Morgunblaðið - 14.07.2018, Síða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2018
gömlu fiskverkunarhúsi. Raunar var
fiskverkunarhúsið áður sláturhús í
eigu samvinnufélagsins. Versl-
unarhúsið var byggt árið 1933 en slát-
urhúsið 1950. Húsin eru á landi í eigu
Haganess ehf. sem er í eigu ótengdra
aðila. Starfsemi þess er æðarrækt og
æðardúnstekja. Gunnar segir við-
haldið kosta sitt.
„Þetta var farið að kalla á mikið við-
hald. Ég hafði orðið ekkert með þetta
að gera. Ég sá að þetta myndi drabb-
ast niður. Svo kostar helling að eiga
hús. Við gerðum út á grásleppu úr
Haganesvík og vorum með hrogna-
verkun í þessum húsum. Við geymd-
um þar veiðarfæri og dót. Þess vegna
keyptum við húsnæðið á sínum tíma.“
Fljótabakki hefur sýnt fleiri eignum
áhuga. Samkvæmt heimildum blaðs-
ins hefur Fljótabakki þannig gert til-
boð í jörðina Hraun við Miklavatn.
Hún er um 2.300 hektarar. Fleiri til-
boð hafa borist. Salan er ófrágengin.
Þar hafa verið nokkur hlunnindi af
dúntekju og veiði. Rætt er við ábú-
anda á Brúnastöðum hér til hliðar.
Fljótabakki og tengd félög
Blue Elver hf.
Fljótabakki ehf.
Sun Ray Shadow H. BV**
Mos Eisley Cantina LLC
Delaware, Bandaríkjunum*
Fljótabakki ehf.
Skuld við tengd félög***
■ Wilderness Machines LLC
■ Irwin Backcountry Guides
LLC
■ Sun Ray Shadow H. BV
■ Interiors LLC
■ Jetson Systems LLC
■ Grassy Creek LLC
■ Brouwersgracht
Houdstermaatschappij BV
■ Grassy Creek Amsterdam
BV
■ Grassy Creek LLC UK
Branch
■ Freestone Builders LLC
■ SNC Trousset - Le Miroir
■ No. 12 Interiors
■ Fillmore West Investment
Trust (FWIT)
■ Blue Elver hf.
Green Highlander ehf.
Skuld við tengd félög***
■ CS Irwin LLC
■ Wilderness Machines LLC
■ Irwin Backcounty Guides
LLC
■ Brouwersgracht
Houdstermaatschappij BV
■ Sun Ray Shadow H. BV
■ Fljótabakki ehf.
■ Grassy Creek LLC
■ Blue Elver ehf.
■ Hölkni ehf.
■ Crested Butte Club LLC
■ Grassy Creek Amsterdam BV
■ Grassy Creek LLC UK
Branch
■ Jetson Systems LLC
■ SNC Trousset - Le Miroir
■ Silver Sides LLC
■ Black Sheep ehf.
■ Chad Pike
■ Alan Pike
■ No. 12 Interiors UK Branch
Hölkni ehf.
Skuld við tengd félög***
■ Blue Elver ehf. - Lang-
tímalán
■ Members (ekki útskýrt)
■ Grassy Creek Amsterdam
BV
■ Sun Ray Shadow H. BV
■ Fljótabakki ehf.
■ Grassy Creek LLC
■ SNC Trousset - Le Miroir
■ Blue Elver ehf.
■ Green Highlander ehf.
Black Sheep ehf.
Skuld við tengd félög***
■ Blue Elver hf., móðurfélag
■ No. 12 Interiors LLC
■ Fljótabakki ehf.
■ Grassy Creek LLC
■ Green Highlander ehf.
■ Irwin Backcountry Guides
LLC
■ Grassy Creek Amsterdam
BV
■ Jetson Systems LLC
■ SNC Trousset - Le Miroir
■ Hölkni ehf.
Blue Elver
Skuld við tengd félög***
■ Viðskiptareikningur FWIT****
■ Viðskiptareikningur Grassy
Creek BV
■ Grassy Creek LLC
■ Langtímalán Sun Ray Shadow
H. BV
■ Viðskiptareikningur Sun Ray
Shadow H. BV
Black Sheep ehf. Green Highlander ehf.
Varpland hf.
John Harald Örneberg
Hölkni ehf.
100%
100%
100%
100% 100% 60% 40%
100%
*Samkvæmt hollensku fyrirtækjaskránni, Kamer van Koophandel,
er félagið eini hluthafinn í Sun Ray Shadow. **Félagið heitir fullu
nafni Sun Ray Shadow Houdstermaatschappij BV. ***Samkvæmt
ársreikningi 2016. ****Fillmore West Investment Trust (FWIT). Heimild: Creditinfo
„Þegar þetta byrjaði að byggjast
upp fyrir um þremur árum var
maður bjartsýnn um að það yrði
meiri innspýting. Þetta er stór
vinnustaður sem ætti að gefa mikla
innspýtingu í samfélagið. Það hef-
ur gerst sumstaðar, til dæmis í
Öræfunum. Það er nú fyrst í sum-
ar að einhverjir heimamenn eru
farnir að vinna þarna,“ segir Jó-
hannes H. Ríkharðsson, bóndi á
Brúnastöðum,
og nefnir að
starfsmanna-
velta sé mikil á
hótelinu á Depl-
um.
Jóhannes seg-
ir að hin hliðin á
peningnum sé sú
að samfélaginu á
svæðinu gæti
stafað hætta af.
„Við höfum
áhyggjur af því að það sé verið að
kaupa upp þessar jarðir sem losna,
án þess að þar verði föst búseta.“
Fámenni í sveitinni
„Við erum það fá í sveitinni að
hver jörð sem dettur út skiptir
miklu máli. Þetta varðar sam-
félagsmálin, að halda úti skóla og
slíku. Síðan þarf að manna göngur
og réttir og sinna félagsstarfi í
sveitinni,“ segir Jóhannes og nefn-
ir að grunnskólanum austan vatna
á Sólgörðum verði líklega lokað í
haust vegna fækkunar barna.
Hann nefnir að Fljótin séu ákveðin
„endastöð“ í sveitarfélaginu
Skagafirði og Norðvesturkjör-
dæmi. „Það er aldrei gott að vera á
endanum. Þótt við séum skammt
frá Siglufirði er það annað kjör-
dæmi og annað sveitarfélag. Það
skiptir máli að hér sé ákveðinn
fjöldi til að halda þessu samfélagi
gangandi. Það er ekki fyrir venju-
legt fólk að keppa við þessa fjár-
sterku aðila ef þeir ætla sér að
kaupa jarðirnar, ekki síst vegna
þess að við byggjum mikið á sauð-
fjárrækt hér. Staðan þar er ekkert
sérstaklega sterk og menn kannski
veikir fyrir.“
Ríkisvaldið grípi til aðgerða
Stefán Vagn Stefánsson, for-
maður byggðaráðs Skagafjarðar,
segir byggðaráð ekki hafa tekið
uppkaup á jörðum í Fljótum til at-
hugunar á fundum sínum.
„Við höfum samt ákveðnar
áhyggjur af stöðunni, ekki aðeins
þarna, heldur almennt vegna upp-
kaupa á jörðum sem kaupendur
ætla ekki til nytja,“ segir hann.
Stefán telur ríkið þurfa að grípa
til aðgerða, vandinn sé almennur
og á landsvísu. „Ég held að boltinn
sé hjá ríkisvaldinu, þetta verður að
byrja þar,“ segir hann. „Mér skilst
á Sigurði Inga [Jóhannssyni, sam-
göngu- og sveitarstjórnar-
ráðherra], að hann ætli að setja af
stað vinnu í þessum málum á
landsvísu. Það verður fróðlegt að
fylgjast með og við munum klár-
lega gera það.“
Íbúar í Fljótum
áhyggjufullir
Byggðarráð treystir á ríkisvaldið
Stefán Vagn
Stefánsson
Er stærsti
framleiðandi
sportveiðarfæra
til lax- silungs-
og sjóveiða.
Flugustangir og
fluguhjól í úrvali.
Gott úrval af
fylgihlutum til
veiða stólar, töskur,
pilkar til sjóveiða,
spúnabox margar
stærðir, veiðihnífar
og flattningshnífar.
Abulon nylon
línur.
Gott úrval af kaststanga-
settum, fyrir veiðimenn
á öllum aldri, og úrval af
„Combo“ stöng og hjól til
silungsveiða, lax veiða og
strandveiða. Flugustanga sett
stöng hjól og lína uppsett.
Kaststangir,
flugustangir, kast-
hjól, fluguhjól, gott
úrval á slóðum til
sjóveiða. Lokuð
kasthjól.
Úrval af
flugustöngum,
tvíhendur og hjól.
Balance Lippa, mjög
góður til silungsveiða
„Original“
Fireline ofurlína, gerfi-
maðkur sem hefur reynst
sérstaklega vel,
fjölbreitt gerfibeita
fyrir sjóveiði og
vatnaveiða,
Berkley flattnings-
hnífar í úrvali og
úrval fylgihluta fyrir
veiðimenn.
Flugnanet, regnslár,
tjaldhælar, og úrval af
ferðavörum
Helstu Útsölustaðir eru:
Veiðivon Mörkinni
Vesturröst Laugavegi
Veiðiportið Granda
Veiðiflugur Langholtsvegi
Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi
Kassinn Ólafsvík
Söluskáli ÓK Ólafsvík
Skipavík Stykkishólmi
Smáalind Patreksfirði
Vélvikinn Bolungarvík
Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík
Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga
Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki
SR-Bygginavöruverslun Siglufirði
Útivist og Veiði Hornið Akureyri
Veiðiríkið Akureyri
Hlað Húsavík
Ollasjoppa Vopnafirði
Veiðiflugan Reyðarfirði
Krían Eskifirði
Veiðisport Selfossi
Þjónustustöðvar N1 um allt land.
Dreifing: I. Guðmundsson ehf.
Nethyl 1, 110 Reykjavík.
Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com.
Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum
„Betri sportvöruverslunum landsins“