Læknablaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 40
560 LÆKNAblaðið 2017/103
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
„Afi þinn er óvinurinn,“ segir Ár-
mann Jakobsson prófessor í íslenskum
bókmenntum fyrri alda sem flutti erindi
um Eyrbyggju á málþingi Félags áhuga-
manna um sögu læknisfræðinnar um
Fróðárundrin. Hann ræddi þversagnir
í sögunni þar sem kristnin tekst á við
hinn heiðna sið með ýmsum hætti og
greinilegu trúboði. Þar kemur Snorri goði
verulega við sögu til að kveða niður pest
og draugagang sem gýs upp í kjölfar þess
að Þórgunnur, útlend kona, deyr nýkomin
til landsins og ekki er farið að fyrirmælum
hennar um að brenna klæði þau er hún
lætur eftir sig.
„Brennsla klæða Þórgunnar bendir til
þess að fólk hafi haft einhvern skilning á
því að pest gæti smitast með einhverjum
hætti en það er þó ekki hægt að leggja
þetta að jöfnu við bakteríuhugsun nútím-
ans. Það finnast engar heimildir frá þess-
um tíma um að menn hafi haft hugmynd
um möguleikann á slíkum smitleiðum,“
segir Ármann og vísar til erinda læknanna
á málþinginu sem sagt er frá annars staðar
hér í blaðinu.
„Íslendingasögurnar eru fullar af þver-
sögnum sem helgast af því að ritararnir
eru að lýsa forfeðrum sínum og afstaðan
til þeirra er því í grunninn jákvæð, en
þessir forfeður voru heiðingjar og þannig
hluti af óvinaliðinu. Þeir eru því bæði
góðir og vondir. Óvinurinn er afi þinn.
Þetta veldur greinilegri togstreitu hjá
sagnariturunum en tvíhyggja góðs og ills,
hins gamla vonda siðar og og hins nýja
góða er þó aflgjafi sagnanna.
Snorri goði var særingamaður að mínu
áliti, læknir í einhverjum skilningi en þó
allt öðrum skilningi en við nútímamenn
leggjum í hugtakið,“ segir Ármann í upp-
hafi. „Mig langaði til að kynna fyrir áheyr-
endum að á ritunartíma Eyrbyggju og þá
ekki síður á þeim tíma sem atburðir henn-
ar gerast var alls ekki hin svokallaða lækn-
isfræðilega hugsun ríkjandi. Sennilega
hefur hin læknisfræðilega hugsun aldrei
verið jafn sterk og ríkjandi og á okkar tím-
um. Læknisfræðin tengist okkur sjálfum á
miklu beinni hátt en til dæmis eðlisfræði
eða stjörnufræði, þó hvorttveggja sé hluti
af heimsmynd fólks í dag. Heimsmynd
okkar takmarkast að einhverju leyti við
líkamann sem er í rauninni okkar eini
heimur, því þó við gleðjumst yfir því að
heimurinn haldi áfram eftir okkar dag
þá vitum við líka að okkar persónulega
heimi lýkur við dauðann. Þess vegna er
hin læknisfræðilega heimsmynd nútíma-
mannsins honum svo mikilvæg. Þegar
okkur líður illa förum við til læknisins og
hann linar þjáningar okkar en einnig – og
það er enn mikilvægara – hann segir okk-
ur hvað er að, hvort við lifum eða deyjum
og með þessu er lækninum falin gríðarleg
ábyrgð. Við ætlumst nánast til þess að
læknarnir tryggi okkur áframhaldandi líf.
Við leggjum gífurlegt traust á lækna í dag.
Þessu var alls ekki svona farið á tímum
Eyrbyggju. Læknar höfðu ekki þetta vald
eða þessa ábyrgð. Fólk treysti ekki á þá
heldur annars konar hjálpræði, guðlega
forsjá aðallega en Eyrbyggja lýsir einnig
annars konar trú, heiðnum sið sem ég tel
að hafi í einhverri mynd lifað af kristni-
tökuna þó kristnin hafi verið ráðandi eftir
það. Ýmsir fornir siðir fengu að lifa sam-
hliða og þar á meðal galdrar en þeir eru
smám saman skilgreindir sem andstæðir
kristninni og sagðir djöfullegir og það sér
maður greinilega í þeim ritum sem skrif-
uð eru á milli 1200-1400. Þar eru galdrar
skilgreindir æ skýrar sem andstæðir
kristinni trú og barátta góðs og ills krist-
allast í þessu. Í Eyrbyggju er þetta kannski
ekki mjög slæmt því þar er sagt frá því
að Snorri goði og forfeður hans gangi í
Helgafell eftir dauðann og það er ekki
sérlega hættulegt kristninni þó sannarlega
boði kristnin að eftir dauðann fari fólk
annaðhvort upp eða niður en gangi ekki í
fjall og stundi þar eilíf veisluhöld.“
Fyrsti jarðfræðingurinn er misskilningur
„Snorri goði er mjög áhugaverð persóna
og reyndar líka í nútímamenningu því
honum hefur verið eignaður brandari sem
hann sagði aldrei „Hverju reiddust goðin
þá er hraunið brann það er nú stöndum
vér á.“ Þessi setning er raunar bræðingur
úr tveimur setningum sem honum eru
eignaðar í frásögnum af kristnitökunni og
er síðan steypt saman einhvern tímann á
20. öldinni. Hér er Snorra í rauninni lýst
sem 20. aldar manni eða að minnsta kosti
upplýsingarmanni sem er seinni tíma fyr-
irbæri og alls ekki í anda þess sem menn
hugsuðu á dögum Snorra. Með þessu
erum við búinn að ramma Snorra inn í
okkar heimsmynd og getum ekki einu
sinni verið viss um að sú merking sem
við leggjum í þessa setningu sé sú sama
og höfundurinn eða Snorri gerðu á sínum
tíma.
Síðan á Sigurður Þórarinsson jarð-
fræðingur að hafa sagt að þetta væri fyrsta
jarðfræðilega ábendingin á Íslandi en það
„Afi þinn er óvinurinn“
– viðtal við Ármann Jakobsson um heilsugæslu í Eyrbyggju
Bókina The troll inside you skrifaði Ármann fyrir
erlendan markað. Forlagið punctum í Bandaríkjunum
gefur bókina út, hún fæst hjá Bóksölu stúdenta, Ey-
mundsson og Þjóðminjasafninu og á amazon.