Morgunblaðið - 18.05.2018, Page 12
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Sumir halda því fram að helstaframlag Ástralíu til heimstísk-unnar séu safaríflíkur og sport-sokkar. Fátt var þó um slíkan
fatnað á nýafstaðinni tískuviku í Sydney
og engin ein lína allsráðandi fremur en
yfirleitt á tískuvikum stórborga annars
staðar í heiminum. Undanfarin ár hefur
þar tíðkast að einstaka tískuhönnuðir
hafa storkað staðalímyndum kynjanna
og dubbað karlfyrirsæturnar upp í
kjóla og annan kvenlegan skrúða,
jafnvel þrælað þeim í hælaháa skó og
hlaðið á þá skarti. Þessarar tilhneig-
ingar hefur gætt hjá bæði hönn-
uðum sem eru gamlir í hettunni
sem og þeim sem eru nýkomnir
fram á sjónarsviðið. Enginn þarf
að velkjast í vafa um að innblást-
urinn er auknar umræður og
vangaveltur fólks um kynvitund;
tilfinninguna sem einstaklingar hafa
fyrir kynferði sínu. Ekki er nefni-
lega lengur um tvennt að velja.
Ástralski tískuhönnuðurinn
Gina Snodgrass var á þessum
nótum á fyrrnefndri tískuviku með línu
sem hún kallar The Dandy Boys, spjátr-
ungarnir eða pjattrófurnar svo snarað
sé á íslensku. Hún er þeirrar skoðunar
að skýr skil milli karlmennsku og kven-
leika séu ónauðsynleg og er hún stöðugt
sögð vera að ógna hefðbundnum kyn-
ímyndum.
Snodgrass er ung að árum, nýlega
útskrifuð með glans frá Tækniháskól-
anum í Sydney, og hefur þegar getið sér
gott orð í ástralska tískuheiminum.
„Spjátrungarnir“ voru útskriftarverkefni
hennar og eru þeir fyrirferðarmiklir á
vefsíðu hennar, www.ginasnodgrass.com.
Þar kveðst hún leggja mikla áhersla á
klæðskerasaum, einstakan og vandaðan
textíl og handbróderingu. „Ný, ögrandi
en um leið rómantísk nálgun í hönnun á
karlmannafatnaði,“ eins og þar stendur
og lesendur geta dæmt um á meðfylgj-
andi myndum.
Eða kannski á bæði kynin? Öll kyn-
in? Skyldi Snodgrass og tískuhönnuðum
á sömu línu fyrr en síðar takast að inn-
leiða sams konar tísku fyrir alla; kyn-
lausa tísku? Og hvað svo? Áhrifamáttur
tískunnar varir nefnilega ekki lengi og
hún er þekkt fyrir að fara í hringi.
Spjátrung-
arnir hennar
Snodgrass
Tískuhönnuðir eru margir hverjir heillaðir
af kynlausum flíkum. Ástralskir ekki síst eins
og sást á tískuvikunni í Sydney sem lauk í gær.
AFP
Tískuvikan í Sydney í Ástralíu
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2018
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
kr. 7.700
kr. 6.900
kr. 8.900kr. 33.400
Bekkur 100x40 cm
kr. 5.900
Smile 3ja sæta sófi kr. 190.700
Bakkar 8.800 / 6.900
kr. 14.900
kr. 93.800
kr. 4.300
Aðvörun! Umfjöllunarefniheimsins í dag er crossfit.Íþrótt sem margir elskaog enn fleiri elska að
hata. Sérstaklega þar sem sú við-
tekna skoðun virðist gilda að fólk
sem stundar crossfit tali ekki um
annað og ef það fer á æfingu þá
þurfi allir í heiminum að vita af því.
En er þetta virkilega svona? Ég
hélt að ég yrði aldrei hluti af þess-
um heimi. Ég var bara þessi týpa
sem mætti í spinning, hoppaði og
skoppaði á hjólinu, svitnaði og hélt
að þetta væri bara komið. Samt hef
ég aldrei getað gert armbeygju og
það að burðast heim með fleiri en
einn bónuspoka var hægara sagt en
gert.
Svo gerðist það fyrir tveimur ár-
um að ég tók viðtal við
ófríska stelpu sem tók 110
kg í hnébeygju með
bumbuna út í loftið. Ég
var sjálf ófrísk á þessum
tíma og fannst þetta svo
fáránlega nett að ég
ákvað að crossfit skyldi
ég prófa, þegar barnið
væri samt komið í
heiminn.
Í sumar á ég eins
árs crossfit-afmæli.
Og já ég ætla að
fagna því. Ég get
kannski ekki ennþá
gert dauða upphífingu
og ég á ansi langt í land með
handstöðupressurnar en ég
get gert armbeygjur og núna
nota ég bara „hook“ gripið þegar ég
þarf að bera marga innkaupapoka.
Það er kannski satt sem fólk vill
halda fram, að fólk sem stundi
crossfit tali ekki um annað, en það
er lítið mál að fá útrás fyrir crossfit-
talið við fólk sem hefur áhuga á því.
Ég hvet hins vegar fólk sem hefur
ekki prófað að hika ekki við það.
Crossfit-heimurinn fer sístækk-
andi og Ísland er á toppnum. Fyrir
nokkrum árum hafði ég ekki hug-
mynd um að heimsleikarnir í cross-
fit væru til en núna
get ég ekki beðið eft-
ir að fylgjast með
svæðakeppninni í
Evrópu fyrir heims-
leikana. Annie Mist
og Katrín Tanja,
tvöfaldir heimsmeist-
arar í greininni, eru á
meðal keppenda og ég
hlakka til að fylgjast
með þessum frábæru
fyrirmyndum í Berlín
um helgina. Svo eru
bara 75 dagar í sjálfa
heimsleikana.
»Í sumar á égeins árs cross-
fit-afmæli. Og já ég
ætla að fagna því
Heimur Erlu Maríu
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is