Morgunblaðið - 26.05.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 26.05.2018, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 2 6. M A Í 2 0 1 8 Stofnað 1913  122. tölublað  106. árgangur  INNSETNINGAR- GJÖRNINGUR Í VINABÆ KROSSNEFUR RUGLAR TÍMATALIÐ FUGLAR 18FREE PLAY 46 Kosið verður til sveitarstjórna í 71 sveitarfélagi í dag. Sveitar- félögunum fækkar um tvö vegna sameininga á Suðurnesjum og Austfjörðum og sjálfkjörið er í einu, Tjörneshreppi. Á kjörskrárstofni sem Þjóðskrá Íslands vann fyrir sveitar- stjórnirnar eru liðlega 248 þúsund manns á kjörskrá. Eru það um 8.200 fleiri en í kosningunum fyrir fjórum árum. Á kjörskrá eru alls tæplega 12 þúsund erlendir ríkisborgarar. Rólegt hefur verið yfir kosningabaráttunni en víða er tvísýnt um úrslit. Í gær birti Ríkisútvarpið nýja skoðanakönnun um fylgi flokkanna í Reykjavík og þar reyndist Sjálfstæðisflokk- urinn vera kominn með meira fylgi en Samfylkingin og núver- andi meirihluti fallinn. Kjörstöðum verður lokað í síðasta lagi klukkan 22 í kvöld og búast má við fyrstu tölum úr talningu fljótlega eftir það. »2 Frekar rólegt hefur verið yfir atkvæðagreiðslu utan kjör- fundar. Í gær greiddu 2.318 atkvæði hjá sýslumanninum á höf- uðborgarsvæðinu. Í heildina hafa 19.732 greitt atkvæði utan kjörfundar hjá honum. Ekki er til nákvæmur samanburður við fyrri ár vegna breytinga á embættunum en þetta virðist vera heldur minna en í kosningunum fyrir fjórum árum. Rúmlega 20 þúsund manns hafa greitt atkvæði á öllu landinu. Morgunblaðið/Eggert Tvísýnt um úrslit í kosningunum í dag  248 þúsund íbúar sveitarfélaganna eru á kjörskrá  Frekar dræm kosning utan kjörfundar Oddvitar Síðasti umræðuþáttur með forystumönnum framboðanna í Reykjavík var í Sjónvarpinu í gærkvöldi. Fulltrúar átta fylgismestu framboðanna, skv. skoðanakönnun, voru í fyrra hollinu.  „Mig hefur langað að kjósa síðan ég var þriggja ára og hef síðan þá haft mikinn áhuga á pólitík. Síðasta kjördag vakti ég til miðnættis til að sjá niðurstöð- urnar.“ Þetta kemur meðal annars fram í viðtali við fjóra níu og tíu ára dagskrárgerðarmenn sem stóðu að þáttunum „Borgarsýn Reykjavíkur“ sem sýndir eru á KrakkaRúv. Í þáttunum er rætt við frambjóðendur í Reykjavík og sleg- ið á létta strengi inn á milli. Allir eru strákarnir með mis- jafnar skoðanir á borgarmálunum. Þeir eru þó allir sammála um að lækka þurfa kosningaldurinn og nefna í því samhengi aldur frá tíu til fimmtán ára. »2 Bjuggu til þætti um kosningarnar ný- orðnir 10 ára gamlir Borgarsýn Efnileg- ir fjölmiðlamenn. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Umfang bótasvika er enn umtalsvert hér á landi. Þrátt fyrir tiltölulega lít- ið atvinnuleysi er enn töluvert um að einstaklingar fái atvinnuleysisbætur sem þeir hafa ekki rétt á. Eftirlitsdeild Vinnumálastofnunar (VMST) hafði í nógu að snúast í fyrra við eftirlit með greiðslum og við að uppræta misnotkun á atvinnuleysis- bótum. Í fyrra sendi eftirlitsdeildin út alls 2.804 bréf vegna mála þar sem grunur lék á að einstaklingar á bót- um hefðu rangt við, eða vegna rangra skráninga. Var alls 511 mál- um lokið með viðurlagaákvörðun. Fram kemur í nýrri ársskýrslu Vinnumálastofnunar að skulda- myndun vegna þessara mála, sem upprætt voru, nam tæplega 128,5 milljónum króna. Ekki er búið að taka ákvörðun í 147 málum. Í fyrra voru í fyrsta sinn sam- keyrðar upplýsingar við stað- greiðsluskrá ríkisskattstjóra vegna einstaklinga sem höfðu skráðar á sig fjármagnstekjur, til að kanna hvort atvinnuleitendur væru með fjár- magnstekjur sem þeir höfðu ekki til- kynnt til VMST. Alls var sent út 461 bréf eftir samkeyrsluna og lauk 142 málum með synjun atvinnuleysis- bóta. Umfang bótasvika enn umtalsvert  Misnotkun atvinnuleysisbóta upprætt í 511 málum í fyrra Atvinnuleysi Vinnumálastofnun fylg- ist með greiðslum atvinnuleysisbóta. MUpprættu misnotkun … »26 Morgunblaðið/Golli „Ég er að selja radarvara sem kosta 74.900 krónur og fékk 21 stykki inn í búð fyrir þremur vikum – þeir seld- ust allir á einum degi. Fyrir tveimur vikum fékk ég 30 stykki og þeir eru seldir. Þetta er eins og berjasala á haustin,“ segir Jónína Guðrún Jóns- dóttir, framkvæmdastjóri Nes- radíós, en eftirspurn eftir rad- arvörum í bíla hefur stóraukist eftir að hraðasektir hækkuðu 1. maí síð- astliðinn. Núna eru ökumenn sektaðir um 40 þúsund krónur ef þeir eru góm- aðir við akstur án handfrjáls bún- aðar. Jónína segir hækkun sekta hafa ýtt undir sölu á bæði radar- vörum og handfrjálsum búnaði. Ómar Smári Ármannsson aðstoð- aryfirlögregluþjónn segir suma radarvara virka við ákveðnar að- stæður, á meðan önnur tæki virki illa eða ekkert. Þá segir hann lög- regluna geta mælt hraða ökumanna úr 4-5 km fjarlægð. »4 Radarvarar rjúka út

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.