Morgunblaðið - 09.05.2018, Page 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2018
SAMSTARFSAÐILI
HVAR SEM ÞÚ ERT
Hringdu í 580 7000
eða farðu á heimavorn.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu í þér heyra þegar þín hjartans
mál ber á góma. Farðu varlega og ekki gera
neinar ráðstafanir sem hægt er að steypa um
koll.
20. apríl - 20. maí
Naut Það eru einhverjar undiröldur í kringum
þig svo þú skalt fara þér hægt og vera viðbú-
in/n hverju sem er. Leystu hvert mál skref
fyrir skref, alls ekki hespa þeim af í einu vet-
fangi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Einhver misskilningur gæti komið
upp milli ástvina. Notaðu kraftana til að láta
hlutina ganga greiðlega fyrir sig og einbeittu
þér að því sem máli skiptir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er ekki hægt að gera svo að öll-
um líki og því skaltu halda þínu striki ótrauð/
ur. Veldu þér því trúnaðarvin sem þú getur
treyst.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt þér leiðist að fara ofan í saumana á
málum aftur og aftur er það nauðsynlegt ef
þú vilt hafa allt á hreinu. Frumkvæði þitt hef-
ur jákvæð áhrif á fólkið í kringum þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu ekki undir höfuð leggjast að
rannsaka vel það sem þú þarft til starfs þíns.
Gættu þess að dreifa ekki kröftum þínum um
of því slíkt leiðir ekki til neins.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þótt aðrir séu ekki á sama máli og þú er
ástæðulaust að fara í fýlu. Ef þú færð ekki
heimboð skaltu bara bjóða heim sjálf/ur eða
stinga upp á upp á góðum veitingastað.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ef þú vilt breyta einhverju þá
skaltu strax ganga í málin og sannfæra aðra
um ágæti hugmynda þinna. Hafðu hugfast að
aldrei er hægt að gera svo öllum líki.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Orð geta hitt í mark svo farðu þér
hægt og mundu að aðrir eiga líka rétt á sín-
um skoðunum. Besta leiðin til þess að bæta
samskipti er að breyta sjálfum sér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Sköpunarmáttur þinn nær nýjum
hæðum, en hugsanlegt að enginn annar taki
eftir því. Þú hefur lagt hart að þér og upp-
skerð nú árangur erfiðis þíns.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú gætir staðið frammi fyrir erf-
iðum málum á vinnustað en þú hefur alla
burði til að takast á við þau. Frumkvæði þitt
mun bera þann árangur sem þú vonast til.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Forðastu misskilning annarra með því
að setja mál þitt fram með ótvíræðum hætti.
Haltu þig við það sem þú veist og hugsaðu
frekar meira um sjálfa/n þig.
Þessar limrur urðu til þegarHelgi R. Einarsson leit út um
gluggann undir morgun á sunnu-
daginn:.
Amma sagði: „Ó,
það er nú komið nóg.
Um sumar bið
og blíðviðrið.
Burt með þennan snjó.“
Afi sagði: „Æ,
ég ekki þessu næ.
Það er skítt
að allt sé hvítt
og upp er runninn maí.“
Sigurlín Hermannsdóttir segir á
Leir að það sé hætt við að margur
klóri sér í kollinum þegar kemur að
framboðsmálum (offramboðinu) í
borgarstjórnarkosningunum:
Hvar viltu setja þinn kross?
Við komma eða sjalla eða hross?
Við fósturlandssyni
eða flugvallarvini?
Æ, hjálpi nú hamingjan oss!
Páll Imsland áréttar að hinni
hliðinni á kosningunum megi ekki
gleyma:
Mér framboð ei tókst nú að fylla,
sem fyrst og seint er bara villa,
því kosti ég hef
– þó helst er ég sef –
sem ástæða er til að gylla.
Jón Arnljótsson hefur lög að
mæla:
Sjaldan er á öllu völ.
Ykkar færi nýtið.
Það er gott að þamba öl,
ef það er nógu lítið.
Þessi staka kallast á við erindi í
Hávamálum:
Haldi-t maður á keri,
drekki þó að hófi mjöð.
Mæli þarft eða þegi.
Ókynnis þess
vár þig engi maður
að þú gangir snemma að sofa.
Hjálmar Þorsteinsson, Hofi, orti:
Auka brot á auðnuþrot
eg hef notið, þegið.
Eftir hlotin ástarskot
oft í roti legið.
Þó ég ekki hafi hitt
haldið rétta á taumnum
ef þú velur vaðið mitt
varaðu þig á straumnum.
Hér er braghenda úr Síraks-
rímum Jóns Bjarnasonar á Prest-
hólum:
Eiginkonuna ekki láttu yfir þig bjóða,
halt það ei fyrir hegðun góða
að herra þinn sé baugatróða.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Nóg af snjó og
frambjóðendum
„ÉG HEF ENGAN TÍMA TIL ÞESS AÐ
ÚTSKÝRA. HRINGDU BARA Á HÚSVÖRÐINN
OG SEGÐU HONUM AÐ LYFTAN SÉ FÖST.“
„ÞETTA ER NÝJA UPPFINNINGIN MÍN. TALAÐU VIÐ
MÓÐUR ÞÍNA Í KLUKKUTÍMA Í GEGNUM ÞENNAN OG
ÞAÐ MUN HITA ALLT HÚSIÐ NÆSTA MÁNUÐINN!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að skilja egóin ykkar
eftir.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
JÁ, ÞAÐ ER SMÁ
EFTIR Í ELDHÚSINU
VIÐ HLIÐINA Á
EINHYRNINGNUM.
JÁ!ÞÝÐIR ÞAÐ ÞAÐ SEM
ÉG HELD AÐ ÞAÐ ÞÝÐI?
FYRIRGEFÐU AÐ
VIÐ RIFUMST! HVAÐ
SEGIRÐU UM AÐ
SÆTTAST?
SÁTTAKAKA!!
OG HVAÐ FENGUÐ ÞIÐ
YKKUR Í HÁDEGINU Í DAG?
PÍTSU
ÚÚÚ!
EIGIÐ ÞIÐ
AFGANGA?
AFGANGS
PÍTSA?…
Í ÞESSU
HÚSI?! Víkverji notar iðulega afbragðs-vefinn málið.is þegar hann er í
vafa um hvernig eigi að skrifa hlut-
ina. Þótt Víkverji þjáist af ólækn-
andi sjálfumgleði veit hann þó að
það er öruggara að fletta upp þegar
læðist að honum minnsti vafi en að
þumbast við. Vitaskuld staðfestir
uppflettingin allajafna tilfinningu
Víkverja, en vissulega kemur fyrir
að hann fer villur vegar og þá er eins
gott að villurnar birtist ekki á prenti.
x x x
Þegar réttritun er annars vegareru ekki allar heimildir jafn-
vígar. Í huga Víkverja á Stafsetn-
ingarorðabókin ávallt síðasta orðið.
Aðrar orðabækur eru iðulega örlát-
ari á kosti og kannski fullörlátar.
x x x
Nýlega rakst Víkverji á að eign-arfall fleirtölu orðsins regla var
skrifað regla, en ekki reglna eins og
hann á að venjast. Fremur en að
leiðrétta orðið einfaldlega fletti Vík-
verji orðinu upp á málið.is. Þar kem-
ur orðið fyrir í sex gagnasöfnum og á
augabragði er hægt að fá um það
margvíslegar upplýsingar. Þar er
Stafsetningarorðabókin og hún stað-
festi þá tilfinningu Víkverja að rita
skildi reglna.
x x x
Eitt gagnasafnanna nefnist Beyg-ingarlýsing íslensks nútímamáls
og þar voru hins vegar báðir rithætt-
irnir gefnir upp, regla og reglna.
Víkverji ákvað því að láta orðið
standa af ótta við að verða ella
stimplaður forpokaður málfarsfas-
isti.
x x x
Það runnu þó á hann tvær grímurþegar hann sá að orðið regla var
einnig skráð sem sagnorð með veikri
beygingu (þátíð reglaði!). Ekki dró
úr furðu Víkverja þegar hann sá að
þessi sögn kom ekki fyrir í neinu
hinna gagnasafnanna, sem mynda
leitargrunn málsins.is og hann velti
fyrir sér hvort hann hefði óvart leit-
að í beygingarlýsingu íslensks fram-
tíðarmáls. Eitt er í það minnsta ljóst
að þótt Víkverji hafi ekki reglað
mikið til þessa mun hann regla tals-
vert héðan í frá. vikverji@mbl.is
Víkverji
Munnur minn er fullur lofgjörðar um
þig, af lofsöng um dýrð þína allan dag-
inn.
(Sálm: 71.8)