Morgunblaðið - 18.05.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2018
Í gær gaf borgin út myndarlegtblað sem á að sýna hve glæsi-
lega hafi verið staðið að uppbygg-
ingu Miðborgarinnar og hve mikil
ánægja ríki með það sem gert hefur
verið á síðustu árum.
Tímasetningin,níu dögum fyr-
ir kosningar, er at-
hyglisverð, en þetta
er auðvitað samt al-
veg ótengt kosning-
unum.
Að undanförnu hefur fréttavefurborgarinnar verið afar virkur
og þar hefur mátt sjá fjölda frétta
um hve meirihlutinn, ekki síst borg-
arstjórinn, hefur verið duglegur.
Þetta tengist kosningum ekkiheldur á nokkurn hátt.
Á þriðjudag var á þessum fína oghlutlausa fréttavef sagt frá því
að ársreikningur Reykjavíkur-
borgar hafi verið samþykktur í
borgarstjórn.
Þar kom meðal annars fram aðútkoma ársreikningsins sé
„mjög jákvæð fyrir Reykjavíkur-
borg“.
Svo voru dregnar fram „lykil-tölur“ úr A-hluta reikningsins,
og þá mátti sjá að skuldir eru ekki
meðal lykiltalnanna, aðeins eigið
fé, sem sumir mundu halda að væri
síður lykiltala í þessu sambandi.
En fréttadeild borgarstjóra veitbetur og hún er vel meðvituð
um að það er lykilatriði að draga
ekki fram lykiltölur á borð við
skuldir borgarinnar, og þaðan af
síður vöxt skuldanna, fyrir kosn-
ingar.
Dagur B.
Eggertsson.
Lykilatriði og lykil-
tölur borgarinnar
STAKSTEINAR
Guðrún Ragnheiður Jónsdóttir, fv.
deildarstjóri hjá Hagstofunni, lést
á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í
Gautaborg í Svíþjóð 15. maí síð-
astliðinn, 58 ára að aldri.
Guðrún fæddist í Reykjavík 2.
febrúar árið 1960, dóttir Jóns Er-
lings Þorlákssonar trygginga-
stærðfræðings og Sigrúnar Brynj-
ólfsdóttur, húsmóður og fv.
fulltrúa hjá Háskóla Íslands.
Guðrún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Kópavogi árið
1980 og B.sc. prófi í stærðfræði
frá Háskólanum í Uppsölum 1987.
Hún starfaði fyrir félagasamtökin
Verdandi í Stokkhólmi til 1997 en
flutti þá til Íslands og hóf störf á
Hagstofu Íslands.
Á Hagstofunni starfaði Guðrún
til ársins 2016 við vísitöluútreikn-
inga, sem deildarstjóri vísitölu-
deildar og deildarstjóri þjóð-
hagsútreikninga opinberra
fjármála. Frá 2016 starfaði hún
sem sérfræðingur hjá Virk starfs-
endurhæfingarsjóði.
Á námsárunum í Uppsölum tók
hún mikinn þátt í félagsstarfi Ís-
lendinga á svæðinu, meðal annars
hjá Samtökum íslenskra náms-
manna erlendis og sem formaður
Félags Íslendinga á Norður-
löndum.
Guðrún var fjórða í röð sex
systkina, hún var ógift og barn-
laus.
Andlát
Guðrún
Ragnheiður
JónsdóttirGlæsilegt í
útskriftina
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
JAKKI
9.990,- 9.990,-
Veður víða um heim 17.5., kl. 18.00
Reykjavík 7 rigning
Bolungarvík 9 alskýjað
Akureyri 11 alskýjað
Nuuk 0 snjókoma
Þórshöfn 10 heiðskírt
Ósló 18 heiðskírt
Kaupmannahöfn 20 heiðskírt
Stokkhólmur 14 heiðskírt
Helsinki 17 skúrir
Lúxemborg 18 heiðskírt
Brussel 16 heiðskírt
Dublin 14 léttskýjað
Glasgow 15 skýjað
London 15 heiðskírt
París 18 heiðskírt
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 13 skýjað
Berlín 21 skýjað
Vín 15 rigning
Moskva 25 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 24 léttskýjað
Barcelona 21 heiðskírt
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 19 skúrir
Aþena 25 léttskýjað
Winnipeg 11 skýjað
Montreal 12 alskýjað
New York 16 rigning
Chicago 20 skýjað
Orlando 28 rigning
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:03 22:47
ÍSAFJÖRÐUR 3:40 23:19
SIGLUFJÖRÐUR 3:22 23:03
DJÚPIVOGUR 3:26 22:23
Fyrsta flugvél Icelandair frá Cleveland lenti á Keflavík-
urflugvelli í gærmorgun. Flugið tók um það bil sex
klukkustundir. Icelandair bætti fimm nýjum borgum í
Norður-Ameríku við leiðakerfi sitt nú í vor. Ásamt
Cleveland eru það Baltimore, Kansas City, Dallas og San
Francisco sem bætast í hóp 23 áfangastaða Icelandair í
Norður-Ameríku. Áður en vélin tók á loft frá Cleveland
var fyrsta fluginu fagnað með tónlistarflutningi Lay Low
og hátíðartertu. Cleveland er þekkt fyrir kraftmikið
lista- og íþróttalíf og er borgin gjarnan nefnd vagga
rokktónlistar. Þar er að finna safnið Rock and Roll Hall
of Fame Museum og flestir áhugamenn um körfuknatt-
leik ættu að kannast við körfuboltalið borgarinnar, Ca-
valiers, en með því leikur ein skærasta stjarna NBA, Le-
bron James, segir í tilkynningu frá Icelandair.
Icelandair flýgur til Cleveland
Ljósmynd/Icelandair
Hátíðarhöld Inga Lára flugstjóri sker kökuna.