Morgunblaðið - 06.07.2018, Síða 7
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2018
Fréttir hafa borist af því aðstjórnvöld í Svíþjóð hafi tekið
upp tímabundnar reglur um herta
landamæragæslu. Þetta felur svo
sem ekki í sér mjög harkalega
landamæragæslu og tímabundna
sænska gæslan
þætti til dæmis
lausatök sem
ekki yrðu liðin
í Bandaríkj-
unum.
Og svo eróvíst að gæslan skili miklu til
að leysa þann vanda sem við er að
glíma nú. Gústaf A. Skúlason seg-
ir til dæmis frá því á blog.is að
vegabréfagæslan muni ekki
stöðva þá íslömsku vígamenn sem
þegar hafi hreiðrað um sig í Sví-
þjóð. Og hann lýsir því hvernig of-
beldið aukist í landinu, í ár sé til
dæmis þegar búið að vega fleiri í
Malmö en allt árið í fyrra.
Aukna gæslan í Svíþjóð snýstum að skoða vegabréf fólks,
sem ætti ekki að þykja frásagnar-
vert enda bendir utanríkisráðu-
neytið íslenska á í þessu sambandi
að vegabréf séu einu gildu ís-
lensku ferðaskilríkin, einnig inn-
an Norðurlandanna.
Það er ekki mikið tiltökumál aðhafa vegabéf meðferðis á
ferðum erlendis og líklega gera
það flestallir, líka innan Norður-
landanna. Þó ekki væri nema til
að sýna fram á að þeir þurfi ekki
að sýna vegabréf.
Hitt er mikið áhyggjuefnihvers vegna Svíar taka þá
ákvörðun að auka landamæraeft-
irlit sitt. Þeir segja öryggi al-
mennings ógnað og benda á alvar-
lega bresti í eftirliti með ytri
landamærum Schengen-svæðisins.
Þeir brestir snerta okkur ekki síð-
ur en Svía.
Brestir gagnvart
fleirum en Svíum
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 5.7., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 8 léttskýjað
Akureyri 10 alskýjað
Nuuk 3 alskýjað
Þórshöfn 9 rigning
Ósló 19 léttskýjað
Kaupmannahöfn 18 alskýjað
Stokkhólmur 23 heiðskírt
Helsinki 18 rigning
Lúxemborg 20 súld
Brussel 25 heiðskírt
Dublin 20 skýjað
Glasgow 19 heiðskírt
London 27 skýjað
París 26 rigning
Amsterdam 19 léttskýjað
Hamborg 19 skýjað
Berlín 30 heiðskírt
Vín 27 þrumuveður
Moskva 19 léttskýjað
Algarve 25 léttskýjað
Madríd 28 léttskýjað
Barcelona 28 léttskýjað
Mallorca 29 skýjað
Róm 28 léttskýjað
Aþena 31 heiðskírt
Winnipeg 21 léttskýjað
Montreal 29 léttskýjað
New York 27 skýjað
Chicago 30 heiðskírt
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:17 23:49
ÍSAFJÖRÐUR 2:23 24:53
SIGLUFJÖRÐUR 2:02 24:39
DJÚPIVOGUR 2:35 23:30
Hrina skemmd-
arverka stendur
nú yfir í hverfum
105, 107 og 108 í
Reykjavík en lög-
reglunni hefur
borist fjöldi til-
kynninga um
brotnar rúður á
bílum og strætó-
skýlum í hverf-
unum undanfarnar vikur.
„Það er orðrómur um að tveir
pjakkar á einhverri vespu aki um og
séu að brjóta rúður á bílum sem
þeir keyra fram hjá og strætó-
skýlum,“ sagði Jóhann Karl Þóris-
son aðstoðaryfirlögregluþjónn um
málið.
Lögregla hafði áður beðið íbúa
þessara hverfa að senda sér upplýs-
ingar um skemmdir, staðsetningu
þeirra og tímasetningu til að hægt
yrði að kortleggja skemmdarverkin.
Að sögn Jóhanns Karls vantaði ekk-
ert í bifreiðirnar sem höfðu orðið
fyrir hnjaski og virðist því ekki vera
um þjófa að ræða. „Þetta kemur í
bylgjum,“ sagði hann um tíðni
skemmdarverka. „Tveir svona gaur-
ar geta hleypt hellingi upp.“
Skemmd-
arverk í
Austurbæ
Tveir drengir á
vespu grunaðir
Skemmd Bílrúður
hafa verið brotnar.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Tillögu stjórnarandstöðunnar í
borgarráði um að dagskrá í ráðum
og nefndum á vegum borgarinnar
yrði gerð aðgengileg á vef Reykja-
víkurborgar fyrir fundi var frestað á
fundi ráðsins í gær.
Fram kom í tillögunni að dagskrá
hefði fram til þessa aðeins verið send
á ráðsmenn og starfsmenn ráða og
nefnda en ekki verið aðgengileg al-
menningi.
Almenningur geti fylgst með
„Það að dagskráin er ekki auglýst
fyrirfram gerir það að verkum að
fólk getur ekki fylgst með. Í þinginu
er dagskrá auglýst fyrirfram og í
öðrum löndum líka,“ segir Eyþór
Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna.
„Þessu var frestað eins og mörg-
um öðrum málum á fundinum. Ég
tel sérstakt ef þetta yrði ekki sam-
þykkt að lokum. Það væri allavega í
andstöðu við gagnsæi og lýðræði.
Við munum fylgja þessu hart eftir,“
segir hann.
Tillögu Kolbrúnar Baldursdóttur,
Flokki fólksins, um setningu sam-
skiptareglna borgarfulltrúa var
hafnað af borgarmeirihlutanum með
þeim rökum að siðareglur borgar-
fulltrúa tækju til samskipta fulltrú-
anna.
Tillögu um auglýsta dagskrá frestað
Fylgja málinu eftir í borgarráði Meirihlutinn hafnaði samskiptareglum
Morgunblaðið/Valli
Ráðhúsið Nýkjörnir borgar-
fulltrúar á námskeiði í sumar.