Morgunblaðið - 18.05.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2018
Kókosjógúrt
Fimm góðar ástæður til að velja lífræna jógúrt
Lífrænar
mjólkurvörur
• Engin aukaefni
• Meira af Omega-3
fitusýrum
• Meira er af CLA
fitusýrum sem byggja
upp vöðva og bein
• Ekkert undanrennuduft
• Án manngerðra
transfitusýra
www.biobu.is
Elliðaárdalurinn hefur ekki verið frið-
lýstur. Á það bendir stjórn Hollvina-
samtaka Elliðaárdalsins sem sendi
frá sér ályktun í gær þar sem hún
fagnaði umræðu um friðlýsingu El-
liðaárdalsins í aðdraganda kosninga.
Stjórnin segir mikla umræðu hafa
skapast vegna áforma um byggingu
mannvirkis í Elliðaárdalnum en árið
2016 hafi verið samþykkt vilyrði fyrir
úthlutun á lóð fyrir svokallað Bio-
dome Aldin með áformum um 1.500
m2 byggingu. Í dag sé gert ráð fyrir
að 3.800 m2 byggingu á 13.000 m2 lóð.
„Friðun með hverfisvernd í deili-
skipulagi er ekki sambærileg friðlýs-
ingu samkvæmt náttúruverndarlög-
um. [...] Fyrir liggur að tillögu um
friðun í deiluskipulagi með hverfis-
vernd frá árinu 2014 hefur ekki verið
fylgt eftir. Elliðaár og nærliggjandi
svæði eru því hvorki friðuð sam-
kvæmt deiliskipulagi né samkvæmt
náttúruverndarlögum. Samtökin
hvetja borgarstjórn til þess að frið-
lýsa Elliðaárdalinn,“ segir í ályktun
samtakanna.
Hvetja borgar-
stjórn til að friðlýsa
Elliðaárdalurinn er ekki friðlýstur
Morgunblaðið/Eggert
Elliðaárdalur Hollvinasamtökin
vilja standa vörð um lífríki dalsins.
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Ólíklegt er að ný hreppsnefnd Ár-
neshrepps, sem tekur til starfa eftir
kosningar 26. maí, geri breytingar á
aðalskipulagi sveitarfélagsins og
hindri þannig að fyrirhuguð Hval-
árvirkjun, sem er umdeild meðal
íbúanna, verði að veruleika. Þetta er
mat Evu Sigurbjörnsdóttur, núver-
andi oddvita
hreppsins. Sjálf
er hún eindreg-
inn stuðnings-
maður virkjunar-
innar.
Eva sagði í
samtali við Morg-
unblaðið í gær að
mikið þyrfti að
gerast til þess að
hætt yrði við
virkjunina. Það
væri þó ekki óhugsandi að ný
hreppsnefnd tæki málið upp að nýju.
„Allt getur svo sem gerst,“ sagði
hún. Sveitarstjórn á eftir að gefa út
framkvæmdaleyfi og það verður
ekki gefið út fyrr en eftir kosningar.
Fyrst þarf þó Skipulagsstofnun að
samþykkja breytingarnar á að-
alskipulaginu í þágu virkjunarinnar,
en stofnunin hefur gert at-
hugasemdir við það hvernig staðið
var að verki og bíður með staðfest-
ingu þangað til skýringar hafa feng-
ist frá hreppsnefndinni.
Svara Skipulagsstofnun
Eva segir að unnið sé að því að
svara fyrirspurn Skipulagsstofnunar
sem snýst um hæfi fulltrúa í hrepps-
nefnd, tilboð framkvæmdaaðila um
samfélagsverkefni og innviðaupp-
byggingu og hvort skipulagstillagan
hafi verið unnin af þeim aðila. Ekki
er víst að það svar verði tilbúið fyrir
kosningar, þar sem í mörg horn sé
að líta þessa dagana í Árneshreppi.
Þjóðskrá hefur verið með til at-
hugunar hvort fjölgun íbúa í sveitar-
félaginu að undanförnu byggist að
einhverju leyti á tilhæfulausum
skráningum lögheimila. Ákvað
hreppsnefnd því að samþykkja kjör-
skrá með fyrirvara. Eva segist búast
við að fá niðurstöðu frá Þjóðskrá
öðrum hvorum megin við helgina.
Sem stendur eru 65 á kjörskránni,
en í síðustu kosningum voru þeir 43.
Fjölgun er því um 40%..
Tilbúin að halda áfram
Enginn listi er í framboði í Árnes-
hreppi og fer því fram óhlutbundin
kosning þar sem allir íbúar 18 ára og
eldri eru í kjöri. Tveir hreppsnefnd-
armenn, sem andvígir eru virkjun-
inni, Ingólfur Benediktsson og
Hrefna Þorvaldsdóttir, hafa þó beð-
ist undan endurkjöri. Eva, sem er
hlynnt henni, er aftur á móti tilbúin
að halda áfram, en segir að ákvörðun
um næsta oddvita sé í höndum
hreppsnefndar þegar hún hefur ver-
ið kjörin.
Telur ólíklegt
að hróflað verði
við virkjuninni
Ekki þó óhugsandi, segir Eva Sigur-
björnsdóttir, oddviti Árneshrepps
Morgunblaðið/Golli
Drynjandi Mörgum er annt um hina
einstöku náttúru í Árneshreppi.
Sveitarfélag í sviðsljósi
» Árneshreppur er fámenn-
asta sveitarfélag landsins.
» Í hreppnum er hart deilt um
áhrif fyrirhugaðrar virkjunar á
náttúruna.
» Skipulagsstofnun vill fá
skýringar áður en hún stað-
festir breytt skipulag vegna
Hvalárvirkjunar.
» Óljóst er hvaða stefna verð-
ur uppi þegar ný hreppsnefnd
hefur verið kjörin.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Búið er að loka bílastæðinu við hlið
Rúmfatalagersins í Skeifunni í
Reykjavík, en þar verður settur upp
götumatarmarkaður í litlu gáma-
þorpi og verður hann starfræktur í
tvo mánuði í sumar, frá 1. júní til 29.
júlí. Verslunarmenn í nágrenninu eru
sumir hverjir ósáttir og segja skort
vera á bílastæðum vegna þessa, en
með lokuninni hverfa tímabundið um
70 bílastæði. Þá hefur einnig öðru
álíka stóru bílastæði á svæðinu, því
sem finna má við brunareitinn í Skeif-
unni 11, verið lokað vegna fram-
kvæmda sem þar standa yfir.
Úlfar Hinriksson, framkvæmda-
stjóri Suzuki á Íslandi, er einn þeirra
sem ósáttir eru við lokunina. „Ég á nú
hluta í þessu bílastæði og var alfarið á
móti því samkomulagi sem gert var
við Reykjavíkurborg, en það var nú
ekkert hlustað á það,“ segir hann í
samtali við Morgunblaðið.
Vandinn var fyrirséður
Að sögn Úlfars nýtti fyrirtæki
hans bílastæði á planinu meðal ann-
ars til þess að geyma uppítökubíla
auk þess sem planið var einnig notað
af starfsfólki fjölmargra fyrirtækja á
svæðinu og viðskiptavinum þeirra.
„Það var fyrirséð að það yrði bíla-
stæðaskortur í Skeifunni í sumar
vegna þess að verið er að byggja í
Skeifunni 11 og þar fóru á bilinu 70 til
80 stæði undir þá starfsemi. Svo
hverfa þarna um 70 stæði til viðbótar
og það veldur því að það eru engin
bílastæði eftir fyrir kúnnann – ekki
bara hjá okkur heldur hjá öllum hér í
kring,“ segir Úlfar.
Aðspurður segist Úlfar svo eiga
von á enn frekari vandræðum þegar
markaðurinn opnar á næstu vikum.
„Þetta er nú þegar orðið vandamál.
Stæðin voru mikið nýtt af starfs-
mönnum hér á svæðinu og ef það
verður einhver aðsókn á markaðinn
þá verður þetta enn verra. Ég hugsa
að flestir komi þangað á bíl.“
Auk götumarkaðar stendur til
að sýna leiki á HM í Rúss-
landi á stórum skjá á plan-
inu. Þá munu einnig þekkt-
ir tónlistarmenn og
plötusnúðar troða upp,
en opið verður
fimmtudag til
sunnudags, bæði
í hádeginu og
svo síðdegis
fram til
21:30.
Morgunblaðið/Valli
Autt Búið er að tæma bílaplanið og verður á næstu dögum hafist handa við að setja upp götumatarmarkaðinn.
Mikið nýtt bílastæði
víkur fyrir markaði
Skortur er á bílastæðum í Skeifunni eftir að tvö plön loka
„Við erum að fara að stilla upp
og gámarnir munu detta inn [í
dag] og um helgina,“ segir Ró-
bert Aron Magnússon, athafna-
maður og skipuleggjandi götu-
matarmarkaðarins í Skeifunni,
en búið er að loka og tæma bíla-
planið.
Aðspurður segist Róbert Aron
eiga von á um 10 til 11 stórum
gámum sem ramma eiga mat-
arþorpið inn, en inni í því verða
einnig borð til að fólk geti notið
seldra veitinga. Þá er jafnframt
von á stórum strætisvagni sem
nýttur verður sem kaffi-
aðstaða á svæðinu.
„Ég á von á því að
þetta verði mjög
skemmtilegt þegar
allt er komið upp og
í gang,“ segir
hann.
Uppstilling
að hefjast
MATARMARKAÐUR
Róbert Aron
Magnússon.
Eva
Sigurbjörnsdóttir
Þórður Sverr-
isson, stjórn-
arformaður tón-
listar- og
ráðstefnuhússins
Hörpu, telur sig
hafa stuðning
innan stjórnar til
að lækka stjórn-
arlaun að því er
fram kemur á
mbl.is. Þar segir Þórður að hann
ætli að leggja það til á næsta stjórn-
arfundi að fallið verði frá hækkun
stjórnarlauna sem samþykkt voru á
aðalfundi 26. apríl. Þar var sam-
þykkt að þóknun fyrir stjórnasetu
hækkaði úr 92.500 á mánuði í
100.000 kr. Þórður segir að það
hafi verið vanhugsað að hækka
stjórnarlaunin og hann vonist til
þess að starfsfólk Hörpu og stjórn-
endur haldi áfram að vinna að bætt-
um rekstri.
Stjórnarformaður vill
falla frá hækkun
stjórnarlauna í Hörpu
Harpa Tónlistar- og
ráðstefnuhús.