Morgunblaðið - 18.05.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.05.2018, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2018 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, nú er bingóið komið í sumarfrí en kaffið á sínum stað kl. 14.30. Allir velkomnir. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Vatnsleikfimi kl. 9.10. Vöfflukaffi kl. 14.30. Línudans / sumarfrí. Bólstaðarhlíð 43 Heimsókn frá unglingum í Háteigsskóla kl. 10-11. Landið skoðað kl. 13.35; Færeyjar. Minnum á Sumarstuðið hjá okkur fimmtudaginn 24 maí, allar nánari upplýsingar í síma 535-2760. Bústaðakirkja Vorferð verður farin miðvikudaginn 23. maí, síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 22. maí. Nánari upplýsingar um ferðina veitir Hólmfríður djákni í síma 5538500 eða í tölvupósti holmfridur@kirkja.is. Einnig eru upplýsingar um ferðina á heimasíðu kirkjunnar. Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl. 13.45. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir! Félagsmiðstöðin Vitatorgi Aðstoð við notkun á æfingatækjum kl. 9.30-10.30, göngutúr kl. 10.30, áhugasamir hittast við móttöku kl. 10.30. Föstudagshópurinn kl. 10-12, frjáls spilamennska kl. 13-16.30, bingó í sal kl. 13.30-14.30, Handaband, ókeypis vinnustofa í handverki sem er öllum opin kl. 13.30-16, vöfflukaffi kl. 14.30-15.30. Verið öll vel- komin til okkar á Vitatorg. Síminn okkar er 411-9450. Garðabær Jónshúsi / félags- og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jóns- húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20, Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni félagsvist ef óskað er. Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16, glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 9-12, prjónakaffi kl. 10-12, leikfimi gönguhóps kl. 10- 10.20, gönguhópur um hverfið kl. 10.30, bókband með leiðbeinanda kl. 13-16, kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 13 tréskurður, kl. 13 léttgönguhópur (frjáls mæting). Gullsmári FEBK Lokaball vetrarins í kvöld kl. 20-23. Hilmar og Kristján leika fyrir dansi. Miðaverð 1500 kr. Húsið opnað kl. 19.30. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9–12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og nýliðar velkomnir. Botsía kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Bingó kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30. Gerðubergskórinn syngur nokkur lög kl. 14.45. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, dagblöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, jóga hjá Carynu kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30 brids í handavinnustofu kl. 13. spilabingó kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Nánari upp- lýsingar um spilabingó á staðnum eða í síma 535-2720. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, botsía kl. 10.15, listasmiðjan er opin fyrir alla frá kl. 9-16, zumba dans leikfimi með Auði kl. 13, síðdegiskaffi kl. 14-15.30. Hæðargarðs- bíó kl. 14.30, allir velkomnir óháð aldri, nánari upplýsingar í Hæðar- garði 31 eða í síma 411-2790. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, guðsþjónusta kl. 14, föstudagsskemmtun kl. 14. Uppl. í s. 4112760. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga / hláturjóga Skóla- braut kl. 11. Spilað á Skólabraut kl. 13.30 og brids í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Nú er komið sumarhlé í söngnum. Móttaka muna fyrir hand- verkssýninguna stendur yfir. Vinsamlega skilið sem fyrst á Skóla- braut. Sýningin verður dagana 25., 26. og 27. maí nk. og verður opin frá kl. 13-18 alla dagana. Vöfflukaffi. Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-14. Upp úr kl. 10 er boðið upp á kaffi og gaman að koma í spjall og kíkja í blöðin. Ganga kl. 10. Hádegisverður kl. 11.30-12.15. Framhaldssaga kl. 13. Allir eru hjartan- lega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu í síma 568-2586. Stangarhylur 4 DANSINN færist frá sunnudegi 20. maí (hvíta- sunnudegi) til mánudags 21. maí kl. 20. Veitingar við flestra hæfi. Mætum öll. Zumba Gold tíminn á mánudag (annan í hvítasunnu) færist til miðvikudags 23. maí kl. 10.30. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Lok á heita potta og hitaveitu- skeljar Stærðir í cm: 200x200, 210x210, 220x220, 235x235, 235x217, 217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000 kg jafnaðarþunga af snjó. Vel ein- angruð og koma með 10 cm svuntu. Sterkustu lokin á markaðnum. Litir: Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að auðvelda opnun á loki. www.heitirpottar.is Sími 777 2000 Haffi og 777 2001 Grétar Ýmislegt Jessenius Faculty of Medicine Martin, Slóvakíu Inntökupróf verða haldin í læknis- fræði 1. júní í MK í Kópavogi. Margir Íslendingar stunda nám við skólann. Uppl. fs. 8201071 kaldasel@islandia.is Íbúð í 101 Rvk. til leigu gegn vinnu. 55 fm íbúð í 101 Reykjavík er til leigu gegn húshjálp og garðvinnu. Gæti hentað eldri borgara. Umsóknir sendist í tölvupóstfangið: gardurogthrif@gmail.com Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994   þú það sem    á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA ✝ Guðjón Svein-björnsson fæddist 3. desember 1929 að Stíflisdal í Þingvallasveit. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut þann 28. apríl 2018. Guðjón var sonur hjónanna Svein- björns Jónssonar frá Ferstiklu í Hval- firði, f. 11. nóvember 1891, d. 27. júlí 1964, og Jónínu Guðmunds- dóttir frá Eyrarbakka, f. 9. nóv- ember 1891, d. 18. febrúar 1946. Systkini Guðjóns voru Guð- mundur Sveinbjörnsson, f. 1. júlí 1922, d. 4. desember 1925, Oddur G. Sveinbjörnsson, f. 3. ágúst 1924, d. 5. desember 2004, og Rósa Sveinbjörnsdóttir, f. 26. jan- úar 1926, d. 12. september 2012. Árið 1949 hóf Guðjón sambúð með Ástu Björnsdóttur f. 22. maí 1921 í Reykjavík, d. 5. mars 2011. Þau gengu í hjónaband 3. sept- ember 1966. Synir þeirra eru 4. Jafnframt ólu þau upp 3 börn Ástu. Synir Guðjóns og Ástu eru: Logi Arnar f. 1951, giftur Jó- hönnu Guðbjörgu Jóhannesdóttur f. 1954. Þeirra börn eru Elfa f. 1975, Bryndís f. 1979 og Jóhannes Arnar f.1988. Sveinbjörn f. 1952, var giftur Önnu Kristínu Péturs- dóttur f. 1956. Þau skildu. Þeirra börn eru Birna f. 1974, Íris f. 1974 og Kristrún f. 1975. Börn Svein- björns og Christinu Gram eru Matthias f. 2004 og Sandra f. 2005. Guðmundur f. 1954, giftur Árnýju Jónínu Leifsdóttur f. 18. apríl 1956, d. 30. ágúst 1979. Dótt- ir þeirra er Árný Jónína f. 1979. Dóttir Guðmundar og Jónu Lovísu Jónsdóttur er Krist- ín Ásta f. 1993. Jón Ívar f. 1955. Auk þess ólu þau Ásta og Guðjón upp son- ardóttur sína Ár- nýju Jónínu Guð- mundsdóttur. Börn Ástu og Stefáns Sigurðs- sonar, f. 1910, d. 1988 eru: Björn Sigurður f. 1940, giftur Þorgerði Sigurjónsdóttur f. 1943. Börn þeirra eru Stefán f. 1965, Eyþór f. 1967, Ellert f. 1970 og Sigurjón Arnljótur f. 1960. Stella f. 1941, gift Ásmundi Reyk- dal f. 1945. Börn þeirra eru Jó- hann Kristján f. 1966 og Ög- mundur Eggert f. 1968. Fyrir átti Stella þá Stefán Örn f. 1962 og Guðjón Sævar f. 1963. Dóttir Ástu og Sigurvins Bergssonar, f. 1919, d. 1988, er Hulda f. 20. júlí 1947, d. 29. ágúst 2017, gift Halldóri Sigurðssyni f. 1945. Börn þeirra eru Hólmfríður f. 1964 og Sigurður Svan f. 1967. Barnabarnabörn Guðjóns og Ástu eru 36 og barnabarna- barnabörnin eru 9. Guðjón ólst upp hjá fjölskyldu sinni, bæði á Eyrarbakka og í Grímsnesinu, m.a. á Snæfoks- stöðum. Guðjón starfaði m.a. við bifvélavirkjun hjá Steindóri og á endurvinnslustöðvum Sorpu. Lengst af starfaði Guðjón sem bílstjóri á Nýju Sendibílastöðinni, en hann var einn af stofnendum stöðvarinnar. Útför Guðjóns fer fram frá Breiðholtskirkju í Mjódd í dag, föstudaginn 18. maí 2018, og hefst athöfnin kl. 13. Í dag fylgi ég Guðjóni afa mín- um til hinnar hinstu hvílu. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að alast upp hjá afa og ömmu í Leirubakk- anum. Mömmu minni kynntist ég aldrei en hún lést aðeins þremur dögum eftir að ég kom í heiminn. Þegar pabbi þurfti að snúa aftur til vinnu vantaði því einhvern til að hugsa um mig á meðan. Velti afi þá upp þeim möguleika við ömmu hvort hún vildi ekki taka verkefnið að sér. Úr varð að amma hætti að vinna úti og tók að sér að gæta mín. Nokkrum árum síðar var svo tekin sú ákvörðun að framvegis yrði heimili mitt hjá ömmu og afa, en þar hafði víst mikið að segja hversu hænd ég var orðin að þeim. Tel ég að þessar ákvarðanir hafi verið mér mjög gæfuríkar og verð ég afa ævinlega þakklát fyrir hans þátt í þeim. Afi var vinnusamur maður en ekki síður hæglátur og hlýr og með þægilega nærveru. Hann var tæknilega sinnaður og var kominn á MSN og Facebook löngu á und- an mér. Einnig hafði hann gaman af því að kveða vísur. Þegar ég hugsa til baka koma upp margar góðar minningar sem ég mun ætíð geyma. Hvort sem er úr Leir- ubakkanum, í sumarbústaðnum í Grímsnesi, á ferðalögum, á stór- viðburðum í fjölskyldunni og samverustundum á heimili mínu. Jafnframt er ég þakklát fyrir þær stundir sem við afi áttum saman á Landspítalanum síðastliðinn mán- uð. Verð ég afa ævinlega þakklát fyrir samfylgdina í þessu lífi. Var það mér sannur heiður að fá tæki- færi til að fylgja honum síðasta spölinn í því ferðalagi sem lífið er. Jafnframt veit ég í huga mér að þó afi hafi kvatt þá er hann ekki far- inn. Hvíl í friði, afi minn. Þín, Árný. Guðjón Sveinbjörnsson Allar minningar á einum stað MINNINGAR er fallega innbundin bók sem hefur að geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is. Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 til dagsins í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.