Morgunblaðið - 14.07.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.07.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2018 Með sjálfbærni að leiðarljósi Finnsk innanhússhönnun 02.03–02.09.2018 www.norraenahusid.is Innblásið af Aalto Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Árvakur hf. og 365 miðlar hf. hafa undirritað kaupsamning um kaup á 100% hlutafjár í Póstmiðstöðinni hf. Árvakur er útgáfufélag Morg- unblaðsins og 365 miðlar er eigandi Torgs ehf. útgáfufélags Frétta- blaðsins. Póstmiðstöðin er nú þegar dreifingaraðili Fréttablaðsins en áætlanir kaupenda gera ráð fyrir að Póstmiðstöðin muni einnig ann- ast dreifingu Morgunblaðsins, gangi kaupin í gegn. Í í sameiginlegri fréttatilkynn- ingu félaganna tveggja er haft eftir Ingibjörgu S. Pálmadóttur, for- stjóra 365 miðla, að alþekkt sé að rekstrarumhverfi fjölmiðla á Ís- landi hafi verið erfitt. Við slíkar að- stæður sé mikilvægt að eðlileg hag- ræðing fái að eiga sér stað. „Þessi kaup Árvakurs og 365 miðla eru liður í því að tryggja að áfram verði gefin út öflug dagblöð á Ís- landi, og að innlendir aðilar, stórir og smáir hafi aðgang að öflugri dreifingarþjónustu sem veitir einokunarþjónustu ríkisins sam- keppni og aðhald,“ er haft eftir Ingibjörgu. Svipuð þróun og erlendis „Erlendis hefur þróunin verið sú að dagblöð hafa samnýtt dreifikerfi til að takast á við erfiðar markaðs- aðstæður. Hér á landi er ekki síður þörf á að fara þessa leið þegar haft er í huga að íslenski fjölmiðlamark- aðurinn er smár, hann býr við mikla erlenda samkeppni, auk harðrar samkeppni við umsvifa- mikið ríkisfyrirtæki,“ er haft eftir Haraldi Johannessen, fram- kvæmdastjóra Árvakurs, í tilkynn- ingunni. Fyrirvari á kaupunum Kaupsamningurinn er m.a. gerð- ur með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Árvakur mun fara með 51% eignarhlut í Póstmiðstöðinni og 365 miðlar 49% að kaupunum loknum. Seljendur Póstmiðstöðvarinnar eru Fiskisund ehf., Stahan II ehf. og Hannes Hannesson. Póstmiðstöðin rekur þjónustu sem nær m.a. til móttöku, söfnunar og flutnings á póstsendingum og segir Haraldur að leitast verði við að tryggja að starfsmenn muni njóta ávinnings af breytingunum. Árvakur og 365 miðlar kaupa Póstmiðstöðina  Hörð samkeppni og smár markaður kallar á hagræðingu Morgunblaðið/Valli Þarfaþing Póstmiðstöðin tekur á móti, flokkar og flytur póstsendingar. Haraldur Johannessen Ingibjörg S. Pálmadóttir Ágætur gangur hefur verið að undanförnu í heyskap hjá bændum í Skagafirði og fyrri slætti er víða lokið. Á bænum Syðri-Hofdölum í Blönduhlíð lauk fyrri slætti nú í vikunni og var eftirtekjan alls um 1.600 rúllur sem hlaðið hefur verið upp í miklar stæður skammt sunnan við útihúsin. Um miðjan ágúst verður svo seinni sláttur tekinn og ætti hann að skila um 1.000 rúllum til viðbótar. „Veðrið hefur lítið truflað okkur í hey- skapnum,“ segir Atli Traustason, bóndi í Syðri-Hofdölum. Almennt hefur heyskapur gengið vel á Norðurlandi. „Sprettan hefur verið mikil, enda yfirleitt hlýtt og svo koma skúradembur sem gera gróðrinum gott. Seinni sláttur sem er að hefjast ætti að skila bændum miklum heyjum. Einhverjir verða því að taka þriðja sláttinn og því eru menn í fullri alvöru að ræða útflutning á heyi til Noregs. Hverjir möguleikarnir þar eru ætti að skýrast eftir helgina,“ segir Sigurgeir Hreins- son, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar. Á Suðurlandi er allt skemmra á veg komið, enda hefur úr- koma sett flest úr skorðum þar. Sunnanlands verður rigning um helgina, en á mánudag snýst, að sögn veðurfræðings, í norðlægar áttir og þá rofar til með sólskini með allt að fimm- tán stiga hita og brakandi þerri. Slíkt er gott heyskaparveður og þess munu bændur til dæmis í Borgarfirði og á Suðurlandi sérstaklega njóta. „Hér í Landeyjum og raunar víðar á Suður- landi er talsvert um að bændur hafi ekki lokið fyrri slætti, sem er óvenjulegt í miðjum júlí. Þessu veldur rigningin og stund- um hafa menn þurft að rúlla heyinu áður en það er orðið vel þurrt. Allt hefur þetta samt sloppið til en klárlega er þetta engin óskastaða. Menn eru að bíða eftir góðum þurrki og það er víst von á glætu eftir helgina,“ sagði Hlynur Snær Theó- dórsson, bóndi á Voðmúlastöðum í Austur-Landeyjum, í sam- tali við Morgunblaðið. Þar á bæ er allt hey tekið í rúllur þó að bændur séu í vaxandi mæli farnir að verka vothey í stæður, þá einkum á stórbúum. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þúsundum af heyrúllum ekið í stæðurnar Heyskapur langt kominn á Norðurlandi en rigningin veldur vanda hjá sunnlenskum bændum „Ríkisstjórnin skal nú gera sér grein fyrir því að öll spjót standa á henni og að ábyrgðin er hennar ef eitthvað fer úrskeiðis á Landspít- alanum.“ Þetta er meðal þess sem kemur fram í fundaboði samtak- anna Jæja sem boðað hafa til mót- mælafundar á Austurvelli á þriðju- dag undir yfirskriftinni: „Vaknið ríkisstjórn!“ Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu slitnaði upp úr kjaraviðræðum samninganefnda ljósmæðra og ríkisins á sáttafundi á þriðjudag og hefur ekki verið boð- að til nýs fundar. Að öllu óbreyttu hefst yfirvinnu- bann ljósmæðra á miðnætti 18. júlí en þær gera kröfu um 17-18% kaup- hækkun. Ber því enn nokkuð á milli því tilboð ríkisins náði ekki tólf pró- sentum, segir Katrín Sif Sigur- geirsdóttir, formaður samninga- nefndar ljósmæðra. Boðað til mótmælafundar á þriðjudaginn Jæja Tveir samstöðufundir hafa nú þegar verið haldnir í tengslum við kjarabaráttuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.