Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 20

Læknablaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 20
540 LÆKNAblaðið 2017/103 legan stuðning frá foreldrum (p=0,001). Hlutfallslega fleiri strákar tilheyrðu einnig þessum hóp (p=0,001). Miklu meiri munur sást hins vegar á þeim unglingum sem sögðust hafa dreift örvandi lyfjun um sínum. Miðað við þá sem aldrei höfðu fengið slík lyf voru þeir sem stundað höfðu lyfjaflakk 7-35 sinnum líklegri til þess að hafa notað áfengi, tóbak eða önnur vímuefni og þeir voru 6 sinn- um líklegri til þess að segjast fá lítinn tilfinningalegan stuðning frá foreldrum. Umræða Eins og sjá má á niðurstöðum þessarar könnunar er lyfjaflakk örvandi lyfja á meðal 10. bekkinga á Íslandi algengt sé miðað við erlendar rannsóknir þar sem algengið liggur á milli 5-12%.12,13,15,22,23 Samkvæmt niðurstöðum þessarar könnunar á nemendum 10. bekkjar á Íslandi, sögðust um 9% þeirra fá örvandi lyf gegn lyf- seðli. Þetta passar vel við innlendar tölur um sölu örvandi lyfja en er eilítið hærra en það sem faraldsfræðilegar rannsóknir gefa til kynna að sé tíðni ADHD í 15 ára gömlum börnum.3,24 Jafnvel þó miðað væri við hæstu hugsanlegu tíðni ADHD í börnum sem fram hefur komið í faraldsfræðilegum rannsóknum, má líta svo á að verið sé að meðhöndla nær öll 15 ára börn sem hafa þessa röskun með örvandi lyfjum hér á landi. Það gefur annaðhvort til kynna afskaplega skilvirkt greiningar- og meðferðarkerfi ADHD í börnum á Íslandi eða mögulega ofgreiningu og ofmeðhöndlun, eftir því hvernig á það er litið. Um það bil 13% prósent drengja í 10. bekk var ávísað örvandi lyfjum og rúmlega 5% stúlkna, en þessi kynjamunur er í samræmi við niðurstöður erlendra rannsókna á tíðni ADHD á þessu aldursbili, þó vissulega megi finna bæði hærri og lægri tölur eftir því hvaða aðferðafræði er beitt hverju sinni.25 Samkvæmt niðurstöðum okkar höfðu tæplega 18% þeirra ung- linga í 10. bekk sem hafa fengið ávísað örvandi lyfjum ástundað lyfjaflakk á örvandi lyfjunum sínum. Nokkur munur fannst á ávís- unum og lyfjaflakki örvandi lyfja eftir kynjum en hlutfall lyfja- flakks er eilítið hærra hjá stúlkum en hjá drengjum. Athuga ber þó að miklu færri stúlkur fá örvandi lyf gegn lyfseðli en drengir, þannig að prósentutala stúlkna er fljótari að breytast en hjá drengj- unum. Augljóst er að lyfjaflakk tengist annarri áhættuhegðun eins og reykingum, áfengisneyslu og annarri vímuefnanotkun, því jafnvel þó þeir unglingar sem fá uppáskrifuð örvandi lyf virðist líklegri til að nota vímuefni, eru þeir einstaklingar sem dreifa sín- um lyfjum í margfalt meiri áhættu. Niðurstöðurnar sýna einnig að lítil tilfinningaleg tengsl við foreldra hafa sterk tengsl við það að unglingar dreifi örvandi lyfjum. Þetta gefur tilefni til áframhaldandi áherslu á að styrkja tengsl foreldra og barna í æskulýðs- og forvarnarstarfi, sérlega hjá þeim börnum sem glíma við ADHD. Einnig að foreldrar, forráðamenn, kennarar og aðrir sem hafa umsjón með börnum á slíkum lyfjum séu vakandi fyrir þeim möguleika að barni sé ekki treystandi til að bera sjálft ábyrgð á lyfjunum vegna freistingar um skjótfenginn gróða, félagslegs þrýstings eða jafnvel þjófnaðar og hótana frá utanaðkomandi aðilum. Spurningalistarannsókn sem þessi felur í sér nokkrar augljósar takmarkanir. Í fyrsta lagi er hætta á því að nemendur svari ekki sannleikanum samkvæmt. Í einhverjum tilfellum tengist slík svörun því hvað er talið æskilegt innan ákveðins samfélags og getur bæði leitt til þess að svarað er á ýkjukenndan hátt en einnig að dregið sé úr. Sú staðreynd að hér er spurt um ólögmætt athæfi felur einnig í sér þá hættu að skekkja komi í svörin. Rannsókn- ir á réttmæti ESPAD-spurningalistans, sem meðal annars hafa verið gerðar með þátttöku íslenskra unglinga, benda hins vegar til að líkurnar á svarskekkju hér séu óverulegar og að langflestir svari eins heiðarlega og þeim er unnt.21 Önnur takmörkun snýr að fjölda þátttakenda þar sem tiltölulega fámennur hópur dreifir lyfjun um sínum til annarra og því varasamt að draga alltof afger- andi ályktanir af niðurstöðunum. Niðurstöður þessarar könnunar skyldi ekki nota til að gera lítið úr þeirri hjálp sem örvandi lyf geta veitt börnum sem glíma við ADHD á þessum aldri. Á sama tíma sýna niðurstöðurnar fram á mikilvægi þess að vandað sé til verka hvað varðar aðbúnað og umgjörð slíkar notkunar, til dæmis aðgengi barna að lyfjunum, sjálfstæði þeirra til að skammta sér sjálf lyfin og notkun reglu- legra þvagprufa til að sannreyna að barn sé að taka lyfið ef grunur leikur á lyfjaflakki. Ljóst er að til mikils er að vinna, bæði fyrir barnið sjálft og þá sem á ólöglegan hátt komast yfir og neyta lyfj- anna sem um ræðir. R A N N S Ó K N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.