Morgunblaðið - 18.05.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.05.2018, Blaðsíða 36
FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 138. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Nafn konunnar sem lést 2. Áhættusamt að fljúga til Asíu 3. Flutti inn á æskuheimili … 4. Líkin liggja enn á víðavangi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Alþjóðlegi safnadagurinn er í dag og var tilkynnt í gær hvaða þrjú söfn eru tilnefnd til Íslensku safnaverð- launanna en það eru Grasagarður Reykjavíkur, Listasafn Árnesinga og Varðveislu- og rannsóknasetur Þjóð- minjasafns Íslands. Í umsögn val- nefndar segir m.a. um grasagarðinn að hann sé lifandi safn undir berum himni og standi fyrir öflugri fræðslu- starfsemi fyrir almenning og skóla- hópa. Listasafn Árnesinga bjóði upp á metnaðarfullar og fjölbreyttar sýn- ingar sem veiti gott aðgengi að mynd- listararfi þeim sem það varðveiti og um Þjóðminjasafnið segir m.a. að það hafi undanfarin ár tekið framfaraskref í varðveislumálum sem séu öðrum söfnum til fyrirmyndar. Þess má geta að sýning Sigrúnar Harðardóttur, Hver/gerði, verður opnuð í Listasafni Árnesinga á morgun kl. 15. Þrjú söfn tilnefnd  Tónlistarmaðurinn Prins Póló er nú rúmlega hálfnaður á hringferð sinni um landið og mun í kvöld halda tónleika í Bæjarbíói í Hafn- arfirði kl. 21 en annað kvöld kemur prinsinn fram á sama tíma í Midgard Base Camp á Hvolsvelli. Á sunnu- daginn lýkur tónleikaferðinni í Ha- varíi að Karlsstöðum í Berufirði þar sem prinsinn er með búskap ásamt fjölskyldu sinni. Hann mun koma fram einn og óstuddur með gítarinn að vopni, leika lög héðan og þaðan af ferli sínum og lög af nýútkominni breiðskífu sinni Þriðja kryddið. Þá mun hann einnig svara flestum spurningum úr sal og öllum viðeig- andi frammíköll- um, eins og hann orðar það í til- kynningu. Prinsinn lýkur hring- ferð sinni í Havaríi Á laugardag Suðaustan 15-23 m/s, hvassast suðvestanlands en sunnan 10-15 m/s síðdegis. Rigning, talsverð eða mikil á sunn- anverðu landinu. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast fyrir norðan. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-13 m/s og skúrir eða slydduél vestan til, en léttir til á austanverðu landinu. Hiti 3 til 12 stig, mild- ast austast. VEÐUR Nýliðar Fylkis eru í hópi efstu liða Pepsi-deildar karla í knattspyrnu eftir að hafa unnið ÍBV í Egilshöll í gærkvöld, 2:1. Fresta þurfti tveimur leikjum vegna veð- urs og því eru fjórir leikir á dagskrá í kvöld. Hins vegar var leikið í Kaplakrika þar sem FH-ingar unnu þriðja sigur sinn í sumar. FH vann 3:1-sigur á KA þar sem að Steven Lennon skoraði tvö mörk. »2 Nýliðarnir byrja af miklum krafti ÍBV er komið yfir á nýjan leik í rimm- unni við FH um Íslandsmeistaratit- ilinn í handknattleik karla eftir sjö marka sigur á heimavelli í gærkvöldi. Aron Rafn Eðvarðsson átti fram- úrskarandi leik í marki ÍBV-liðsins. Fjórða viðureign lið- anna verður í Kapla- krika síðdegis á morgun og með sigri í þeim leik hampa leikmenn ÍBV Íslandsbik- arnum. Vinni FH kemur til odda- leiks í Eyjum á þriðjudags- kvöld. »3 Eyjamenn komnir yfir á nýjan leik á móti FH Í tilefni af hálfrar aldar afmæli Fim- leikasambands Íslands kom fjöldi fólks saman í Laugardalshöll í gær. Þar settu afmælisgestirnir nýtt heimsmet þegar alls 607 ein- staklingar fóru í handstöðu á sama tíma. Sönnunargögnum verður nú skilað inn til Heimsmetabókar Guin- ness og þess beðið að hún staðfesti nýja heimsmetið. »1 Heimsmet í handstöðu féll í Laugardalshöll ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Grindvíkingurinn Alex Máni Pét- ursson hefur vakið athygli í pílu- kasti, varði Íslandsmeistaratitilinn í unglingaflokki í ár og sigraði í sama flokki 18 ára og yngri á opnu móti sem haldið var samhliða Norð- urlandamótinu í Helsinki í Finnlandi um liðna helgi. Alex Máni er í 8. bekk, fermdist í apríl sem leið og verður 14 ára í ágúst. Hann segir að árangurinn í Helsinki hafi komið sér á óvart. „Þetta var mjög gott, ég átti í mesta lagi von á öðru til þriðja sæti,“ segir hann. Keppt var í tveimur þriggja manna riðlum og léku sigurveg- ararnir til úrslita en Alex Máni lagði alla mótherja sína. Guðlaugur Gústafsson, afi Alex Mána, og Pétur Guðmundsson, faðir hans, hafa báðir verið vel liðtækir í pílukasti. Píla er valfag í Grunnskóla Grindavíkur og hafa öll námskeið verið full, að sögn Péturs, sem kenn- ir fagið. Alex Máni byrjaði hins veg- ar að kasta pílu með afa sínum, þeg- ar hann var átta ára. „Afi er fínn í pílu og hann benti mér á að prófa. Ég var bara að leika mér til að byrja með, kastaði bara pílunni eitthvað án þess að vita hvað ég væri að gera, en fannst það samt skemmtilegt. Þegar ég var 11 ára byrjaði ég svo fyrir al- vöru og fór á fyrsta mótið með pabba.“ Alex Máni segir að fyrsta mótið hafi virkað sem vítamínsprauta. „Ég spilaði vel og þess vegna fannst mér þetta enn skemmtilegra. Síðan hef ég mætt á eitt eða tvö mót í Keflavík eða Reykjavík í hverri viku.“ Fjölhæfur En það er ekki aðeins pílan sem heillar heldur æfir pilturinn jafn- framt körfubolta og er byrjaður í golfi. Hann segir að þetta rekist ekk- ert á enn sem komið er og bendir á að hann fari í æfingaferð með körfu- boltaliðinu til Bandaríkjanna í sum- ar og stefnt sé á Evrópumót ung- linga í pílukasti í Tyrklandi. „Ég næ því ekki að vera mikið í golfi í sumar, en eitthvað.“ Íslenska pílukastsambandið (ÍPS) byrjaði með unglingastarf í fyrra og sendi þá í fyrsta sinn lið á Evrópumót unglinga í Svíþjóð. Ís- lendingarnir stóðu sig vel og unnu allir leiki í keppninni. Alex Máni lenti í þriðja sæti af fjórum í sínum riðli. „Mér gekk ágætlega, vann einn leik, tapaði einum í odda og tapaði einum en ég komst ekki upp úr riðl- inum,“ segir hann. „Núna byrjaði ég illa án þess að tapa og síðan fór þetta að ganga mjög vel.“ Auk kennslunnar í Grindavík stjórnar Pétur æfingum unglinga hjá félögunum í Reykjavík og Reykjanesbæ. Hann segir að áhugi sé í Reykjanesbæ að taka pílukast upp sem valfag í grunnskólum eins og gert sé í Grindavík. „Þetta er mjög góð leið til að vinna með stærð- fræði á annan og skemmtilegan hátt en venjulega,“ segir hann og bætir við að það taki um þrjú til fimm ár að byggja upp gott unglingastarf. Það sé grunnurinn að góðu landsliði. Alex Máni segir að hann hafi ekki enn gert upp hug sinn hvort hann leggi meiri áherslu á körfu eða pílu í náinni framtíð. „Ég stefni á að verða atvinnumaður, hvort sem það verður í pílukasti eða körfubolta.“ Elsti landsliðsmaðurinn Ægir Örn Björnsson og Þorgeir Guðmundsson unnu til brons- verðlauna á Norðurlandamótinu. „Við fengum bronsið í liðakeppninni á NM í Noregi fyrir tveimur árum og þá vorum við Ægir í liðinu,“ segir Þorgeir, sem er elsti landsliðsmaður Íslands, þar sem ekki er keppt í ald- ursflokkum, en hann verður 74 ára í sumar. „Þetta gekk vel hjá okkur enda sagði Vignir Sigurðsson lands- liðsþjálfari að hann hefði aldrei séð mig spila eins vel,“ segir Þorgeir. Meistari Grindvíkingurinn Alex Máni Pétursson með verðlaunabikarinn. Stefnir langt í pílukasti Bronsverðlaun Ægir Örn Björnsson og Þorgeir Guðmundsson (t.h.) fengu brons á Norðurlandamótinu. Vignir Sigurðsson þjálfari á milli þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.