Morgunblaðið - 26.05.2018, Page 10

Morgunblaðið - 26.05.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018 GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is RenaultKADJAR&CAPTUR Sparneytnir sportjeppar Renault Captur, verð frá: 2.750.000 kr. Renault Kadjar, verð frá: 3.550.000 kr. OPIÐ Í DAGFRÁ12–16 E N N E M M / S ÍA / N M 8 8 0 8 3 Hrefnuveiðimenn hyggjast hefja hrefnuveiðar á bátnum Hrafnreyði KÓ um mánaðamótin, öðru hvoru megin við sjómannadag. Gunnar Bergmann Jónsson, fram- kvæmdastjóri IP-útgerðar, segir lík- legt að byrjað verði að leita út frá Sandgerði og síðan verði lína sem afmarkar verndarsvæði hvala og leyfilegt veiðisvæði elt norður Faxa- flóa. Hrefnuveiðimenn mótmæltu því er verndarsvæði hvala í Faxaflóa var stækkað á síðasta ári en ákvörð- un ráðherra hefur ekki verið breytt. Að sögn Gunnars er ákveðið að reyna hrefnuveiðar í júnímánuði en það fari síðan eftir veiði og veðri hversu lengi verði haldið áfram. Samkvæmt ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar er miðað við að veið- ar á hrefnu verði ekki umfram 217 dýr á íslenska landgrunnssvæðinu á ári fram til 2025. Hrefnuveiðar hafa undanfarin ár verið langt undir ráð- lögðum hámarksfjölda og flestar hrefnur verið veiddar í Faxaflóa. Árið 2017 veiddust 17 hrefnur, þar af fjórar í utanverðum Skagafirði. Í vetur flutti IP-útgerð inn um þrjú tonn af hrefnukjöti frá Noregi og voru þau seld til veitingahúsa. aij@mbl.is Hefja veiðar á hrefnu í júníbyrjun Natalía NS, sem gerð er út frá Bakkafirði, er aflahæst strand- veiðibáta með 9,6 tonn í tólf róðrum. Báturinn er einn þriggja báta sem þegar hafa náð tólf róðrum í maí, sem er hámarksfjöldi róðra. Hinir tveir eru Græðir BA og Kolga BA á vestur- svæði eða A-svæði og eru þeir einnig á meðal aflahæstu báta. Fjórir dagar eru eftir af strandveiðimánuðinum. Afli á strandveiðum stendur nú í 1.319 tonnum sem er fimmtungs minnkun frá í fyrra, segir á heima- síðu Landssambands smábátaeig- enda. Í upphafi vertíðar var miðað við 10.200 tonn til strandveiða og er því búið að veiða um 12,9% af heim- ildum. Meðaltal afla á hvern bát er hins vegar aðeins 207 kílóum minna en í fyrra og er munurinn um 6%. Nú hafa 383 báta hafið strandveið- ar, en þeir voru 451 á sama tíma í fyrra. Flestir bátar róa á A-svæði frá Arnarstapa til Súðavíkur, eða 170 á móti 193 í fyrra. Mest fækkun er á B- svæði frá Norðurfirði í Grenivík, þar sem 66 bátar hafa landað afla á móti 100 í fyrra. Á C-svæði frá Húsavík til Djúpavogs hafa 50 bátar landað afla en þeir voru 70 á sama tíma í fyrra. Fjölgun hefur hins vegar orðið á D- svæði frá Höfn í Borgarnes, þar sem 97 bátar hafa landað afla í ár á móti 88 á síðasta ári. Ýmsar skýringar kunna að vera á fækkun báta að mati Arnar Páls- sonar, framkvæmdastjóra Lands- sambands smábátaeigenda. Hann tel- ur lágt verð fyrir aflann og gott atvinnuástand í landi skipta þar mestu. Einnig nefnir hann að ein- hverjir séu að ljúka veiðum á króka- aflamarki og aðrir séu á grá- sleppuveiðum, en samhliða strandveiðum má ekki stunda aðrar veiðar. aij@mbl.is Natalía NS aflahæst á strandveiðunum Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Engar vísbendingar eru um að ís- lensk stjórnvöld hafi veitt undan- þágur til flutninga á hergögnum sem falla undir jarðsprengju- eða klasasprengjusamninga Sameinuðu þjóðanna. Gildir þetta bæði um flutninga um íslenskt yfirráðasvæði og um flutninga íslenskra flugrek- enda. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu samgöngu- og sveitar- stjórnarráðuneytisins, þar sem kannað var hvers konar undanþág- ur og til hverra undanþágur hefðu verið veittar vegna flutninga á her- gögnum með borgaralegum loftför- um á árunum 2008-2017. Í skýrslunni kemur jafnframt fram að engar undanþágur hafi ver- ið veittar vegna flutninga á her- gögnum til ríkja eða aðila sem ís- lensk stjórnvöld hafa framfylgt þvingunaraðgerðum gegn né verið veittar í andstöðu við skuldbind- ingar íslenskra stjórnvalda sam- kvæmt vopnasölusáttmála Samein- uðu þjóðanna. Ekki formlegt samráð Í frétt á heimasíðu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í gær, kemur fram að samkvæmt forseta- úrskurði um skiptingu stjórnarmál- efna í Stjórnarráði Íslands fari ut- anríkisráðherra nú með framkvæmd 1. og 5. mgr. 78. gr. loftferðalaga er varði flutning her- gagna og annars slíks búnaðar með loftförum. Fram kemur í skýrslunni að Samgöngustofa framkvæmdi efnis- lega skoðun á undanþágubeiðnum sem henni bárust. Orðrétt segir m.a. í niðurstöðum skýrslunnar: „Formlegt samráð var ekki viðhaft við ráðuneytið frá því Samgöngustofa tók til starfa fram til haustsins 2017 … Sú aukning á flutningi hergagna með íslenskum flugrekendum sem hófst á árinu 2014 hefði að mati ráðuneytisins átt að kalla á nánara samráð af hálfu Samgöngustofu. Ljóst er að skoðun á tíðni flutninga, farmi og stjórnmálaástandi í ná- grannaríkjum móttakanda farms hefði átt að leiða til samráðs við ráðuneytið að minnsta kosti frá árs- byrjun 2015 …“ „Að því er varðar flutninga um íslenskt yfirráðasvæði telur ráðu- neytið í ljósi þeirra gagna sem liggja fyrir að ekki hafi verið þörf á að viðhafa samráð við ráðuneytið á grundvelli reglugerðar nr. 957/2005 vegna þeirra undanþága sem veitt- ar voru á tímabilinu.“ Þjóðréttarlegar skuldbindingar „Niðurstaða ráðuneytisins er að engar vísbendingar séu um að Flugmálastjórn Íslands eða Sam- göngustofa hafi veitt undanþágur til flutninga á hergögnum í andstöðu við þjóðréttarlegar skuldbindingar íslenska ríkisins,“ segir ennfremur í niðurstöðum ráðuneytisins. Í samræmi við alþjóð- legar skuldbindingar  Aukning á flutningi hergagna átti að kalla á samráð Morgunblaðið/Styrmir Kári Herflutningar Ráðuneytið kannaði undanþágur sem veittar voru vegna flutnings á hergögnum með borgaralegum loftförum frá 2008 til 2017.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.