Morgunblaðið - 09.05.2018, Síða 27
fjórum áratugum hef ég komið
fram á fjölmörgum skemmtunum, í
skemmtiferðaskipum og í sjón-
varpsþáttum í Skandinavíu, Asíu og
Ameríku.“
Það er ekki hrist fram úr erminni
að verða góður töframaður. Er það?
„Onei. Það þarf margt fleira til
en að hrista ermar. Góður töfra-
maður þar feikilega nákvæmni, aga,
þolinmæði og þrotlausar æfingar
svo þetta gangi allt saman upp. Ég
hef oft æft sum atriði í mörg ár áð-
ur en ég sýni þau. Mörg töfrabrögð
eru klassísk, ganga frá einum til
annars, en góðir töframenn skapa
einnig mörg ný og frumleg töfra-
brögð. Þá reynir á sköpunargáfuna.
Síðan tekur við útfærsla og þrot-
lausar æfingar.
Loks er það leikræni þátturinn
sem einnig er mjög mikilvægur.
Töframaður er nokkurs konar leik-
ari. Hann þarf að kunna að magna
upp spennu og dulræna stemningu
svo áhorfendur njóti þess sem þeir
komu til að upplifa: Að láta blekkja
sig.
Auðvitað byrjaði ég á því að taka
upp töfrabrögð annarra og líklega
má rekja þennan áhuga minn til
þess að pabbi gaf mér bók þegar ég
var strákur sem heitir Töfrabrögð
Houdinis, en sá meistari hefur heill-
að marga gegnum tíðina. Baldur
Brjánsson á einnig heiður skilinn
fyrir allar sínar leiðbeiningar en við
Baldur erum enn perluvinir þótt
hann sé 20 árum eldri en ég.“
Ingó var í Fellaskóla og Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti. Hann
stundaði tónlistarnám á unglings-
árum í Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar þar sem hann nam
klassískan gítarleik og tónfræði.
Ingó hefur getið sér gott orð sem
gítarleikari og laga- og textahöf-
undur með þungarokkssveitinni
Dimmu, sem hann stofnaði árið
2004, ásamt Sigurði Geirdal Ragn-
arssyni, yngri bróður sínum.
Auk þess að leika með Dimmu
hefur Ingó spilað inn á plötur og á
tónleikum víða um heim, m.a. með
hljómsveitunum Stripshow, Quar-
ashi og Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands. Þá hefur hann spilað og gefið
út efni með Bubba Morthens auk
þeirra Dennis Dunaways, Michaels
Bruce og Neals Smiths úr upphaf-
lega Alice Cooper-bandinu.
Ingó heldur upp á 40 ára starfs-
afmæli sem töframaður með stórri
töfrasýningu í Salnum í Kópavogi
nk. sunnudag, 13.5., kl. 16.00.
Fjölskylda
Dóttir Ingós er Katrín Jenný, f. í
Gautaborg í Svíþjóð 17.5. 2008. Hún
er búsett í Svíþjóð ásamt móður
sinni, Theódóru Björgu Lofts-
dóttur.
Systkini Ingós eru Kolbrún
Svala, f. 20.1. 1970, húsfreyja í
Reykjavík, og Sigurður Geirdal, f.
3.4. 1973, tónlistarmaður í Reykja-
vík.
Foreldrar Ingós: Ragnar Geirdal
Ingólfsson, f. 18.6. 1943, d. 28.4.
2018, bifvélavirki í Reykjavík, og
k.h., Jenný Hjördís Sigurðardóttir,
f. 26.5. 1948, félagsliði í Reykjavík.
Ingólfur H.
Geirdal
Kristín Helga Jensdóttir
húsfr. í Hafnarfirði
Sigurður Kristján Sigurðsson
sjóm. í Hafnarfirði
Steinþóra Margrét Sigurðardóttir
verslunark. í Rvík
Jenný Hjördís Sigurðardóttir
félagsliði í Rvík
Sigurður Steindórsson
verkam. í Rvík
Guðrún Pálsdóttir
húsfr. í Rvík
Steindór Jóhannesson
verslunarm. í Rvík
Kolbrún Svala
Ragnarsdóttir
húsfr.í Rvík
Sigurður Geirdal
Ragnarsson
tónlistarmaður í Rvík
Gunnþóra Freyja Jóhannsdóttir
sérkennari í Rvík
Anna Vigfúsdóttir
húsfr. í Rvík
Guðbjörg
Tómasdóttir
fyrrv. kennari
við VÍ
Tómas
Guðbjartsson
hjartalæknir
Tómas Vigfússon
húsasmíða
meistari, hann
byggði fyrstu
verkamanna
bústaðina v.
Hringbraut í Rvík
argrét Steindórsdóttir
húsfr. í Rvík
MErla Axelsdóttir
húsfr. á
Siglufirði og í
Hafnarfirði
Ingimundur Einarsson dómstjóri
Héraðsdóms Reykjavíkur
Ingveldur Einarsdóttir
hæstaréttardómari
Valdís Einarsdóttir
hjúkrunarfræðingur
Svanhildur Vigfúsdóttir
fyrrv. stjónarform.
Skeljungs
Vigfús Geirdal
kennari og
sagnfræðingur og
skólastj. á Flateyri
Arndís Sævarsdóttir
sérkennari
Sigursteinn Sævar
Sigurðsson alþjóða
knattspyrnudómari
Guðbjörg Árnadóttir
húsfr. í Rvík
Vigfús Sigurðsson
trésmiður í Rvík. Fór með
J.P.Koch í leiðangur þvert
yfir Grænland 1912
Svanhildur Vigfúsdóttir
húsvörður í Rvík
Ingólfur Guðmundsson
Geirdal kennari í Rvík
Vilhelmína Steina Pétursdóttir
húsfr. á Ísafirði
Úr frændgarði Ingólfs H. Geirdal
Ragnar Geirdal Ingólfsson
bifvélavirki í Rvík
Halla Eyjólfsdóttir skáldkona á Laugabóli
Freyja Geirdal
húsfr. í Keflavík
Sigurður Geirdal
bæjarstj. í Kópavogi
SJÓN skáld og
rithöfundur
Steinólfur Geirdal
skólastj. og
útgerðarm. í Grímsey
Hreiðar E.Geirdal kennari í Grímsey,
söðlasmiður á Húsavík og verslunarm. á Ísafirði
Guðmundur Eyjólfsson
Geirdal kennari og skáld á Ísafirði, af Bjarna
Pálssyni landlækni í beinan karllegg
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2018
Jóhann fæddist á Elliða í Stað-arsveit 9.5. 1905, sonur Sæ-mundar Sigurðssonar hrepp-
stjóra og Stefaníu Jónsdóttur
húsfreyju.
Stefanía var dóttir Jóns Jónssonar,
hreppstjóra á Álftavatni, bróður
Árna, langafa Böðvars, föður Sturlu,
fyrrv. alþm. og ráðherra.
Systir Sæmundar var Oddfríður,
móðir Guðmundar heitins Ingólfs-
sonar djasspíanósnillings.
Eiginkona Jóhanns var Sigríður,
dóttir Árna Thorsteinson tónskálds,
og eignuðust þau dæturnar Helgu
þjóðlagasafnara og Gyðu skólastjóra.
Jóhann var fimm ára er hann missti
föður sinn og fór þá í fóstur að Mið-
hrauni í Miklaholtshreppi.
Jóhann lauk stúdentsprófi í
Reykjavík 1926, embættisprófi í lækn-
isfræði 1931, stundaði framhaldsnám í
taugalækningum í Kaupmannahöfn
og Árósum og var viðurkenndur
taugasérfræðingur 1938.
Jóhann var ráðinn fyrsti trygginga-
yfirlæknirinn við stofnun emb- ætt-
isins í ársbyrjun 1937, varð prófessor í
lyflæknisfræði við HÍ og yfirlæknir
við lyflæknisdeild Landspítalans 1948.
Hann sat í manneldisráði frá stofnun
1939, í læknaráði frá stofnun 1942, í
skólanefnd Lyfjafræðingaskóla Ís-
lands, sat í stjórn Rauða kross Íslands
og gegndi ýmsum nefndarstörfum.
Jóhann varð félagsmálaráðherra í
utanþingsstjórn dr. Björns Þórð-
arsonar 1942, sem Sveinn Björnsson
ríkisstjóri skipaði. Hann sagði hins
vegar af sér ráðherradómi í apríl 1943
vegna óánægju með afstöðu og að-
gerðaleysi Alþingis gagnvart verð-
bólgunni.
Jóhann var afburðanámsmaður,
bráðskarpur, vinnusamur og afar
virtur læknir. Hann var ekki síður
dáður af sjúklingum sínum, enda var
hann yfirlætislaus, alúðlegur og nær-
gætinn læknir sem lét sér ekki síður
annt um andlega líðan þeirra en lík-
amlega heilsu. Hann var því mörgum
harmdauði er hann lést á besta aldri
6.6.1955.
Merkir Íslendingar
Jóhann Sæmundsson
95 ára
Kristín Lilja Óskarsdóttir
90 ára
Kristján Ólafsson
85 ára
Jóhanna Rósinkrans
Kristín Magnúsdóttir
Rögnvar Ragnarsson
Örn Ingólfs Ingólfsson
80 ára
María Þórdís Sigurðardóttir
Sonja H. Thorstensen
75 ára
Arndís Ármann
Einar Magnússon
Hallur Sturlaugur Jónsson
Hildigunnur Halldórsdóttir
Hulda Garðarsdóttir
Jón Zophoníasson
Rósa Arilíusardóttir
Sigrún Stefánsdóttir
Þorbergur Kristinsson
70 ára
Guðjón Sólmundarson
Halldóra J. Jónasdóttir
Halldór Jóhannsson
Inga Harðardóttir
Jón Ingi Guðjónsson
Jónína Erla Valgarðsdóttir
Soffía Laufey Tryggvadóttir
Sólveig Stefanía
Kristinsdóttir
Svanborg Ágústa
Kristjánsdóttir
60 ára
Bergdís Hrönn
Kristinsdóttir
Guðný Edda Gísladóttir
Hörður Sigurðsson
Jón Þrándur Steinsson
Kristín A. Sigurðard.
Hammer
Maija Upeniece
Marjolijn Tiepen
Óskar Arnar Hilmarsson
Pétur Pétursson
Sigurborg Oddsdóttir
Sigurlína Gísladóttir
Wanda Lucja Ferenc
Wieslaw Mysliwiec
50 ára
Auður Jóhannsdóttir
Birgitta Sveinsdóttir
Eyrún Sigurjónsdóttir
Fanney Reynisdóttir
Galina A.G. Andersen
Guðlaug Sigurðardóttir
Ingólfur H.R. Geirdal
Sigurbjörg K. Bóasdóttir
Sverrir Sigurðsson
Þorgerður Þorvaldsdóttir
40 ára
Aðalheiður Þórisdóttir
Anna S. Halldórsdóttir
Hafdís Jónsdóttir
Jóhann Sveinn Sveinsson
Kristbjörg Þórisdóttir
Petruk Blazej
Riccardo Manzi
Sigurdís Laxdal Helgadóttir
Stefán Þór Karlsson
30 ára
Arna Sif Ásgeirsdóttir
Bjarki Erlingsson
Dariusz Jacek Runowski
Elín Auðbjörg Pétursdóttir
Ívar Guðnason
Katrín Ottesen
Qiong Wang
Samúel Þór Smárason
Sebastian Mariusz Tkaczyk
Svala Sif Sigurgeirsdóttir
Thelma Diljá Ólafsdóttir
Tiberiu Sucala
Til hamingju með daginn
30 ára Thelma ólst upp í
Kópavogi, býr í Mos-
fellsbæ og stundar nú
nám í tækniteiknun við
Tækniskólann.
Maki: Zamir Jukaj, f.
1996, bílamálari.
Foreldrar: Svanhvít Jóns-
dóttir, f. 1945, nuddari og
kírópraktor, og Ólafur
Garðar Þórðarson, f.
1935, múrarameistari og
byggingarstjóri. Þau eru
búsett í vesturbænum í
Kópavogi.
Thelma Diljá
Ólafsdóttir
30 ára Svala býr á Ísa-
firði, stundar nám í sál-
fræði og er sundþjálfari.
Maki: Samúel Sam-
úelsson, f. 1982, fram-
kvæmdastjóri Fiskmark-
aðar Vestfjarða.
Sonur: Samúel Máni
Samúelsson, f. 2015.
Foreldrar: Sigurgeir
Steinar Þórarinsson, f.
1963, og Guðrún Bene-
diktsdóttir, f. 1965. Stjúp-
móðir: Ragnhildur Stef-
ánsdóttir, f. 1970.
Svala Sif
Sigurgeirsdóttir
30 ára Ívar ólst upp í Þór-
isholti í Mýrdal og er
bóndi þar.
Maki: Kristina, frá Slóvak-
íu, f. 1985, húsfreyja.
Sjúpsonur: Alex Ragnar,
f. 2015.
Systkini: Íris, f. 1981; Ein-
ar, f. 1996, og Þorgeir, f.
1996.
Foreldrar: Guðni Ein-
arsson, f. 1957, og Halla
Ólafsdóttir, f. 1961, bænd-
ur í Þórisholti.
Ívar
Guðnason