Morgunblaðið - 09.05.2018, Síða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2018
Forsvarsmenn menningarstofn-
unarinnar í Washingon DC sem
kennd er við John F. Kennedy
hafa tilkynnt að hún hafi svipt
leikarann og skemmtikraftinn
Bill Cosby heiðursviðurkenn-
ingum sem stofnunin hefur veitt
honum; fyrst árið 1998 fyrir
framúrskarandi framlag til
bandarískrar menningar og þá
hlaut hann árið 2003 viðurkenn-
ingu sem kennd er við Mark
Twain og veitt er fyrir húmor.
Er þetta í fyrsta skipti sem
Kennedy-stofnunin hefur svipt
listamann viðurkenningu en
ástæðan er sakfellingin sem
Cosby hlaut á dögunum fyrir að
hafa misnotað konu kynferðis-
lega.
Síðan Cosby var sakfelldur 26.
apríl síðastliðinn hafa fleiri stofn-
anir svipt Cosby heiðurstitlum og
viðurkenningum.
Í síðustu viku var þeim Roman
Polanski vikið úr bandarísku
kvikmyndaakademíunni og þá
hafa nokkrir háskólar afturkallað
heiðursdoktorsnafnbætur sem
hann hefur hlotið gegnum árin,
þar á meðal háskólinn þar sem
Cosby nam á sínum tíma, Temple
University.
Viðurkenningar teknar af Bill Cosby
AFP
Sekur Leikarinn Bill Cosby gengur frá
dómshúsinu eftir að hann var sakfelldur.
Alla þessa viku heldur Christie’s
uppboðshúsið í New York röð upp-
boða á listaverkum, listmunum og
húsbúnaði úr eigu hjónanna Peggy
og Davids Rockefeller. Mikill áhugi
hefur verið á uppboðunum enda telja
sérfræðingar að aldrei í sögunni
muni viðlíka upphæð hafa fengist við
sölu eins dánarbús; um 1.600 lista-
verk og gripir verða seld, að talið er
fyrir að lágmarki 650 milljónir dala –
sumir sérfræðingar í listmarkaði-
num telja fyrir allt að milljarð dala.
630 til 970 milljarða króna. Sölu-
andvirði allra verkanna verður skipt
milli tíu góðgerðarstofnana sem til-
greindar voru í erfðarskrá hjónanna
en Peggy lést árið 1996 og hann í
fyrra, 101 árs að aldri.
David Rockefeller var einn kunn-
asti listaverkasafnari samtímans og
mörg lykilverk úr safni þeirra verða
boðin upp – í fréttum segir að fimm
börn hjónanna og barnabörnin hafi
þegar fengið útdeilt verkum og um-
talsverðum auði.
Í Vanity Fair-tímaritinu er David
Rockefeller sagður hafa verið elsti
milljarðamæringur jarðar þegar
hann lést en hann var síðasta eftirlif-
andi barnabarn Johns D. Rockefell-
er Sr., stofnanda Standard Oil og
eins hinna upprunalegu „gúmmí-
baróna“. Fjölskyldan varð fræg fyr-
ir auð sinn og David Rockefeller
stýrði Chase Manhattan bankanum
en varð kunnur fyrir gjafmildi.
„Engin gaf meira fé til mannlífsins í
New York-borg,“ segir fyrrverandi
borgarstjóri, Michael Bloomberg.
Rockefeller-hjónin áttu nokkur
stór og afar ríkmannleg heimili, í
New York-borg, New York-ríki og á
Nýja-Englandi, með fjölda starfs-
manna og öll báru vönduðum smekk
og söfnunaráhuga hjónanna vitni.
Þau söfnuðu markvisst listaverkum
evrópskra og bandarískra meistara
19. og 20. aldar, húsgögnum, evr-
ópsku postulíni, asískri list og list
Suður-Ameríku, silfri, textíl og al-
þýðulist.
Einn af bestu söfnurunum
„Þetta er það besta af þeim
bestu,“ er haft eftir snyrtivörujöfr-
inum og listaverkasafnaranum Ro-
nald Lauder um listaverkasafn
Rockefeller-hjónanna. „Picasso, Ma-
net, Monet, Derain … allt sem ég sá
á heimilum þeirra var það besta sem
listamennirnir gerðu.“
Á meðal listaverka úr safninu sem
verða boðin upp má nefna lykilverk
eftir Pablo Picasso, Paul Gauguin,
Henri Matisse, Georgiu O’Keeffe og
Claude Monet – eftir hann verða
boðin upp fimm málverk, allt lyk-
ilverk frá ólíkum tímabilum og þar á
meðal vatnaliljuverk sem hjónin
héldu mikið upp á. Sérfræðingar
telja að hæsta verðið fáist fyrir verk-
ið „Stúlka með blómakörfu“ eftir Pi-
casso en það var áður í eigu skálds-
ins og safnarans Gertrude Stein.
Einnig verður selt lítið málverk af
epli sem Picasso gaf Stein í jólagjöf
árið 1914.
„David Rockefeller var einn af
bestu söfnurum 20. aldar, “segir
Glenn Lowry, forstöðumaður
MoMA. „Hann ólst upp við að safna
og sóttist aðeins eftir fyrsta flokks
meistaraverkum – algjörum lyk-
ilverkum – og eignaðist þau.“
David Rockefeller tók saman og
gaf út í takmörkuðu upplagi í fimm
bindum yfirlit yfir listaverk og list-
gripi í eigu þeirra hjóna, og greindi
einnig þar frá sögu verkanna.
„Þetta er það besta
af þeim bestu“
Uppboð á listaverkum og gripum Rockefeller-hjóna
AFP
Lykilverk Eitt hinna merku verka úr safni hjónanna, „Odalisque couchee
aux magnolias“ eftir Henri Matisse, á kynningu Christie’s fyrir uppboðið.
Dýrt „Stúlka með blómakörfu“ eftir
Picasso er verðmætasta verkið.
Eftirlæti „Nympheas en Fleur“ eftir
Monet eitt eftirlætisverka hjónanna.
Overboard
Gamamynd sem fjallar um hroka-
fullan og spilltan auðkýfing sem fellur
fyrir borð á snekkju sinni og skolar
minnislausum á land. Fyrrverandi
kærasta hans ákveður að nýta sér
minnisleysið og blekkja hann með því
að telja honum trú um að þau séu
hjón. Sá hrekkur vindur fljótlega upp
á sig.
Leikstjóri er Bob Fisher og með aðal-
hlutverk fara Eugenio Derbez og
Anna Faris.
Metacritic: 45/100
Bangsi og dóttir nornarinnar
Sænsk teiknimynd um Bangsa, besta
bangsa í heimi, sem berst gegn rang-
læti hvar og hvenær sem er. Dag einn
finnur Krissi Kló gull í stíflu bjórsins
og til þess að brjóta upp stífluna fær
Krissi hana Lovu, dóttur nornarinnar,
til að galdra Bangsa í burtu og getur
hann þá komist óhindraður að gull-
inu. Þar sem Bangsi er horfinn verða
börnin í skóginum að hjálpast að og
stöðva Krissa, en þá verða þau líka að
hætta að rífast, eins og segir á miða-
söluvefnum midi.is. Leikstjórar eru
Christian Ryltenius og Maria Blom.
Bíófrumsýningar
Minnisleysi og bangsi
Minnislaus Úr gamanmyndinni Overboard sem segir af minnislausum
auðkýfingi sem er beittur blekkingum af fyrrverandi unnustu sinni.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Sun 3/6 kl. 20:00 48. s
Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s
Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Fim 7/6 kl. 20:00 50. s
Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s
Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Lau 9/6 kl. 20:00 52. s
Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s
Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s
Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Lau 2/6 kl. 20:00 47. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s
Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s
Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Fim 10/5 kl. 20:00 29. s Fim 17/5 kl. 20:00 31. s Lau 19/5 kl. 20:00 33. s
Fös 11/5 kl. 20:00 30. s Fös 18/5 kl. 20:00 32. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 9/5 kl. 20:30 15. s Sun 13/5 kl. 20:30 22. s Fös 18/5 kl. 20:30 24. s
Fim 10/5 kl. 20:30 aukas. Mið 16/5 kl. 20:30 aukas. Lau 19/5 kl. 20:30 aukas.
Fös 11/5 kl. 20:30 16. s Fim 17/5 kl. 20:30 23. s
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Hin lánsömu (Stóra sviðið)
Sun 13/5 kl. 20:00 3. s Mið 16/5 kl. 20:00 4. s
Kraftmikil og kómísk saga 8 systkina sem lifa velmegunarlífi
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn
Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn
Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 9.sýn
Lau 12/5 kl. 19:30 6.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 8.sýn
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
Stríð (Stóra sviðið)
Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn
Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l
Faðirinn (Kassinn)
Sun 13/5 kl. 19:30 50.sýn
Síðustu sýningar komnar í sölu
Aðfaranótt (Kassinn)
Fös 11/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn
Lau 12/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn
Mið 16/5 kl. 19:30 3.sýn Mið 23/5 kl. 19:30 7.sýn
Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 9/5 kl. 20:00 Mið 16/5 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Oddur og Siggi (Á flakki um landið)
Þri 15/5 kl. 11:00
Vestm.eyjar
Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200