Morgunblaðið - 26.05.2018, Side 46

Morgunblaðið - 26.05.2018, Side 46
Íslensk-þýska hljóm- sveitin Ensemble Adapter, sem einbeitir sér að sköpun og túlk- un nútímatónlistar, leikur undir á nýrri plötu hins þýsk-ind- verska Ketan Bhatti. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ég kynntist Gunnhildi Einars-dóttur hörpuleikara er égbjó í Berlín fyrir réttum 12 árum. Bjó í íbúð hennar á meðan við fjölskyldan komum okkur fyrir í borginni og höfum við verið í sam- bandi síðan. M.a. hef ég fylgst með henni og starfi hennar fyrir En- semble Adapter, hljómsveit sem hún og maður hennar, Matthias Engler (slagverk), höfðu stofnað tveimur árum fyrr. Adapter starfar enn, ásamt þeim hjónum skipa þau Krist- jana Helgadóttir (flauta) og Ingólfur Vilhjálmsson (klarínett) hópinn. Hrynhitinn aðlagaður Ketan Bhatti Er mikilvirkur í suðupottinum Berlínarborg. Máttur og megin Adapter liggur í nútímatónlist, nýrri sköpun og því að þenja út það sem mögulegt er – krossa yfir mörk og mæri. Eins og nafnið gefur til kynna. „Með því að sam- þætta ólíka listmiðla með tónlistinni er hægt að lyfta þeim öllum upp, ég trúi því t.a.m. ekki að þessir hlutir séu að skyggja hver á ann- an,“ sagði Matthías við blaðamann þegar Adapter var tveggja ára gamall. „En til þess að þetta virki þurfa þessir ólíku lista- menn að samþætta sig og vinna í sameiningu að heildarútkomu sem skilur eitthvað eftir sig.“ Þessum kúrs hefur verið haldið glæsilega allar götur síðan. Í síðustu viku kom út ný plata, þar sem Adapter sér um tónlist- arflutning. Nodding Terms er gefin út af hinu framsækna merki col legno en höfundur tónlist- ar er Ketan Bhatti, vinur sveitarinnar frá Berlín. Hann sinnir tónlistar- skrifum fyrir leik- og dans- verk og einnig söngleiki. Hann og bróðir hans, Viv- an Bhatti, hafa þá samið tónlist fyrir breikdanshóp- inn Flying Steps og sett Bach í hipp- hopp-snið. „Við Matthias kynntumst Ketan í Brandt Brauer Frick Ensemble,“ » Á Nodding Termsreynir Bhatti sig við samslátt kammertón- listar og raf/klúbba- tónlistar. Hljóðfæri Adapter eru lögð að naumhyggjulegu, grúv- bundnu flæði og heyrn er sögu ríkari! 46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Hugmyndin að verkinu er sprottin út frá samtali sem hófst í Amsterdam og hélt áfram í Berlín áður en við fluttum heim,“ segir Hrafnhildur Gissurardóttir, myndlistarkona og sýningarstjóri, um Free Play sem sýnt verður í bingósal Vinabæjar í Skipholti 33 í dag, laugardag, kl. 17. Verkið samdi Hrafnhildur í samvinnu við Borghildi Indriðadóttur, listakonu og arkitekt, og Hrafnhildi Árnadóttur sópr- ansöngkonu, en þær voru við nám og störf erlendis þegar hugmyndin að verkinu kviknaði. „Þetta er sannkallaður hildarleikur,“ segir Hrafnhildur kímin og rifjar upp að þær nöfnur hafi kynnst á námsárum sínum. „Hrafnhildur fór að mæta á myndlistarsýningar og ég í óperuna meðan við bjuggum í Amsterdam. Í mastersnáminu kynntist ég síðan Borghildi í Berlín sem er líka mikill óperuunnandi og hefur unnið með Schaubühne. Þegar við fluttum allar heim til Ís- lands á seinasta ári fór boltinn að rúlla frekar hratt.“ Free Play er byggt á óperunni La Traviata eftir Giuseppe Verdi. „Þetta er ein frægasta ópera tónbókmenntanna. Okkur langar að gera óperuna aðgengilegri fyrir almenning og jafnframt minna nútímaáhorfendur á hversu ögrandi og mikill pönkari Verdi var á sínum tíma. Okkur fannst spenn- andi að skoða 19. aldar rómantík frá ólíkum sjónarhornum. Titill verksins vísar í aríuna „Sempre libera“ eða Ávallt frjáls þar sem aðalpersóna verksins, Violetta, syngur um löngun sína til að lifa frjáls og áhyggjulaus,“ segir Hrafn- hildur og bendir á að titill óperunnar vísi til Violettu sem fallinnar konu. Óperuformið brotið upp „Violetta er stöðugt innan um efri stéttina þó hún tilheyri henni ekki. Hún er stanslaust umkringd fólki, en á sama tíma alltaf einmana. Við vinnum með fjarlægðina, einangr- unina og skömmina. Í óperunni lýsir Violetta París sem yfir- fullri eyðimörk, borgin er full af fólki en samt er hún ávallt einmana. Það er velþekkt einkenni í stórborgum að margir upplifa mikinn einmanaleika þrátt fyrir alla fólksmergðina,“ segir Hrafnhildur og bendir á að í verkinu Free Play sé óp- eruformið brotið upp. Í stað hljómsveitar skapi raftónlist- armaðurinn Sveinbjörn Thorarensen, einnig þekktur sem Hermigervill, hljóðheim verksins í samstarfi við sópr- ansöngkonuna Hrafnhildi. „Verkið er tæp klukkustund að lengd en leikmynd og búningar eru í formi innsetningar sem unnin er í samstarfi við búningahönnuðinn Þórunni Maríu Jónsdóttur,“ segir Hrafnhildur og tekur fram að sýning- arstaðurinn hafi haft sterk áhrif á listræna stjórnendur. „Bingósalurinn í Vinabæ veitti okkur mikinn innblástur við sköpun verksins. Eftir að hafa dvalið langdvölum erlendis sér maður allt hérlendis með nýjum augum. Við heilluðumst umsvifalaust af þessum sal sem er gleymd perla á besta stað í bænum,“ segir Hrafnhildur og tekur fram að höfundar hafi heillast af þeim súrrealisma og þeirri fagurfræði sem birtist í útliti og stíl salarins sem minni á myndir eftir Aki Kaur- ismäki og David Lynch. Að sögn Hrafnhildar vísar titill verksins einnig til bingó- spjaldanna, því í miðju þeirra stendur „Free Play“ sem vísi einnig til hins frjálsa leiks verksins. „Enda erum við að blanda saman ólíkum listgreinum, en reynum markvisst að gera þeim jafnhátt undir höfði,“ segir Hrafnhildar og bendir á að nafna hennar verði ein á sviðinu allan tímann og beri verkið uppi. „Hún er mjög hugrökk og búin að brjóta allar reglur óperunnar með okkur Sveinbirni,“ segir Hrafnhildur og tekur fram að nafna hennar sé söngkona á heims- mælikvarða og því ætti enginn að láta verkið framhjá sér fara. Aðspurð segir hún aðeins ráðgert að sýna eina sýningu í Vinabæ, en útilokar ekki að innsetningin verði þróuð áfram og mögulega sýnd annars staðar síðar meir. Þess má að lok- um geta að miðar eru seldir á tix.is og við innganginn. „Blanda saman ólíkum listgreinum“  Free Play sýnt í bingósal Vinabæjar í dag kl. 17 Ljósmynd/Saga Sig Borghildur Indriðadóttir Hrafnhildur Gissurardóttir Hrafnhildur Árnadóttir Innsetning Leikmynd og búningar í verkinu Free Play eru í formi innsetningar sem unnin er í samstarfi við búningahönnuðinn Þórunni Maríu Jónsdóttur. Þriðju tónleikar strengjasveitar- innar Spiccato á þessu ári verða í kirkju Óháða safnaðarins í dag, laugardag, kl. 17. Á efnisskránni eru tónverk eftir Albinoni, Vivaldi, Tessarini, Eccles og Wasseneau. „Gestur tónleikanna verður orgelleikarinn Kristján Hrannar Pálsson, en hann mun leika með í hinu þekkta verki Adagio eftir Albinoni. Nýjustu rannsóknir benda til að hinn rétti höfundur verksins sé Remo Giazotto,“ segir í kynningu. Strengjasveitin Spiccato var stofnuð 2012 af hópi strengjaleik- ara sem vettvangur til að flytja tónverk fyrir strengi, ekki síst frá barokktímanum, þar sem jafnræði ríkir milli hljóðfæraleikarana og enginn einn stjórnar. Sveitina skipa nú Martin Frewer, Hlíf Sig- urjónsdóttir, Sigurlaug Eðvalds- dóttir, Ágústa Jónsdóttir, María Weiss og Sigrún Kristbjörg Jóns- dóttir á fiðlur, Sarah Buckley og Eyjólfur Bjarni Alfreðsson á lág- fiðlur, Þórdís Gerður Jónsdóttir á selló og Páll Hannesson á bassa. Þess má að lokum geta að fjórðu tónleikar sveitarinnar verða á Kjarvalsstöðum á Menningarnótt. Spiccato í kirkju Óháða safnaðarins Spiccato Strengjaveitin var stofnuð árið 2012. Hún heldur tónleika í dag. Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Laugardagur 26. maí kl. 14 sýningaropnun: Leitin að klaustrunum Síðasta sýningahelgi ljósmyndasýninganna í Myndasal og á Vegg Heiðnar grafir í nýju ljósi – ný sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins David Barreiro – Langa blokkin í Efra Breiðholti í Myndasal Karl Jeppesen – Fornar verstöðvar á Vegg Prýðileg reiðtygi í Bogasal Leitin að klaustrunum í Horni Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið alla daga 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið alla daga 10-17 ÝMISSA KVIKINDA LÍKI - ÍSLENSK GRAFÍK – 11.5. - 23.9.2018 ELINA BROTHERUS - LEIKREGLUR – 16.2. - 24.6.2018 FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign 7.4.2017 - 31.12.2019 BÓKFELL 22.5 - 31.12 2018 SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga frá kl. 10-17. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON 21.10.2017 - 7.10.2018 Opið alla daga frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR 15.5. - 15.9.2018 Opið alla daga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.