Morgunblaðið - 18.05.2018, Qupperneq 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2018
Á uppboði á myndlist 20. aldar hjá
Christie’s uppboðshúsinu í vik-
unni, voru meðal annars seld verk
eftir tvo af stórmeisturim liðinnar
aldar, þá Constantin Brancusi og
Kazimir Malevich, fyrir hærra
verð en áður hefur verið greitt
fyrir verk eftir þá.
Verk úr bronsi eftir Brancusi
frá 1932, La Jeune Fille Sophisti-
quée (Portrait de Nancy Cunard),
var slegið hæstbjóðanda fyrir 71
milljón dala, rúma 7,4 milljarða
króna. Verkið mótaði listamað-
urinn með Nancy Cunard í huga
en hún var erfingi skipafélags og
áberandi í samkvæmislífi þess
tíma.
Brancusi var einn af merkustu
skúlptúristum 20 aldar. Verkið
eftir hann var selt af börnum
hjóna sem keyptu það af lista-
manninum í vinnustofu hans árið
1955 fyrir um 5000 dali.
Enn hærra verð og hæsta verð-
ið á uppboðinu, 85,8 milljónir dala,
nær níu milljarðar kr., var greitt
fyrir Suprematist Composition frá
1916 eftir rússneska módernistann
Kazimir Malevich, frumkvöðul
geómetrískrar abstraksjónar. Er
það hæsta verð sem greitt hefur
verið fyrir myndverk eftir ein-
hvern rússnesku módernistanna.
Dýrir módernistar
AFP
Brons Portrettið eftir Brancusi var
selt fyrir rúma 7,4 milljarða króna.
AFP
Módernismi Málverk Kazimir Malevich kostaði nær níu milljarða kr.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Seltjarnarneskirkja er mér mjög
kær og gott að sýna þar,“ segir Her-
dís Tómasdóttir, myndlistarmaður
og textílhönnuður, sem um þessar
mundir sýnir listvefnað sinn og
teikningar í Seltjarnarneskirkju.
Með henni sýnir Ingunn Benedikts-
dóttir glerlistakona, en sýningin er
hluti af Listahátíð Seltjarnarnes-
kirkju sem hófst fyrr í maí. Verkin
verða til sýnis næstu vikur.
„Þegar listvinafélag Seltjarnar-
neskirkju bauð okkur Ingunni, sem
á glerverk í anddyri kirkjunnar, að
sýna í kirkjunni kom ekki annað til
greina en að þiggja það boð,“ segir
Herdís og tekur fram að það hafi
tekið nokkurn tíma fyrir sig að velja
saman verk sem mynduðu góða
heild. „Ofnu verkin eru nær öll í ann-
arra eigu, ýmist opinberri eða stofn-
ana, en ég fékk þau að láni til að
sýna.“
Birtan frá hafinu mikilvæg
Aðspurð segist Herdís tengjast
Seltjarnarnesinu og Seltjarnarnes-
kirkju sterkum böndum. Fyrir tæp-
um tveimur áratugum vann hún að
beiðni sóknarnefndar Seltjarnarnes-
kirkju veggmyndina „Frá myrkri til
ljóssins“ sem prýtt hefur kirkjuna
síðan. „Ég er tiltölulega nýflutt aftur
á Seltjarnarnesið eftir að ég fluttist í
burtu í tvö ár, en það togaði í mig að
flytja aftur til baka,“ segir Herdís,
sem þar áður hafði búið á Seltjarn-
arnesinu í yfir fjörutíu ár. „Hér er
gott að búa, enda stutt í náttúruna
og birtan frá hafinu er mér mikilvæg
við mína listsköpun, enda bjó ég við
ströndina í yfir fjörutíu ár. Auk þess
sem fólkið er gott og samfélagið
einnig,“ segir Herdís, sem nýverið
lauk við að koma sér upp smá vinnu-
aðstöðu heima.
Ég hef alltaf teiknað mikið
„Ég er enn að vefa,“ segir Herdís,
sem í ofnu verkum sínum vinnur
fyrst og fremst með hör og ull auk
þess sem hún nýtir koparþráð og
snæri sem hún bæði litar og aflitar,
enda litar hún allt sitt efni sjálf.
„Náttúran veitir mér innblástur í
verkum mínum. Ég reyni að einfalda
formin þangað til þau eru orðin að
geómetrískum formum,“ segir Her-
dís og bendir á að ofin verk krefjist
mikils undirbúnings.
„Þetta er knappt form, það er
bara lárétt og lóðrétt. Þess vegna
krefst það mikillar forvinnu í formi
bæði skissuvinnu og útreikninga til
þess að þetta gangi upp. Þegar kem-
ur að sjálfum vefnaðinum krefst það
ótrúlega mikillar þolinmæði. Mér
þykir gott að ná að vefa 10 cm á dag í
myndvef,“ segir Herdís og tekur
fram að það taki vikur og jafnvel
mánuði að vinna eitt ofið verk frá
grunni.
Spurð um teikningarnar segist
Herdís hafa unnið þær á síðasta ári.
„Ég hef alltaf teiknað mikið. Ég
lærði verkfræðiteiknun og vann í
mörg ár á verkfræðistofu áður en ég
fór í Myndlista- og handíðaskóla
Íslands. Ég nota millimetrapappír,
sem tengist tækniteikningunni og
bindifræði í vefnaði þegar maður
býr til mynstrin. Mér finnst þetta
skemmtilegur pappír til að vinna
með.“
Svo skemmtilega vill til að báðar
dætur Herdísar, Kristín Vilborg og
Sigga Björg, eru líka myndlistar-
konur. Spurð hvort listrænn þráður
leynist í genunum segir Herdís ekki
ólíklegt að þær hafi orðið fyrir ein-
hverjum áhrifum. „Pabbi þeirra var
líka mjög flinkur í höndunum og
teikningu, þannig að kannski kemur
þetta frá okkur báðum,“ segir Her-
dís, en eiginmaður hennar heitinn
var Sigurður Oddsson, þjóðgarðs-
vörður á Þingvöllum og byggingar-
tæknifræðingur.
Vefnaðurinn „krefst ótrú-
lega mikillar þolinmæði“
Herdís Tómasdóttir sýnir verk sín í Seltjarnarneskirkju
Morgunblaðið/RAX
Listvefnaður Frá myrkri til ljóssins nefnist veggmyndin til vinstri á myndinni sem Herdís Tómasdóttir gerði árið
1999 að beiðni sóknarnefndar og prýtt hefur Seltjarnarneskirkju síðan. Hægra megin er veggmyndin Blámi.
Trúarleg tákn Til hægri má sjá veggmyndina Glóð og í framhaldinu eru
teikningar með túlkun Herdísar á trúarlegum táknum frá síðasta ári.
Ljós Skor nefnist þessi veggmynd.
Listakonan Herdís býr á Seltjarnarnesi og er þar með vinnuaðstöðu.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s
Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Fim 7/6 kl. 20:00 50. s
Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s
Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s
Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s
Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s
Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s
Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Fös 18/5 kl. 20:00 32. s Fös 25/5 kl. 20:00 34. s
Lau 19/5 kl. 20:00 33. s Sun 27/5 kl. 20:00 35. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Fös 18/5 kl. 20:30 24. s Fim 24/5 kl. 20:30 aukas. Lau 26/5 kl. 20:30 aukas.
Lau 19/5 kl. 20:30 aukas. Fös 25/5 kl. 20:30 aukas. Fim 31/5 kl. 20:30 aukas.
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn
Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fös 25/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 9.sýn
Lau 26/5 kl. 19:30 8.sýn Fös 8/6 kl. 19:30 10.sýn
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
Stríð (Stóra sviðið)
Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn
Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l
Mystery boy (Stóra sviðið)
Fim 24/5 kl. 19:30
MYSTERY BOY (Yfirnáttúruleg ástarsaga)
Aðfaranótt (Kassinn)
Fös 18/5 kl. 19:30 5.sýn Mið 23/5 kl. 19:30 7.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn
Lau 19/5 kl. 19:30 6.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 10.sýn
Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200