Morgunblaðið - 18.05.2018, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2018
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
amlegt ka
nýmalað,
en in h l i.
ynntu r Jura a v lar í Eirví . i óðum þér í kaffi.
s
k
é V ð jK k ffi
y
18. maí 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 104.3 104.8 104.55
Sterlingspund 140.62 141.3 140.96
Kanadadalur 81.57 82.05 81.81
Dönsk króna 16.496 16.592 16.544
Norsk króna 12.867 12.943 12.905
Sænsk króna 11.95 12.02 11.985
Svissn. franki 104.02 104.6 104.31
Japanskt jen 0.9425 0.9481 0.9453
SDR 148.17 149.05 148.61
Evra 122.86 123.54 123.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 148.1848
Hrávöruverð
Gull 1291.75 ($/únsa)
Ál 2312.0 ($/tonn) LME
Hráolía 78.1 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Eftirlitsstofnanir og stjórnmálamenn í
Bretlandi hafa í auknum mæli talað fyrir
mögulegri uppskiptingu á stóru endur-
skoðunarfyrirtækjunum fjórum. Þrýst-
ingur hefur aukist verulega að KPMG,
Deloitte, EY og PwC verði skipt upp, eft-
ir gjaldþrot breskra stórfyrirtækja sem
vakti upp spurningar um gæði endur-
skoðunar og ráðgjafar fyrirtækjanna, að
því er fram kemur í Financial Times.
Í nýrri þingskýrslu sem kynnt var í vik-
unni eru yfirvöld hvött til þess að skilja
ráðgjafastarfsemina frá endurskoð-
uninni. Eftirlitsstofnanir fundu alvarlega
vankanta á tveimur af fimm endurskoð-
unum sem rannsakaðar voru víðs vegar
um heiminn á síðasta ári. Nánar er fjallað
um málið á mbl.is.
Þrýst á uppskiptingu
endurskoðunarrisa
STUTT
anlegt við þá stöðu sem sjóðurinn er
í gagnvart rekstraraðilanum, Arion
banka.
„Frjálsi sker sig úr öðrum sjóðum
held ég, hann er með 55.000 sjóð-
félaga en lætur svo einhvern úti í
bæ ráðstafa sínum hagsmunum.
Sjóðurinn er ekki með neina starfs-
menn og enga starfsstöð til að und-
irstrika sjálfstæði sjóðsins. Meira að
segja framkvæmdastjóri sjóðsins er
á launaskrá hjá bankanum.Við
hvern hefur sá maður trúnaðar-
skyldur, sjóðinn eða bankann? Ég
spyr um þetta en Fjármálaeftirlitið
ekki, sem er þó eftirlitsaðilinn. Þá
er kveðið á um það í lögum frá 2017
að lífeyrissjóðir skuli hafa sérstakan
áhættustjóra, sem ekki á að vera
hægt að segja upp án aðkomu
stjórnar. Til að tryggja sjálfstæði
hans gagnvart þeim sem taka fjár-
festingarákvarðanir fyrir sjóðinn.
Samkvæmt upplýsingum frá FME
er þessi áhættustjóri starfsmaður
Arion banka. Hvernig má það vera?
Ég spurði FME hvar í lögum um líf-
eyrissjóði væri heimild til að fram-
selja áhættueftirlitið til sama aðila
og framkvæmir fjárfestingar fyrir
lífeyrissjóð. Ég hef eftir nokkra
mánuði ekki fengið svar þess við
spurningunni,“ segir Hróbjartur.
Hann segir einnig mjög aðfinnslu-
vert að sama endurskoðunarfyrir-
tæki annist endurskoðun Frjálsa og
Arion banka.
„Allt ber þetta að sama brunni og
nú verður að tryggja að sjóðfélagar
fái fulla stjórn á sjóðnum sem ber
ábyrgð á lífeyriseign þeirra. Ef ég
næ kjöri verð ég sjálfsagt leiðinleg-
asti stjórnarmaðurinn, að mati
bankans.“
Vilja auka aðkomu sjóðfélaga
Stjórn sjóðsins vill í tillögum sem
hún leggur fyrir aðalfund auka að-
komu sjóðfélaga við val á stjórn-
armönnum. Þannig er lagt til að í
stað þess að Arion banki tilnefni
þrjá af sjö stjórnarmönnum verði
allir stjórnarmenn kosnir á aðal-
fundi. Samhliða þeirri breytingatil-
lögu gerir stjórnin það að tillögu
sinni að sérstök valnefnd verði
starfrækt sem hafi ráðgefandi hlut-
verk vegna kosningar á stjórnar-
mönnum á hverjum tíma og leggi
fram tillögu sína í þeim efnum. Til-
lagan miðar að því að nefndin, sem
skipuð verði þremur einstaklingum,
samanstandi af aðila sem stjórnin
sjálf tilnefnir, öðrum sem Arion
banki tilnefni og þriðja aðilanum
sem tilnefndur verði af utan-
aðkomandi aðila sem stjórn fái til
verksins.
Morgunblaðið/Eggert
Stór sjóður Frjálsi er sjötti stærsti lífeyrissjóður landsins en hrein eign
hans reyndist vera ríflega 210 milljarðar króna um nýliðin áramót.
Telja tengsl milli stofnananna tveggja kalla á alvarlega hagsmunaárekstra
Kalla eftir aðskilnaði Frjálsa
lífeyrissjóðsins og Arion banka
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Kosið verður um tvö stjórnarsæti af
sjö hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum á
ársfundi sjóðsins sem haldinn verð-
ur 30. maí næstkomandi. Margt
bendir til þess að tekist verði á um
sætin tvö en tveir einstaklingar,
sem ekki eiga sæti í stjórn, hafa gef-
ið kost á sér. Báðir kalla þeir eftir
því að tengsl sjóðsins og Arion
banka verði endurskoðuð. Í dag er
Arion banki rekstraraðili sjóðsins
og skipar þrjá stjórnarmenn af fjór-
um.
Hróbjartur Jónatansson lögmað-
ur og Halldór Friðrik Þorsteinsson,
fyrrverandi eigandi H.F. Verðbréfa,
hafa ákveðið að gefa kost á sér til
stjórnarsetu. Í samtali við Morg-
unblaðið staðfesta þeir báðir að með
framboðum sínum vilji þeir beita
sér fyrir því að sjálfstæði sjóðsins
verði betur tryggt og ásýnd sjóðsins
endurspegli að sjóðfélagar ráði
hagsmunum hans.
„Það er ljóst að Arion banki og
forverar hans hafa farið með sjóðinn
sem sinn eigin og það er ekki ásætt-
anlegt lengur, að mínu mati. Það
eru 55 þúsund sjóðfélagar sem eiga
réttindi í honum og þeir hafa hingað
til haft fremur takmarkaða sýn á
hvernig hagsmunum sjóðsins er
ráðstafað. Það sem vakti sjóðfélaga
til raunveruleikans var þessi glóru-
lausa fjárfesting í þessu fjárfesting-
arverkefni sem kennt er við United
Silicon, sjóðfélagar horfðu, eftir á
raunar, upp á fjármuni setta í glóru-
laus verkefni á vegum bankans sem
fer í raun með alla hagsmuni hans.
Þar réðst sjóðurinn í 1.200 milljóna
fjárfestingu í United Silicon að
frumkvæði bankans, sem átti sjálfur
mikilla hagsmuna að gæta, sem töp-
uðust. Vegna þess máls hefur
stjórnin glatað trausti sjóðfélaga,
það held ég að sé alveg ljóst,“ segir
Hróbjartur.
Auki svigrúm stjórnarinnar
Halldór Friðrik hefur lagt form-
lega tillögu fram fyrir ársfundinn
sem felur í sér breytingu á grein 4.9
í samþykktum sjóðsins.
„Með því fellur niður grein sem
kveður á um að Arion banki skuli
annast daglegan rekstur sjóðsins.
Þessi grein bindur að mínu mati um
of hendur stjórnarinnar,“ segir
Halldór Friðrik. Hann segist finna
að sjóðfélagar kalli eftir breytingum
í þessa veru.
Hróbjartur segir margt óásætt-
Arion banki tilkynnti í gær að stefnt
væri að skráningu bankans í íslensku
og sænsku kauphallirnar á fyrri
helmingi ársins. Arion banki yrði
þannig fyrsti íslenski bankinn til þess
að verða skráður á Aðallista Kaup-
hallarinnar frá hruni.
Í tengslum við skráninguna verða
boðnir út hlutir sem nema að minnsta
kosti 25% af útistandandi hlutafé
bankans. Endanleg stærð útboðsins
verður hins vegar tilkynnt í tengslum
við útgáfu skráningarlýsingar.
Fram kemur í tilkynningu að
stjórn Arion banka sé meðal annars
að skoða þann möguleika að losa Val-
itor út úr samstæðunni á næstunni,
þó að endanleg ákvörðun liggi ekki
fyrir.
Ríkið fellur frá forkaupsrétti
Jafnframt tilkynnti fjármála- og
efnahagsráðuneytið í gær samkomu-
lag við Kaupþing þess efnis, að for-
kaupsréttur ríkisins á hlutabréfum í
Arion banka muni ekki gilda við
skráningu bankans á markað og sölu
á hlutum Kaupþings í tengslum við
hana. Forkaupsrétturinn mun þó
standa að öðru leyti óhaggaður eftir
það.
Söluandvirði þeirra hlutabréfa
sem seld verða í tengslum við skrán-
ingu bankans verður greitt inn á
skuldabréf sem Kaupþing gaf út í
tengslum við stöðuleikasamninga og
nema eftirstöðvar þess nú 29 millj-
örðum króna. Söluandvirði umfram
eftirstöðvar skuldabréfsins munu svo
skiptast á milli ríkisins og Kaupþings
í samræmi við afkomuskiptasamning
sem skilgreindur var í stöðugleika-
samningunum.
Morgan Stanley, Citigroup,
Carnegie og fyrirtækjaráðgjöf Arion
banka leiða útboðið, en auk þess taka
þátt í því Deutsche Bank, Goldman
Sachs, Fossar markaðir, Íslands-
banki, Landsbankinn og Svenska
Handelsbanken. steingrimur@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Skráning Hin sænska Eva Ceder-
balk er stjórnarformaður Arion.
Tvöföld skráning
í bígerð hjá Arion
Skráður á Ís-
landi og í Svíþjóð
fyrir mitt árið
Í Morgunblaðinu á miðvikudag var
því haldið fram að eignarhlutur
Magnúsar Halldórssonar, ritstjóra
Vísbendingar, í Kjarninn Miðlar
ehf., næmi 10,36%. Hið rétta er að
eignarhlutur hans er 11,71%.
LEIÐRÉTT