Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 41

Læknablaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 41
LÆKNAblaðið 2017/103 561 finnast raunar engin dæmi um að hann hafi sagt þetta. Sigurður var sjálfur menn- ingarhetja 20. aldar og slíkum er iðulega eignað ýmislegt sem óvíst er að þær hafi sagt.“ Hluti af þessu er kannski að skoða hetjur Íslendingasagnanna með augum nútímamanns- ins. „Já, ég vil fara varlega í að sjúkdóms- greina persónur Íslendingasagnanna eftir lýsingum á þeim. Almennt sjúk- dómsgreina læknar ekki fólk sem þeir hafa aldrei séð og því skyldi gilda annað um þessar persónur. Læknar nútímans gera lítið af því að sjúkdómsgreina fólk í gegnum símann eða yfir netið; það er ekki minn stíll heldur og þaðan af síður að afgreiða hetjur Íslendingasagnanna sem geðsjúklinga,“ segir Ármann og hlær og bætir svo við: „Ekki samt segja Óttari Guðmundssyni frá því að ég hafi sagt þetta.“ Snorri er þegar þarna er komið sögu búinn að taka kristna trú. „Í Eyrbyggju fetar hann í rauninni bil beggja, á milli hins gamla og nýja siðar. Hann mætir á Fróðá með prest sem hegðar sér eins og særingamaður að kaþólskum sið, hann skvettir vígðu vatni um allt og fer með bænir. Snorri aftur á móti setur á réttarhöld yfir dauðu fólki og það er erfitt að flokka þessa athöfn sem heiðna eða kristna. Þetta passar inn í kristna trú á einhvern hátt og hlutverk Snorra er óljóst þar sem hann var heiðinn en er nú orðinn kristinn; goðarnir höfðu óljóst hlutverk í heiðnum sið en eftir kristnitökuna reisa þeir allir kirkjur á jörðum sínum og verða sérlegir umsjónarmenn kristninnar í sínu héraði. Í öllu falli þá er draugagangurinn kveðinn niður með þessu lagi og skila- boðin eru þau að hinn nýi siður sé öflugri en sá gamli. Það er sannarlega verið að segja okkur þessa sögu á forsendum kristninnar. Við vitum í rauninni ekkert hvaða ferðalag þessi saga er búin að ganga í gegnum þegar hún er loks rituð niður af klerki, munki eða sannkristnum leik- manni því að það er margt sem bendir til þess að sagan um Fróðárundrin sé mun eldri en frá því snemma á 13. öld. Þegar kemur að ritun sögunnar er það liður í trúaruppeldi kirkjunnar og sögunni er ætlað að sýna fram á yfirburði kristninnar. Ég held að það sé engin tilviljun að mjög margar Íslendingasögurnar byrja á land- náminu og þeim lýkur gjarnan á kristni- tökunni, eða fyrstu áratugum 11. aldar. Lítið fer fyrir sagnaritun um tímabilið 1050 til 1200. Kristnitakan virðist hafa haft sérstakt aðdráttarafl fyrir sagnaritara 13. og 14. aldar. Þeir skrifa þannig mikið um Ólaf Tryggvason og Ólaf helga en hafa minni áhuga á öðrum kóngum sem koma þarna á milli.“ Draugarnir verða viðræðugóðir Ármann segir áhugavert að skoða hvernig hugmyndir fólks hafa breyst um yfir- náttúrulegar verur, drauga, álfa og tröll, í gegnum aldirnar. „Draugar eins og í Eyrbyggju eru stórhættulegir og valda fólki skaða. Slík draugatrú er mjög sterk samhliða kristn- inni næstu aldir en í byrjun 20. aldarinnar þegar borgarastétt er að myndast hérlend- is, verða draugarnir borgaralegri; þeir verða viðræðugóðir og kumpánlegir og koma fram á miðilsfundum. Það er eins og hugmyndir fólks taki mið af menningar- ástandinu á hverjum tíma. Álfar hafa til dæmis minnkað verulega frá miðöldum, nú eru þeir bara litlar skrautlegar verur en voru áður jafnstórir mönnum og fjölkunn- ugir. Þetta er í samræmi við hugmyndir okkar nútímamanna um að maðurinn sé stærstur og drottni yfir jörðinni. Það er glæný hugsun að vernda þurfi jörðina fyr- ir manninum. Lengst af hefur jörðin verið miklu sterkari í hugum manna en það hef- ur snúist við.“ „Við leggjum gífurlegt traust á lækna í dag. Þessu var alls ekki svona farið á tímum Eyrbyggju. Læknar höfðu ekki þetta vald eða þessa ábyrgð,“ segir Ármann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.