Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.2017, Page 40

Læknablaðið - 01.12.2017, Page 40
560 LÆKNAblaðið 2017/103 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson „Afi þinn er óvinurinn,“ segir Ár- mann Jakobsson prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda sem flutti erindi um Eyrbyggju á málþingi Félags áhuga- manna um sögu læknisfræðinnar um Fróðárundrin. Hann ræddi þversagnir í sögunni þar sem kristnin tekst á við hinn heiðna sið með ýmsum hætti og greinilegu trúboði. Þar kemur Snorri goði verulega við sögu til að kveða niður pest og draugagang sem gýs upp í kjölfar þess að Þórgunnur, útlend kona, deyr nýkomin til landsins og ekki er farið að fyrirmælum hennar um að brenna klæði þau er hún lætur eftir sig. „Brennsla klæða Þórgunnar bendir til þess að fólk hafi haft einhvern skilning á því að pest gæti smitast með einhverjum hætti en það er þó ekki hægt að leggja þetta að jöfnu við bakteríuhugsun nútím- ans. Það finnast engar heimildir frá þess- um tíma um að menn hafi haft hugmynd um möguleikann á slíkum smitleiðum,“ segir Ármann og vísar til erinda læknanna á málþinginu sem sagt er frá annars staðar hér í blaðinu. „Íslendingasögurnar eru fullar af þver- sögnum sem helgast af því að ritararnir eru að lýsa forfeðrum sínum og afstaðan til þeirra er því í grunninn jákvæð, en þessir forfeður voru heiðingjar og þannig hluti af óvinaliðinu. Þeir eru því bæði góðir og vondir. Óvinurinn er afi þinn. Þetta veldur greinilegri togstreitu hjá sagnariturunum en tvíhyggja góðs og ills, hins gamla vonda siðar og og hins nýja góða er þó aflgjafi sagnanna. Snorri goði var særingamaður að mínu áliti, læknir í einhverjum skilningi en þó allt öðrum skilningi en við nútímamenn leggjum í hugtakið,“ segir Ármann í upp- hafi. „Mig langaði til að kynna fyrir áheyr- endum að á ritunartíma Eyrbyggju og þá ekki síður á þeim tíma sem atburðir henn- ar gerast var alls ekki hin svokallaða lækn- isfræðilega hugsun ríkjandi. Sennilega hefur hin læknisfræðilega hugsun aldrei verið jafn sterk og ríkjandi og á okkar tím- um. Læknisfræðin tengist okkur sjálfum á miklu beinni hátt en til dæmis eðlisfræði eða stjörnufræði, þó hvorttveggja sé hluti af heimsmynd fólks í dag. Heimsmynd okkar takmarkast að einhverju leyti við líkamann sem er í rauninni okkar eini heimur, því þó við gleðjumst yfir því að heimurinn haldi áfram eftir okkar dag þá vitum við líka að okkar persónulega heimi lýkur við dauðann. Þess vegna er hin læknisfræðilega heimsmynd nútíma- mannsins honum svo mikilvæg. Þegar okkur líður illa förum við til læknisins og hann linar þjáningar okkar en einnig – og það er enn mikilvægara – hann segir okk- ur hvað er að, hvort við lifum eða deyjum og með þessu er lækninum falin gríðarleg ábyrgð. Við ætlumst nánast til þess að læknarnir tryggi okkur áframhaldandi líf. Við leggjum gífurlegt traust á lækna í dag. Þessu var alls ekki svona farið á tímum Eyrbyggju. Læknar höfðu ekki þetta vald eða þessa ábyrgð. Fólk treysti ekki á þá heldur annars konar hjálpræði, guðlega forsjá aðallega en Eyrbyggja lýsir einnig annars konar trú, heiðnum sið sem ég tel að hafi í einhverri mynd lifað af kristni- tökuna þó kristnin hafi verið ráðandi eftir það. Ýmsir fornir siðir fengu að lifa sam- hliða og þar á meðal galdrar en þeir eru smám saman skilgreindir sem andstæðir kristninni og sagðir djöfullegir og það sér maður greinilega í þeim ritum sem skrif- uð eru á milli 1200-1400. Þar eru galdrar skilgreindir æ skýrar sem andstæðir kristinni trú og barátta góðs og ills krist- allast í þessu. Í Eyrbyggju er þetta kannski ekki mjög slæmt því þar er sagt frá því að Snorri goði og forfeður hans gangi í Helgafell eftir dauðann og það er ekki sérlega hættulegt kristninni þó sannarlega boði kristnin að eftir dauðann fari fólk annaðhvort upp eða niður en gangi ekki í fjall og stundi þar eilíf veisluhöld.“ Fyrsti jarðfræðingurinn er misskilningur „Snorri goði er mjög áhugaverð persóna og reyndar líka í nútímamenningu því honum hefur verið eignaður brandari sem hann sagði aldrei „Hverju reiddust goðin þá er hraunið brann það er nú stöndum vér á.“ Þessi setning er raunar bræðingur úr tveimur setningum sem honum eru eignaðar í frásögnum af kristnitökunni og er síðan steypt saman einhvern tímann á 20. öldinni. Hér er Snorra í rauninni lýst sem 20. aldar manni eða að minnsta kosti upplýsingarmanni sem er seinni tíma fyr- irbæri og alls ekki í anda þess sem menn hugsuðu á dögum Snorra. Með þessu erum við búinn að ramma Snorra inn í okkar heimsmynd og getum ekki einu sinni verið viss um að sú merking sem við leggjum í þessa setningu sé sú sama og höfundurinn eða Snorri gerðu á sínum tíma. Síðan á Sigurður Þórarinsson jarð- fræðingur að hafa sagt að þetta væri fyrsta jarðfræðilega ábendingin á Íslandi en það „Afi þinn er óvinurinn“ – viðtal við Ármann Jakobsson um heilsugæslu í Eyrbyggju Bókina The troll inside you skrifaði Ármann fyrir erlendan markað. Forlagið punctum í Bandaríkjunum gefur bókina út, hún fæst hjá Bóksölu stúdenta, Ey- mundsson og Þjóðminjasafninu og á amazon.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.