Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018
Aríur og órar í Hörpuhorni
Tónleikar í röðinni Velkomin
heim verða haldnir á morgun í
Hörpuhorni í Hörpu kl. 17 og eru
það jafnframt síðustu tónleikar
raðarinnar á þessu starfsári.
Berta Dröfn Ómarsdóttir sópran
og Sigurður Helgi Oddsson pí-
anóleikari munu fylgja áheyr-
endum inn í vorið með aríum og
sönglögum um ást, gleði, ástríðu
og missi og flytja verk eftir Pur-
cell, Händel, Donizetti, Hump-
erdinck og Tosti. Berta Dröfn
hefur sungið í mörgum þekktustu
tónleikahúsum heims, m.a. Carne-
gie Hall í New York og Scala-
óperunni í Míl-
anó. Sigurður
lauk B.Mus.-
gráðu í píanó-
leik, hljómsveit-
arstjórn og
kvikmynda-
tónsmíðum frá
Berklee College
of Music í Bost-
on árið 2011 og
hefur starfað
sem meðleikari, stjórnandi og
kennari á hinum ýmsu sviðum
tónlistargeirans Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis.
Berta Dröfn
Ómarsdóttir
Deadpool er mættur afturog líkt og tíðkast meðkvikmyndir sem erunúmer tvö þá eru fleiri
sprengingar, fleiri persónur og fleiri
brandarar.
Í upphafi myndar er Deadpool
þungt haldinn, svo mjög að hann
reynir að fremja sjálfsvíg. Þeir sem
þekkja persónuna vita að það mun
ganga brösuglega því Deadpool er
ódrepandi. Uppspretta þess djúpa
þunglyndis sem hann er sokkinn í
er að svakalega vondur glæpamaður
drap konuna hans og nú finnst
Deadpool lífið vera tilgangslaust.
Því sprengir hann sig í loft upp.
Það ber ekki árangur; þótt hann
sprengist í milljón litla búta er hann
enn lifandi. Vinir hans úr röðum X-
mannanna koma og tjasla honum
saman og reyna að veita honum
sáluhjálp. X-mennirnir og Deadpool
eru kallaðir út vegna þess að Rus-
sel, ungur stökkbreyttur piltur sem
spýr eldi úr höndum sínum, er að
valda usla fyrir utan munaðarleys-
ingjaheimili þar sem hann er vist-
maður. Deadpool reynir að skakka
leikinn en endar á að klúðra öllu
þannig að bæði hann og reiði ungi
maðurinn eru sendir í fangelsi.
Skömmu eftir að þeir eru sendir í
steininn brýst maður inn í fangelsið
og tekur að brjóta þar allt og
bramla. Hann reynist vera Cable,
þungvopnaður hermaður úr fram-
tíðinni, og hann er á höttunum eftir
Russel. Nú eru þeir félagar í mikl-
um vanda, þeir verða að sigrast á
Cable og komast að því hvað hann
vill Russel. Deadpool safnar liði og
hyggst búa til ósigrandi teymi til að
kljást við óvininn. Meðlimir teym-
isins reynast misósigrandi en einn
þeirra kemur sérstaklega að liði og
það er Domino, sem hefur þann
furðulega ofurkraft að vera ein-
staklega heppin.
Þegar fyrsta Deadpool-myndin
kom út 2016 þótti hún vera ferskur
andblær inn í offramboð ofurhetju-
mynda sem eru gjarnan fremur
áþekkar. Deadpool er öðruvísi ofur-
hetja, hann er kjaftfor, klaufskur og
hefur mjög undarlega siðferðis-
kennd. Alla jafna fylgja ofurhetjur
mjög ströngum mórölskum reglum,
þær drepa ekki fyrr en allt um þrýt-
ur og trúa á réttlætið. Deadpool
trúir ekki á neitt, hann klýfur and-
stæðinga í herðar niður án þess að
hika og sendir hausa, hendur og
innyfli fljúgandi um allt. Oft segir
hann líka brandara um það í leið-
inni. Þess vegna er Deadpool svona
„fullorðins“ ofurhetja.
En það sem gerði fyrri myndina
svona ferska var kannski fyrst og
fremst frásagnaraðferðin. Myndin
er rosalega sjálfsvísandi (e. meta).
Deadpool er meðvitaður um að hann
sé skálduð persóna og að það séu
áhorfendur að horfa á hann og hann
brýtur fjórða vegginn í tíma og
ótíma til að tala við áhorfendur.
Hann hefur líka mikla þekkingu á
Marvel-myndasöguheiminum og
vísar ósjaldan til hans, sem vekur
kátínu meðal aðdáenda myndasagn-
anna. Myndin spilar með væntingar
áhorfenda, í stað þess að setja inn
spennuþrungna tónlist í bardaga-
atriði kemur kannski ballaða eða
eitthvað álíka óvænt. Deadpool
bendir líka gjarnan á klisjur og þar
sem það verður varla þverfótað fyr-
ir þeim í ofurhetjukvikmyndum er
þetta skemmtileg afbökun. Dead-
pool 2 er gerð í þessum sama stíl.
Tilfellið er samt að þegar það er
stöðugt uppbrot í gangi verður það
að klisju í sjálfu sér. Sömu brand-
arar og trix koma fram aftur og aft-
ur og myndin hefur því ekki sama
slagkraft og sú fyrri.
Á einum stað kemur fram að
Cable, sem kemur úr framtíðinni,
hefur takmarkaða möguleika í tíma-
flakki, hann hefur bara tvær
„hleðslur“, eina til að komast til for-
tíðar og aðra til að fara til baka.
Deadpool snýr sér að áhorfendum
og bendir á að þarna hafi handrits-
höfundarnir bara verið latir og hitt-
ir þar naglann á höfuðið, því þegar
tímaflakk er annars vegar eru plott-
holur oft óhjákvæmilegar. Hið
merkilega er þó að þarna lýsir hann
allri myndinni, því hún er letilega
skrifuð. Myndin er mjög við-
burðarík en flæðið milli atriða er lé-
legt, oft er farið óþarflega hratt yfir
sögu og þegar verst lætur tapar
maður þræðinum. Persónusköpunin
er ekki upp á marga fiska, persónur
Cable og Domino eru skemmtilegar
en maður kynnist þeim ekki ýkja
mikið. Myndin er vissulega fyndin,
það er mörg sprenghlægileg augna-
blik en hún nær ekki sömu húm-
orísku hæðum og Deadpool númer
eitt.
Handritshöfundar gerast líka
sekir um að nota einhverja stærstu
og leiðinlegustu klisju sem fyrir-
finnst í dramatískum skrifum: að
láta konu karlkyns aðalpersónu
deyja til þess að þróa hans persónu.
Það er ekki látið nægja að gera
þetta einu sinni, heldur er það gert
tvisvar, bæði Deadpool og Cable eru
keyrðir áfram af því að konurnar
þeirra eru drepnar. Þessi klisja hef-
ur verið nefnd „konan í ísskápnum“
og nafnið er einmitt sótt í ofur-
hetjuheiminn, nánar tiltekið til þess
að í Green Lantern-sögu frá 1994
kemur aðalhetjan heim og sér að
óvinur hans, Major Force, hefur
drepið konuna hans og stungið
henni í ísskápinn. Það er vissulega
bagalegt að mynd sem einsetur sér
að rugla í klisjum ofurhetjuheimsins
beiti þessari ofnotuðu dramatísku
tækni.
Deadpool 2 er bæði fyndin og
spennandi en hún er svo sannarlega
eftirbátur fyrri myndarinnar.
Eitthvað útrunnið í ísskápnum
Laugarásbíó, Smárabíó, Há-
skólabíó, Borgarbíó og Sam-
bíóin Egilshöll og Kringlunni
Deadpool 2 bbbnn
Leikstjóri: David Leitch. Handrit: Rhett
Reese, Paul Wernick og Ryan Reynolds.
Kvikmyndataka: Jonathan Sela. Klipp-
ing: Craig Alpert og Elísabet Ronalds-
dóttir. Aðalhlutverk: Ryan Reynolds,
Josh Brolin, Zazie Beetz, Julian Denn-
ison og Morena Baccarin. 119 mín.
Bandaríkin, 2018.
BRYNJA
HJÁLMSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Sjálfa Sjálfhverfa
ofurhetjan Deadpool.
Finnsk þjóðlagatónlist verður í
öndvegi á tónleikum í Norræna
húsinu á morgun kl. 19.30 en á þeim
koma fram Tríó Matti Kallio, söng-
konan Anna Fält og kantele-
leikarinn Eeva-Kaisa Kohonen.
Matti Kallio spilar á díatóníska
takkaharmóníku, fimm raða
krómatíska hnappaharmonikku,
ýmsar flautur og líka á gítar og er
einn af fjölhæfustu finnsku tónlist-
armönnum sinnar kynslóðar, að því
er fram kemur á vef Norræna húss-
ins. Petri Hakala spilar á gítar og
mandólín og Hannu Rantanen á
kontrabassa. Eeva-Kaisa Kohonen
er rísandi stjarna í hinni fornu
finnsku þjóðlagatónlist, að því er
fram kemur á vefnum, og leikur á
kantele, hefðbundið strengja-
hljóðfæri sem finnst í Finnlandi og í
Finnsk þjóðlagatónlist í Vatnsmýrinni
Kantele Eeva-Kaisa Kohonen leikur á
strengjahljóðfærið kantele.
löndum Austur-Eystrasaltsríkj-
anna. Anna Fält er sögð einstak-
lega fjölhæfur söngvari, lagahöf-
undur og listamaður sem elskar
norræna þjóðlagatónlist og hefur
lært þjóðlagatónlist í fjórum mis-
munandi löndum.
ICQC 2018-20