Morgunblaðið - 26.05.2018, Page 47
segir Gunnhildur mér. Hjónin leika
með nefndri sveit en þeir Paul Frick
og Jan Brauer, meðlimir þar, koma
og við sögu á plötu Bhatti. „Hann
var trommuleikari þar til að byrja
með. Hann fór fljótlega að einbeita
sér að því að semja tónlist og taka
upp og Adapter lá því beint við sem
samstarfsaðili þegar hann fór að
prófa sig áfram með að skrifa
kammertónlist. Við höfum áður gert
nokkur mismunandi verkefni í sam-
einingu og þessi plata er einskonar
heildarútkoma þeirra verkefna.“
Á Nodding Terms reynir Bhatti
sig við samslátt kammertónlistar og
raf/klúbbatónlistar. Hljóðfæri
Adapter eru lögð að naumhyggju-
legu, grúvbundnu flæði og heyrn er
sögu ríkari! Titillinn, „nodding“, vís-
ar þá í tvennt, að fólk kinki kolli
taktvisst vegna grúvsins og líka að
það kinki kolli og segi „aha!“, þar
sem samsuðan er svo glúrin. Segir í
nokk grallaralegri fréttatilkynn-
ingu.
„Flóknir taktar eru ekki sér-
stök áskorun fyrir Adapter,“ segir
Gunnhildur. „En kannski að það að
umgangast þá á svona meira „grúví“
hátt sé dálítið óvenjulegt. Það er
samt mjög gaman og á vel við okk-
ur“ (hlær).
Ensemble Adapter Ingólfur Vilhjálmsson, Matthias Engler, Kristjana Helgadóttir og Gunnhildur Einarsdóttir.
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Þetta byrjar á því að ég vinn með
einn pixel í mynd, fer inn í hann, aft-
ur og aftur og byggi verkin upp úr
pixlum,“ segir Hrafnkell Sigurðsson
myndlistarmaður þegar hann út-
skýrir áhrifamikil og ægifögur
myndverkin á sýningunni Upplausn
sem verður opnuð í Hverfisgalleríi að
Hverfisgötu 4 klukkan 16 í dag, laug-
ardag.
Þetta eru stór verk sem eru byggð
upp með pixlum úr einum pixli sem
var myndaður af Hubble sjónauk-
anum – og þau vísa í himingeiminn og
hinn rafræna heim í senn, og þá eru
við verkin einnig rafræn mynstur
sem Hrafnkell hefur þrykkt beint á
veggina. Hann segir forsendu verk-
anna liggja í óljósri hugmynd, tilfinn-
ingu sem var í senn óræð, dimm og
djúp. Og tengist auðum fleti, ein-
hvers konar prenti.
„Ég er að leysa upp smæstu eind-
irnar og leyfa þeim að endurraða sér;
án þess að ég viti hvernig þær muni
gera það – ég vinn með myndvinnslu-
forrit og bíð eftir að eitthvað gerist,“
segir hann. Hann vinnur því með
tölvutækni og vélræn ferli en útkom-
an er afar lífræn.
„Já, og það kom mér á óvart. Ég
hélt að þetta yrði enn geómetrískara,
en verkin þróuðust á sífellt lífrænni
hátt. En samt, ef þú ferð mjög nálgt
verkunum“ – við rekum nefin upp að
einu þeirra – „þá er þetta harðlínu
geómetría. Þetta er eins og strang-
flata-málverk sem er búið að súmma
langt frá.
Í ljósmyndum Hubble-sjónaukans
var lítill bletur á stjörnuhimninum
stækkaður upp svo að stjörnuþokur
komu í ljós. Ég tek eina slíka mynd
og finn lítinn svartan blett í henni,
þar sem er ekki neitt, sem ég stækka
upp og fer þar inn í ímyndunarafl
mitt. Ég trúi því að hægt sé að fara út
í geiminn gegnum myndina.“
Hrafnkell, sem er fæddur árið
1963, er einn virtasti myndlistar-
maður sinnar kynslóðar. Hann nam
fyrst hér á landi og var síðan í fram-
haldsnámi í Maastricht í Hollandi og
í London. Hann hefur unnið verk í
ýmsa miðla, til að mynda ljós-
myndun, vídeó og grafík, og hlaut ár-
ið 2007 Íslensku sjónlistarverðlaunin.
„Verkin þróuðust á
sífellt lífrænni hátt“
Upplausn Hrafnkels Sigurðssonar í Hverfisgalleríi
Morgunblaðið/Einar Falur
Upplausn „Ef þú ferð mjög nálgt verkunum þá er þetta harðlínu geómetría. Þetta er eins og strangflata-málverk
sem er búið að súmma langt frá,“ segir Hrafnkell Sigurðsson um ægifögur myndverkin sem spretta af einum pixli.
Kvikmyndaframleiðandinn Harvey
Weinstein var handtekinn og
leiddur í járnum út af lögreglustöð
í New York-borg í gær. Hann gaf
sig fram eftir að lýst var eftir hon-
um og var honum í kjölfarið birt
ákæra fyrir að hafa nauðgað einni
konu og neytt aðra til munnmaka.
Lögreglan hefur rannsakað mál
framleiðandans undanfarna mán-
uði, eftir að fjöldi kvenna kom
fram og sakaði hann um ofbeldi
og áreitni. Hleypti umræðan
#MeToo-hreyfingunni af stokk-
unum.
Weinstein ákærður fyrir nauðgun
AFP
Í járnum Harvey Weinstein leiddur út af
lögreglustöð í New York í gær.
Líf nefnist ljósmyndasýning ÁLF-
kvenna í Lystigarðinum á Akureyri
sem opnuð verður í dag og stendur
fram yfir Akureyrarvöku.
„ÁLFkonur er félagsskapur
kvenna sem hafa ljósmyndun að
áhugamáli og hafa starfað saman
frá sumrinu 2010. Þetta er 24. sam-
sýning hópsins og 7. sýningin í
Lystigarðinum,“ segir í tilkynn-
ingu. Sýningin er útisýning og er
opin milli kl. 8.00 og 22.00 alla
daga. Allar nánari upplýsingar á
Facebook-síðunni ÁLFkonur.
ÁLFkonur sýna í Lystigarðinum
Samsýning Ljósmyndir í Lystigarðinum.
Vorgaldur er yfirskrift tónleika
sönghópsins Spectrum í Salnum á
morgun, sunnudag, kl. 20 undir
stjórn Ingveldar Ýrar.
„Spectrum fer á dulmagnaðar
slóðir og flytur seiðandi söng-
dagskrá þar sem flutt verða allt í
senn mögnuð, fögur og brjáluð lög
ásamt lögum úr smiðju íslenskra
tónskálda,“ segir í tilkynningu.
Á efnisskránni eru lög á borð við
„Mad World“, „Viva la Vida“, „Far
Over the Misty Mountains“,
„Underneath the Stars“, „Glow“,
„Let It Be“ og „Bésame Mucho“.
Tónskáld og útsetjarar á borð við
Eric Esenvalds, Eric Whitacre og
Morten Lauridsen eru ríkjandi í
lagavalinu. Með kórnum leika Vign-
ir Þór Stefánsson á píanó, Gunnar
Hrafnsson á bassa, Ársæll Másson á
gítar og Þorvaldur Ingveldarson á
slagverk.
Spectrum fer á dulmagnaðar slóðir
Dulúð Ingveldur Ýr stjórnar söng-
hópnum Spectrum í Salnum.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Fim 7/6 kl. 20:00 50. s
Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s
Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Sun 3/6 kl. 20:00 48. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s
Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s
Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s
Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Sun 27/5 kl. 20:00 35. s Fös 1/6 kl. 20:00 36. s Lau 2/6 kl. 20:00 37. s
Allra síðustu sýningar!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Lau 26/5 kl. 20:30 aukas. Fös 1/6 kl. 20:30 aukas.
Fim 31/5 kl. 20:30 aukas. Lau 2/6 kl. 20:30 aukas.
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn
Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Lau 26/5 kl. 19:30 8.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 9.sýn Fös 8/6 kl. 19:30 10.sýn
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
Aðfaranótt (Kassinn)
Lau 26/5 kl. 19:30 10.sýn
Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200