Morgunblaðið - 09.05.2018, Page 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2018
www.apotekarinn.is
- lægra verð
REYKLAUS
VERTU
Í EITT SKIPTI FYRIR ÖLL MEÐ
Nicotinell
Nicotinell Mint/Fruit/Lakrids/IceMint/Spearmint lyfjatyggigúmmí, Nicotinell Mint munnsogstöflur, Nicotinell forðaplástur. Inniheldur nikótín.
Til meðferðar á tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf
á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
15%
afslátt
ur*
* 2MG og 4MG 204 stk
pakkningum. Gildir af öllum
bragðtegundum.
Náttúran, eða náttúruöflinöllu heldur, hafa veriðmeginviðfangsefnið ílistsköpun Rögnu Ró-
bertsdóttur um árabil. Á farsælum
ferli hafa kraftarnir og orkan sem
býr í náttúrunni verið henni
óþrjótandi brunnur og þangað hef-
ur hún sótt sér efnivið reglulega
og markvisst með söfnun efna eins
og rauðamalar, vikurs og skelja
sem hún umbreytir síðan í lista-
verk sem tekur mið af sýning-
arrýminu í hvert sinn.
Á sýningu hennar Milli fjalls og
fjöru sem nú stendur yfir í
Nýlistasafninu má sjá verk frá ní-
unda áratugnum og til dagsins í
dag. Fyrsta verkið sem mætir
áhorfandanum er einmitt elsta
verkið á sýningunni en það er gert
út reipi og hörþræði sem hefur
verið vafið kirfilega utan um lítinn
hringlaga spegil. Verkið „1984“
(1984) lætur ekki mikið yfir sér en
þegar áhorfandinn horfir á agnar-
smáa og óskýra spegilmynd sína í
gegnum þéttriðið hampreipið verð-
ur hann meðvitaður um tíma og
nákvæmni í vinnubrögðum lista-
mannsins. Í verkinu má sjá hvern-
ig hin ríka efniskennd, sem hefur
verið gegnumgangandi í verkum
Rögnu, kemur fram snemma á
ferlinum, nokkurs konar varða um
það sem framundan er. „Salt-
scape“ (2017-2018) er sería 2 x tólf
verka þar sem Ragna vinnur með
ýmist hvítt eða svart salt beint á
gler, við uppgufun vatns kristallast
það og umbreytist í óræð fíngerð
form. Gegnheilum, misstórum silf-
urplötum hefur verið komið fyrir á
nokkrum stöðum í rýminu (sumum
óvæntum) í verkum sem kallast
„Tímalandslag“ (2005-2018). Efna-
hvörf verða til þess að með tím-
anum fellur á silfrið – í stað speg-
ilgljáandi silfurmálmplötu verða til
undurfögur svört abstrakt form
sem draga fram umbreytinguna
sem verður með tímanum. Í nýj-
asta verkinu sem staðsett er líkt
og spegill á súlu fær áhorfandinn
enn sterkari tilfinningu fyrir tíma
og um leið hrörnun, spegilmyndin
sýnir ekki aðeins hvernig tíminn
markar manneskjuna sem speglast
í verkinu heldur einnig áþreif-
anlega umbreytingu efnisins.
Eins og áður hefur verið minnst
á eiga verk Rögnu oft í beinu sam-
tali við sýningarrýmið þar sem hún
vinnur iðulega staðbundin verk.
Ragna kastar muldum vikri úr
hraungosum í Heklu á vegginn í
verkinu „Lava Landscape“ (2018)
svo úr verður persónuleg teikning
sem kallast á við neonlitaðar plast-
agnir í verkinu „Nýtt landslag“
(2018) en efnið sem Ragna notar er
plastúrgangur sem hefur þjónað
sínum tilgangi sem skraut á dans-
gólfum Berlínarborgar. Verk úr
efnivið úr fjörunni í Arnarfirði á
Vestfjörðum eru staðsett innst í
sýningarsalnum, þeim hluta sem
snýr út að höfninni. Verkin spegla
bæði arkitektúr hússins en kallast
einnig á við iðandi hafnarlífið fyrir
utan. „Jökull“ (2018) er gerður úr
glærum glermulningi sem þekur
jafn stóran flöt og gluggi við hlið
þess, titill verksins og efniviður
verður að samtali milli hins mann-
gerða og hins náttúrulega.
„Sjávarlandslag“ (2018) er gert úr
ígulkerjum og krossfiski sem kom-
ið er fyrir á veggjum og olnbogas-
keljum sem komið er fyrir í ramma
á gólfinu. Ragna hefur minnst á að
olnbogaskeljarnar finnist alltaf í
minna og minna mæli í fjörunni og
er verkið beinskeytt dæmi um
breytingar á strandlengju landsins
og veltir upp spurningu um hvað
veldur.
Á sýningunni Milli fjalls og fjöru
hefur Ragna komið á stefnumóti
áhorfandans við hið kvika hreyfiafl
náttúrunnar, en hún vekur einnig
hugleiðingar um skeytingarleysi
mannsins gagnvart náttúrunni.
Samspil verkanna við rýmið hefur
tekist afar vel og list Rögnu er allt
í senn margslungin, falleg og bein-
skeytt í einfaldleika sínum. Óhætt
er að hvetja áhorfendur til að gefa
sér tíma til að gaumgæfa verkin og
missa ekki af þeim sem komið er
fyrir á óvæntum stöðum, en einnig
til að upplifa tímann sem lifir í
verkunum, tíma náttúruaflanna
sem umbreytt hefur verið með
natni og tíma listamannsins.
Stefnumót við síkvikt hreyfiafl náttúrunnar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Saltscape „Samspil verkanna við rýmið hefur tekist afar vel og list Rögnu er allt í senn margslungin, falleg og beinskeytt í einfaldleika sínum.“
Nýlistasafnið
Milli fjalls og fjöru –
Ragna Róbertsdóttir bbbbm
Sýningarstjórar: Þorgerður Ólafsdóttir
og Becky Forsythe. Hönnun sýningar:
Ásmundur Hrafn Sturluson.
Sýningin stendur til 19. maí 2018. Opið
þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-18 og til
kl. 21 á fimmtudögum.
ALDÍS
ARNARDÓTTIR
MYNDLIST
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tími náttúruafla Sjávarlandslag, á gólfi, og Lava Landscape á veggnum.
Nýtt landslag Verk sem Ragna
skapar úr plastúrgangi.