Morgunblaðið - 18.05.2018, Qupperneq 6
6
Með því að velja hráefnið
af kostgæfni, nota engin aukaefni
og hafa verkhefðir fyrri tíma
í hávegum, framleiðum við
heilnæmar og bragðgóðar
sjávarafurðir.
Söluaðilar:
10-11, Hagkaup, Iceland
verslanir, Kvosin, Melabúðin,
Nettó, Samkaup,
Sunnubúðin, Pure Food Hall
flugstöðinni Keflavík.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Sex sitjandi alþingismenn eru í fram-
boði í komandi sveitarstjórnarkosn-
ingum. Allir þingmennirnir eru neð-
arlega á lista og eiga því ekki
möguleika á að taka sæti í sveitar-
stjórnum. Þingmennirnir eru Berg-
þór Ólason, þingmaður Miðflokksins,
í 17. sæti fyrir Miðflokkinn á Akra-
nesi. Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir, þingmaður Viðreisnar, í 22.
sæti Viðreisnar í Hafnarfirði. Bryn-
dís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, er í 18. sæti listans í
Mosfellsbæ. Vilhjálmur Árnason,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er í
14. sæti flokksins í Grindavík. Will-
um Þór Þórsson, þingmaður Fram-
sóknar, er í 22. sæti Framsóknar í
Kópavogi og Inga Sæland, þingmað-
ur Flokks fólksins, er í 23. sæti síns
flokks í Reykjavík. Þá eru einnig átta
fyrrverandi alþingismenn í framboði.
Sjálfkjörið í Tjörneshreppi
Alls bárust 204 framboðslistar til
kjörstjórnar. Kosning fer fram í 72
sveitarfélögum en í 15 þeirra barst
enginn framboðslisti og verður því
óhlutbundin kosning eða persónu-
kjör í þeim sveitarfélögum. Í Tjör-
neshreppi barst einungis einn listi,
Tjörneslistinn, og verður því sjálf-
kjörinn. Ekki allir framboðslistar
innihéldu starfsheiti allra frambjóð-
enda. Voru einstakir framboðslistar
sem innihéldu einungis starfsheiti
hjá efstu frambjóðendum á lista. Á
framboðslista Framlags í Bolungar-
vík voru engin starfsheiti en allir
frambjóðendur eru skráðir sem íbú-
ar.
Fjöldinn allur í framboði
Um 3.500 Íslendingar eru í fram-
boði og eru störf frambjóðenda afar
mismunandi. Á framboðslistum er að
finna 243 bændur og er það allt frá
sauðfjárbændum yfir í ferðaþjón-
ustu- og kúabændur. Þá eru 255
frambjóðendur skráðir sem nemar
og þar er um að ræða allt frá
menntaskólanemum til dokt-
orsnema. Alls eru 25 sérfræðingar
skráðir í framboð en einungis níu af
þeim gefa upp í hverju þau eru sér-
fræðingar. Lögfræðingar í framboði
eru 47 talsins og þar að auki eru 8
lögmenn. Smiðir eru 59 talsins og er
þar um að ræða allt frá trésmiðum
yfir í gleraugnasmiði. Þá er einn
byssusmiður í framboði í Árborg.
Alls eru 26 starfandi lögreglumenn í
framboði. Þá er ein húsfreyja skráð í
framboð í Þingeyjarsveit ásamt einni
fyrrverandi húsfreyju í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi. Þá eru 37 verka-
menn á framboðslistum, 43 sjómenn
ásamt 5 prestum, 5 rithöfundum og 8
listamönnum.
Sex alþingsmenn í framboði
Um 3.500 manns í framboði í 72 sveitarfélögum Átta fyrrverandi þingmenn eru meðal þeirra
Fleiri hundruð bændur í framboði um allt land Á þriðja hundrað námsmanna gefa kost á sér
243
bændur
5
prestar
Störf frambjóðenda til sveitarstjórnarkosninga
Heimild: Dómsmálaráðu-
neytið/kosning.is* 47
lögfræðingar
8
lögmenn
142
framkvæmdastjórar
255
nemar
26
lögreglumenn
6
alþingismenn
43
sjómenn
*E
in
st
ak
a
fr
am
bo
ð
ge
fa
e
kk
i u
pp
st
ör
f f
ra
m
bj
óð
en
da
Morgunblaðið/Eggert
Kjörkassi Utankjörfundaratkvæða-
greiðslan er hafin í Smáralind.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2018
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Allir faglegir bæjar- og sveitar-
stjórar sem falla í flokk „pólitískra
stjórnenda“ eru karlmenn. Þetta
kom fram í erindi Evu Marínar
Hlynsdóttur, lektors í stjórnmála-
fræði við Háskóla Íslands, á fundi
sem Félag stjórnmálafræðinga hélt
í háskólanum í gær. Þar flutti Eva
Marín erindið: Ég er ekki pólitískur
og ekki ráðinn þannig inn? Upp-
lifun framkvæmdastjóra sveitarfé-
laga á hlutverki sínu, sem snerist
um hvernig bæjar- og sveitarstjór-
ar, sem ekki koma úr röðum kjör-
inna fulltrúa, upplifa starf sitt og
samband þeirra við sveitarstjórn.
Fyrirlesturinn vann Eva úr rann-
sókn sem hún framkvæmdi á ár-
unum 2010-2014 en hún sagði litla
breytingu hafa orðið við sveitar-
stjórnarkosningar 2014.
Eva Marín skipti stjórunum í
fimm flokka en fyrsti flokkurinn,
„hinir pólitísku stjórnendur“, vísar
til þeirra faglegu bæjar- og sveit-
arstjóra sem taka gjarnan þátt í
pólitískum verkefnum sem alla
jafna eru ætluð stjórnmálamönnum.
„Þetta eru þeir sem daðra við
stjórnmálin og telja sig órjúfanleg-
an hluta meirihlutans,“ sagði Eva
en athygli vekur að einungis karl-
menn falla í þennan hóp. „Þeir sitja
oft mjög lengi í sinni stöðu og telja
sig hafa öðlast lögmæti til pólitískr-
ar þátttöku með pólitískri teng-
ingu,“ bætti Eva við.
Á hinum enda skalans eru flokk-
arnir sem Eva kallar „hina ófúsu
þátttakendur“ og „hina pólitískt
hlutlausu“ en þeir sem falla í þessa
flokka eiga það sameiginlegt að
sitja skemur í embætti. „Þarna eru
að koma inn konur,“ sagði Eva en
til „ófúsra þátttakenda“ teljast þeir
sem vilja síður taka að sér hlutverk
út á við og einbeita sér heldur að
daglegum rekstri sveitarfélagsins.
Hinir „pólitískt hlutlausu“ eru eins
og nafnið gefur til kynna þeir sem
leggja mikla áherslu á að standa ut-
an við pólitíska umræðu. „Þarna er
meirihlutinn konur,“ sagði Eva.
Eva sagði rannsóknina sýna að
vinnuvernd faglega ráðinna bæjar-
og sveitarstjóra sé lítil sem engin.
„Völd og áhrif faglegra sveitar-
stjóra eru algjörlega háð því að
sveitarstjórn sætti sig við viðkom-
andi en oft er það svo þegar sveit-
arstjórar eru látnir taka pokann
sinn að hugmyndum þeirra um
hvað þeir eiga að vera að gera og
hugmyndum sveitarstjórnar um
hlutverk viðkomandi ber ekki sam-
an,“ sagði Eva.
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor
við Háskólann á Akureyri, flutti
einnig erindi á fundinum þar sem
hann fór í stuttu máli yfir sögu
sveitarstjórnarkosninga og kosn-
ingaþátttöku síðustu ár. Fjallaði
hann meðal annars um mögulegar
ástæður dræmrar kosningaþátttöku
en hún hefur fallið sérstaklega mik-
ið í sveitarstjórnarkosningum síð-
ustu ár.
Ólík upplifun bæjar-
og sveitarstjóra
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Upplifun Eva Marín Hlynsdóttir, lektor í stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands, flutti erindi á fundi sem Félag stjórnmálafræðinga hélt í gær.
Karlmenn pólitískari og sitja lengur
Biðlistar eftir hjúkrunarrýmum hafa
lengst verulega á seinustu árum.
Nýtt yfirlit landlæknis sýnir að í árs-
byrjun 2014 voru 226 einstaklingar á
biðlista eftir varanlegri búsetu í
hjúkrunarrými, eða 6,1 á hverja
1.000 íbúa 67 ára og eldri. Í árs-
byrjun 2018 voru hins vegar 362 á
biðlista, eða 8,6 á hverja 1.000 íbúa
67 ára og eldri. Bent er á í umfjöllun
á vef embættisins að ef fjöldi á bið-
lista er reiknaður á fjölda íbúa 80
ára og eldri biðu um helmingi fleiri í
ársbyrjun 2018 en 2014. Þá jafn-
gildir fjölgunin á biðlista á landsvísu
21% á undanförnum 15 mánuðum.
Biðtími eftir hjúkrunarrými hefur
líka lengst miðað við ástandið fyrir
fjórum árum. ,,Biðtími þeirra sem
hafa fengið varanlegt hjúkrunar-
rými það sem af er þessu ári var um
70% lengri að meðaltali en biðtími
þeirra sem fengu hjúkrunarrými á
fyrsta ársfjórðungi ársins 2014,“
segir í samantekt. Ástandið er mis-
jafnt eftir heilbrigðisumdæmum.
omfr@mbl.is
Helmingi fleiri bíða en 2014
Biðlisti eftir varanlegri búsetu í hjúkrunarrými
Fjöldi á hverja 1.000 íbúa*
*Staða á biðlista 1. janúar ár hvert
Heimild: Embætti landlæknis
30
25
20
15
10
5
0
2014 2015 2016 2017 2018
6,1
19,1
7,2
23,0
8,2
26,7
7,3
24,2
8,6
29,2
Fjöldi á hverja 1.000 íbúa 67 ára og eldri
Fjöldi á hverja 1.000 íbúa 80 ára og eldri
Löng bið eftir
hjúkrunarrými
skv. nýrri úttekt
2.981 hafði kosið utankjörfundar hjá
Sýslumanninum á höfuðborgar-
svæðinu kl. 17 í gær. 1.667 höfðu
kosið hjá öðrum sýslumönnum og
erlendum sendiráðum á sama tíma.
„Það gæti verið tvítalning í tölum
frá sendiráðunum og öðrum sýslu-
mönnum,“ segir Bergþóra Sig-
mundsdóttir, sviðsstjóri hjá Sýslu-
manninum á höfuðborgarsvæðinu.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
hefur staðið yfir frá 31. mars en fyr-
ir viku fluttist hún í Smáralindina.
Þar voru 347 búnir að kjósa kl. 17 í
gær.
Bergþóra telur að kosning utan-
kjörfundar sé svipuð og í síðustu
sveitarstjórnarkosningum.
Þeir kjósendur sem búa utan höf-
uðborgarsvæðisins og greiða utan-
kjörfundaratkvæði í Smáralind eru
hvattir til að vera búnir að kjósa fyr-
ir hvítasunnuhelgi ef þeir vilja vera
öruggir með að atkvæði þeirra kom-
ist til yfirkjörstjórna í viðkomandi
sveitarfélagi fyrir kjördag. Eftir það
er ekki hægt að tryggja að atkvæði
berist með pósti fyrir kjördag.
Hátt í 5.000
kosið utan-
kjörfundar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2018