri
Brjánssyni töframanni sem var ljúf-
mennskan uppmáluð, gaf mér mörg
góð ráð og galdrabækur. Tveimur
árum síðar var ég orðinn fastráðinn
skemmtikraftur á næturklúbbnum
Hollywood við Ármúla. Þá var
töframaðurinn ungi aðeins 12 ára.
Ég fagna því 40 ára töfraferli mín-
um um þessar mundir. Á þessum
Ingólfur H. Geirdal, tónlistar- og töframaður – 50 ára
Feðgin Ingó með dóttur sinni, Katrínu Jenný, sem er búsett í Gautaborg með móður sinni, Theódóru Björgu.
Í fótspor Houdinis og
Baldurs Brjánssonar
Með pabba og mömmu Hér er töframaðurinn ný skírður, ásamt foreldrum.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Láttu birtuna ekki trufla þig
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
alnabaer.is
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.