Morgunblaðið - 09.05.2018, Síða 33
Margar skærustu stjörnur dægurheimsins
vestanhafs sóttu á mánudagskvöldið var ár-
legan gala-kvöldverð í Metropolitan-safninu
í New York. Veislan var haldin til að safna fé
fyrir fata- og búningadeild safnsins og var
lagt upp með þema, „Guðdómleg klæði:
Tíska og kaþólskt ímyndunarafl“, og stjörn-
urnar hvattar til að ögra ímyndunaraflinu í
samstarfi við þá misfrægu tískuhönnuði sem
þær vinna með við að setja saman veislu-
klæði.
Að vanda vakti það mikla athygli þegar
veislugestir streymdu að og gengu upp
tröppurnar, allir prúðbúnir og sumir gríð-
arlega skrautlegir eins og sjá má á meðfylgj-
andi ljósmyndum, og stilltu sér þar upp fyrir
ljósmyndara. Rapparinn Chainz notaði tæki-
færið og bað sambýliskonunnar í orrahríð
leifurljósanna og athygli vakti að frum-
kvöðullinn Elon Musk, eigandi Tesla-
bílaverksmiðjunnar, mætti með kanadísku
tónlistarkonuna Grimes upp á arminn og
kynnti hana sem unnustu sína.
Hjón Fatahönnuðurinn Susie Cave og rokkhetjan Nick Cave prúðbúin.
Á gægjum Leikkonan Frances McDormand.Páfi Rihanna kom í perluprýddum páfaklæðum.
Vinir Svarklædd Madonna og hönnuðurinn
franski Jean Paul Gaultier mættu saman.
Höfuðdjásn Sarah Jessica Parker þótti skrautleg.
Par Teslaeigandinn Elon Musk kynnti söngkonuna Grimes sem unnustu.
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2018
ICQC 2018-20
Tíska &
förðun
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 18. maí
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 14. maí
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Fjallað verður um
tískuna í förðun,
snyrtingu, fatnaði,
fylgihlutum auk
umhirðu
húðarinnar,
dekur og fleira
AFP
Engill Katy Perry sveif á vængjum upp að safninu.
Höfuðfat Söngkonan Janelle
Monae var ein margra sem mættu
með áberandi höfuðfat.
Skrautleg klæði í
veislu í New York
Stjörnur lyftu sér upp
Flegin Kim
Kardashian
klæddist að-
skorinni flík.