Morgunblaðið - 26.05.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 26.05.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Áformað er að opna 52 herbergja hótel á Laugavegi 55 síðla næsta sumar. Þar verða þrjú verslunar- rými á jarðhæð og veitingahús í kjallara. Hjónin Linda Jóhannsdótt- ir og Ellert Finnbogason munu reka hótelið sem verður undir merkjum dönsku keðjunnar Guldsmeden. Með því fjölgar Guldsmeden-hót- elum á Íslandi en hjónin hófu rekst- ur hótelsins Eyja Guldsmeden í Brautarholti í Reykjavík árið 2016. Þar eru 65 herbergi. Þjónustan persónuleg Linda segir að boðið verði upp á lífrænan morgunverð og léttan mat- seðil á nýja hótelinu. „Við erum lítil og einbeitum okkur að því að veita persónulega þjónustu. Þegar samkeppnin eykst skiptir máli að standa sig vel í gæðum, þjónustu og upplifun gesta,“ segir Linda sem hefur áhyggjur af samþjöppun á hótelmarkaðnum á Íslandi. „Stóru keðjurnar hafa verið að kaupa upp minni hótel. Ég hef áhyggjur af því að það dragi úr fjöl- breytileika á markaðnum. Við verð- um alltaf valkostur fyrir fólk sem kýs minni „boutique“-hótel og því teljum við markað fyrir annað Guldsmeden-hótel í Reykjavík. Við fengum mjög góða staðsetningu við Laugaveg. Samlegðaráhrifin verða töluverð fyrir okkur. Við hjónin störfum í þessu af lífi og sál. Þetta er okkar áhugamál.“ Linda segir umsagnir gesta hafa mikið að segja. „Guldsmeden-hótelin gera mikið út á umhverfismál. Fólk hugsar orðið meira um umhverfis- vernd og sjálfbærni. Síðan skiptir máli að okkur hefur verið tekið afar vel af gestum. Við skorum t.d. hátt á Tripadvisor og höfum fengið verð- laun Travellers Choice sem 1% af hótelum í hverjum flokki fá. Þetta sýnir að við erum að standa okkur vel. Fólk fer mikið eftir því hvað aðr- ir eru að segja um hótelin og hvernig upplifunin er.“ Hægt hefur á vexti ferðaþjónustu. Linda segir styrkingu krónunnar hafa mikið að segja í þessu efni. Hót- elin hafi sem stendur ekki svigrúm til að velta innlendum kostnaðar- hækkunum út í verðlagið. Hraðari breyting en vænst var „Vöxturinn hefur verið ótrúlegur undanfarin ár. Við sem erum á mark- aðnum höfum ekki búist við að það myndi halda óbreytt áfram. Tvö til þrjú prósent vöxtur á ári þykir eðli- legur á öðrum mörkuðum. Þannig að við höfum ekki áhyggjur af því að Nýtt borgarhótel á Laugavegi  Annað Guldsmeden-hótelið á Íslandi verður opnað 2019  Framkvæmdastjóri hótelsins er bjartsýnn þrátt fyrir harðnandi samkeppni  Ferðaheildsalar telji samdrátt verða viðvarandi við óbreytt gengi Teikning/THG arkitektar Nýbygging Nýja hótelið verður í fimm hæða byggingu sem verður vestan við Kjörgarð. Hjón Linda Jóhannsdóttir, eigandi Eyja Guldsmeden-hótel, og Ellert Finnbogason. Morgunblaðið/Arnþór HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 ŠKODA DA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.