Morgunblaðið - 09.05.2018, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 129. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Warnock sagði Kristbjörgu að Aron …
2. Dorrit bauð vinkonum sínum í boð
3. Tveir viðburðir í Hörpu afbókaðir
4. Lést nokkrum dögum eftir endurkomu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Heiðnar grafir í nýju ljósi nefnist
sýning sem opnuð verður í Þjóðminja-
safni Íslands í dag kl. 12. Til sýnis
verður úrval gripa úr fornleifaupp-
greftri á Dysnesi við Eyjafjörð, en í
fyrra fundust þar sex kuml og hefur
rannsókn á þeim varpað nýju ljósi á
greftrunarsiði í heiðni. »6
Grafir í nýju ljósi
Sjö listamenn
nefnist sýning á
vegum Listar án
landamæra sem
opnuð verður í
Galleríi Gróttu í
dag kl. 17 í
tengslum við 100
ára fullveldis-
afmæli Íslands.
Þar sýna Ísak Óli Sævarsson, Atli Við-
ar Engilbertsson, Sigrún Huld
Hrafnsdóttir, Karl Guðmundsson,
Erla Björk Sigmundsdóttir, GÍA –
Gígja Guðfinna Thoroddsen og Aron
Kale verk sem á einn eða annan hátt
tengjast sjálfstæði. Öll hafa þau verið
valin listamenn Listar án landamæra.
Sjö listamenn sýna
í Galleríi Gróttu
Íslenska óperan sýnir Mannsrödd-
ina eftir Poulenc í leikgerð og leik-
stjórn Brynhildar Guðjónsdóttur í
Menningarhúsinu Kviku í Vest-
mannaeyjum á morgun kl. 20. Óperan,
sem flutt er á íslensku, er dramatískur
einþáttungur sem lýsir
síðasta símtali konu
til elskhuga síns
sem hefur slitið
sambandinu. Kon-
una leika Auður
Gunnarsdóttir
og Elva Ósk
Ólafsdóttir.
Mannsröddin sýnd
í Vestmannaeyjum
Á fimmtudag (uppstigningardag) Breytileg átt og síðar sunnan
8-13 m/s, en norðaustan 10-15 á Vestfjörðum. Rigning með köfl-
um, hiti víða 5 til 10 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 13-18 m/s á Vestfjörðum, en
víða 8-15 annars staðar þegar líður á daginn. Rigning með köflum,
talsverð úrkoma á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 2 til 10 stig.
VEÐUR
KA hefur notað flesta nýliða
í fyrstu tveimur umferð-
unum í Pepsi-deild karla í
knattspyrnu. Srdan Tufegd-
zic, þjálfari Akureyrarliðs-
ins, hefur teflt fram fimm
leikmönnum. Keflavík er
hins vegar með flesta nýja
leikmenn í efstu deild að
meðtöldum erlendum leik-
mönnum, eða sjö talsins.
Þetta kemur m.a. fram í
yfirliti yfir fyrstu leiki deild-
arinnar. »4
KA og Keflavík
skera sig úr
Viljum spila á góðum
og sléttum völlum
„Einvígið hefur verið frábært. Hrað-
inn hefur verið mikill og alveg ótrú-
legt að sjá hvað liðin eru á háu plani.
Það er synd að annað liðið falli úr
keppni en hjá því verður víst ekki
komist,“ sagði Einar Andri Einarsson,
þjálfari Aftureldingar, um oddaleik
Selfoss og FH í undanúrslitum Ís-
landsmóts karla í handknattleik sem
fram fer í kvöld. »1
Selfoss og FH eru á
ótrúlega háu plani
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Smárabíó í Kópavogi hefur boðið upp á sérstakar
kvikmyndasýningar fyrir fólk í fæðingarorlofi
með ungu börnin undanfarin ár og hefur fram-
takið mælst vel fyrir. „Oftast hafa verið samtals
50 til 60 manns á tveimur sýningum en einu sinni
fengum við um 250 foreldra og jafnmörg börn,
sem við dreifðum í fimm sali, en þá var jafnframt
sérstök kynning 12 fyrirtækja á vörum fyrir ný-
bakaða foreldra,“ segir Ásta María Harðardóttir,
rekstrarstjóri Smárabíós.
Aðstæður í sölunum á þessum hádegissýn-
ingum eru öðruvísi en venjulega. Ljósin eru
dempuð en ekki slökkt og hljóðið er mun lægra en
á öðrum sýningum. Boðið er upp á skiptiborð og
hægt er að hita pela í sjoppunni auk þess sem for-
eldrarnir geta skilið barnavagna og kerrur eftir á
göngum til hliðar við sætaraðirnar. „Tilgangurinn
með þessu er að foreldrarnir geti komið með
börnin sín og horft á kvikmyndirnar í þægilegu
umhverfi,“ segir Ásta María. „Við reynum að sýna
nýjustu og bestu myndirnar og tökum fagnandi á
móti öllum ábendingum sem okkur berast í gegn-
um facebooksíðuna okkar sem og smárabio.is.
Auk þess sendum við út tilkynningu á alla sem eru
á foreldrabíóspóstlistanum okkar um hvað er
fram undan.“ (Skráning á https://www.smara-
bio.is/skemmtun/foreldrabio/.)
Sýningar mánaðarlega
Ásta María segir að þetta hafi verið reynt áður,
bæði í Smárabíói og í öðrum kvikmyndahúsum, en
engar svona sýningar hafi verið í gangi þegar
henni hafi þótt ástæða til þess að bjóða upp á
þennan kost. „Fyrir um þremur árum átti ég vin-
konur í fæðingarorlofi og var sjálf á leið í fæðing-
arorlof, sá fyrir mér að svona sýningar hentuðu
vel og við byrjuðum með þær,“ segir hún um
ákvörðunina. Sýningarnar væru líka auðveldar í
framkvæmd, starfsfólkið væri þegar í húsinu að
vinna og myndirnar væru til.
Þegar Smárabíó byrjaði á þessu voru sýning-
arnar annan hvern föstudag en nú eru þær fyrsta
föstudag í hverjum mánuði og hefjast klukkan 12
á hádegi. Yfirleitt er boðið upp á val á milli
tveggja mynda og því sýningar í tveimur sölum
samtímis. Miðinn kostar 1.190 kr. og allir sitja við
sama borð. „Það myndast góð stemning og engin
kippir sér upp við það þótt börnin hjali eða hlæi
því allir eru í sömu sporum,“ segir Ásta María.
Hún bætir við að stundum hafi eldri borgarar
komið á sýningarnar. „Þessi tími hentar þeim
greinilega vel og þeim finnst einnig krúttlegt og
róandi að sjá öll þessi litlu börn og foreldra
þeirra,“ segir hún.
Þessar bíósýningar eru fastur liður hjá sumum
vinahópum. Ásta María segir að hóparnir hittist
þá gjarnan á matsölustað, fái sér að borða og fari
svo í bíó. „Sumir foreldrar koma aftur og aftur og
ég hef kynnst mörgum mæðrum vegna þessara
sýninga,“ segir Ásta María og áréttar að feður
mæti líka þótt þeir séu í minnihluta. „Við viljum
gjarnan sjá fleiri feður,“ segir hún.
Vinkonurnar Þórdís Sif Arnarsdóttir með son-
inn Óliver Aron Melsted, þriggja mánaða, og Íris
Gunnarsdóttir með dótturina Elmu Davíðsdóttur,
fimm mánaða, mættu í foreldrabíó í fyrsta sinn sl.
föstudag og sáu íslensku kvikmyndina Varg.
„Okkur langaði til þess að gera eitthvað saman,“
sagði Þórdís Sif og Íris bætti við að langt væri síð-
an þær hefðu farið saman í bíó. Þær voru sammála
um að svona „mæðrahittingur“ með börnin skap-
aði skemmtilega stemningu og þær ætluðu að eiga
góðan dag saman. „Ég kom í bæinn frá Bifröst í
Borgarfirði og þetta er fyrsta stoppið,“ sagði Íris.
Spurðar hvort þetta væri byrjunin á hefð fyrir
sameiginlegum bíóferðum með börnin stóð ekki á
svarinu: „Það er aldrei að vita.“
Nýfædd börn með í bíó
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gaman saman Vinkonurnar Þórdís Sif Arnarsdóttir með soninn Óliver Aron Melsted og Íris
Gunnarsdóttir með dótturina Elmu Davíðsdóttur á foreldrasýningu í Smárabíói fyrir helgi.
Sérstakar sýningar í
Smárabíói í Kópavogi fyrir
fólk í fæðingarorlofi
Smárabíó Ásta María Harðardóttir í salnum
fyrir sýningu. Bekkurinn var síðar þétt setinn.
„Við viljum frekar spila fyrstu leikina
á góðum og sléttum völlum, og sjáum
alls ekki eftir því að hafa gert þetta.
Það hefði verið leiðinlegt að fara
strax á grasið okkar og eyðileggja
það. Í staðinn fáum við marga heima-
leiki á miðju sumri,“ segir KR-
ingurinn Pálmi Rafn
Pálmason en í dag gerir
Morgunblaðið upp 2.
umferð Pepsi-
deildar karla og
birtir úrvalslið
umferðar-
innar. »4