Morgunblaðið - 14.07.2018, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 14.07.2018, Blaðsíða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2018 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð Iben West og Else Ploug Isaksen – Augnhljóð í Myndasal Nanna Bisp Büchert – Annarskonar fjölskyldumyndir á Vegg Prýðileg reiðtygi í Bogasal Leitin að klaustrunum í Horni Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið alla daga 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið alla daga 10-17 LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR – 18.7 - 16.12.2018 Þann 18. júlí 2018 verður þjóðinni boðið á sýningu í Listasafni Íslands um fullveldi Íslands, forsendur þess og meginþætti í sjálfstæðisbaráttu og sjálfsmynd Íslendinga frá árinu 1918 til dagsins í dag. ÝMISSA KVIKINDA LÍKI - ÍSLENSK GRAFÍK – 11.5. - 23.9.2018 FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign – 7.4.2017 - 31.12.2019 BÓKFELL Eftir Steinu í Vasulka-stofu 18.5 - 31.12 2018 SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga frá kl. 10-17. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON 21.10.2017 - 7.10.2018 SUMARTÓNLEIKAR Kristín Einarsdóttir Mäntylä, Sigrún Björk Sævarsdóttir og Elena Postumi flytja sönglög. þriðjudaginn 17. júlí kl. 20:30. Opið alla daga frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR 15.5. - 15.9.2018 Opið alla daga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Dúettinn Ylja, þær Bjartey Sveins- dóttir og Gígja Skjaldardóttir, mun syngja og leika á gítara á stofu- tónleikum Gljúfrasteins á morgun kl. 16. Munu þær flytja nýstárlega þjóðlagatónlist, að því er fram kem- ur í tilkynningu en þar segir að Ylja hafi vakið verðskuldaða athygli fyrir þjóðlagatónlist sína þar sem draumkenndur gítarleikur hljómi fallega við hljómfagrar raddir Bjarteyjar og Gígju. Ylja fagnar í ár 10 ára afmæli og verður haldið upp á það um leið með tónleikunum. Þær stöllur munu leika sín helstu og þekktustu lög og einnig kynna efni af hljóm- plötu sem væntanleg er í haust. Stofutónleikarnir á Gljúfrasteini eru haldnir hvern sunnudag í sum- ar fram til 26. ágúst og hefjast allt- af kl. 16. Aðgöngumiðar eru seldir í safnbúð Gljúfrasteins á tónleika- degi og kosta 2.500 kr. en aðgangur er ókeypis fyrir börn á leikskóla- aldri. Yljandi Bjartey Sveinsdóttir og Gígja Skjaldardóttir skipa dúettinn Ylju. Ylja heldur afmælis- og stofutónleika Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is „Ég mun taka mörg lög af nýju plötunni minni í fyrsta skipti og mun rúlla henni í gegn ásamt ein- hverjum eldri lögum og mögulega einhverjum sem hafa aldrei heyrst opinberlega áður,“ segir rapparinn Aron Can Gultekin sem heldur tón- leika á Húrra í kvöld, laugardags- kvöld. Aron gaf nýlega út plötuna Trúpíter og segir hann að viðtökur við henni hafi verið mjög góðar.„Ég er mjög ánægður með viðtökurnar og veit að hlustendahópurinn er- lendis er að stækka,“ segir Aron en hann er nýkominn frá Noregi þar sem hann spilaði á tónlistarhátíð- inni North Of í Harstad. „Það var ógeðslega gaman. Ég spilaði líka í Ósló fyrr í sumar þann- ig að maður er svona smá farinn að fara meira út og kynnast mark- aðnum þar.“ Það kom Aroni á óvart þegar fólk frá tónlistarhátíðinni hafði samband við hann. „Þau sendu mér bara póst á Facebook, mjög „random“, og svo allt í einu var ég mættur út til þeirra. Senan hérna heima er nátt- úrulega mjög lítil miðað við annars staðar þannig að það er mjög gam- an að fara út og kynnast fleira fólki þar.“ Íslenskan engin hindrun Aron segir Norðmenn og Svía vera sérstaklega hrifna af tónlist- inni hans en Aron rappar og syngur oftast á íslensku. Hann segir það ekki hindrun að hann rappi á ís- lensku. „Það dýrka það allir. Bara svo allir viti það þá breytir engu hvort þú syngur á íslensku eða ensku. Ef þú ert nógu örugg eða öruggur og ef þér finnst þú vera að gera góða tónlist þá er það að fara að virka. Þú skilur ekkert hvað margir rapparar eru að segja þó að þeir rappi á ensku, þetta er alveg hætt að snúast um að skilja hvert einasta orð. Þú fattar bara væbið.“ Textarnir á Trúpíter, nýju plöt- unni, flæða vel og einkennast af endurtekningum. Um textasköp- unina segir Aron: „Textarnir eig- inlega koma bara til mín, ég pæli aldrei í því fyrir fram hvernig lag ég ætla að gera. Ef ég vil bara fara í stúdíó og gera eitthvað þá bara geri ég það. Ég fatta það kannski bara þegar ég er búinn að búa til hálft lagið eða þegar ég er búinn að skapa allt lagið hvernig lag þetta er. Textarnir á nýju plötunni eru eig- inlega bara það sem ég hef verið að hugsa akkúrat á þeirri stundu sem ég tek lagið upp.“ Aron segir að hann hafi verið að vinna að plötunni ómeðvitað í ein- hvern tíma. „Við vorum bara að gera tónlist í svona ár, vorum ekki að vinna að einhverri plötu fyrr en kannski fyrir fimm eða sex mán- uðum. Við ákváðum líka að vera ekki að hugsa um að við værum að gera einhverja plötu, héldum bara áfram að fara í stúdíó og gera góð lög. Þessi plata sýnir dálítið að við erum ekki með neinar mjög miklar pælingar á bak við allt heldur er þetta meira svona samansafn af fullt af lögum sem við höfum verið að vinna að. Svo ákváðum við að henda þeim saman í eina plötu þar sem þau eru öll í svipuðum dúr og þú getur rennt þeim mjög vel í gegn saman.“ Mennirnir á bak við taktana og tónlistina á plötunni eru Jón Bjarni Þórðarson og Aron Rafn Gissurarson en þeir þrír hafa unnið saman frá byrjun ferils Arons Can. Ánægður með ört vaxandi senu Rappsenan á Íslandi er í sífelldri mótun og margir nýir rapparar hafa skotið upp kollinum undan- farið. Aron er himinlifandi yfir þeirri þróun. „Mér finnst það bara geðveikt, þetta hjálpar mjög mörg- um ungum krökkum að ganga í gegnum ýmislegt. Rappið var eitt- hvað sem ég notaði til að gera að bara geggjuðu áhugamáli. Mér finnst snilld að það séu svona marg- ir ungir krakkar sem séu að byrja núna og sjúkt að þau geti fundið eitthvað sem hentar þeim sem virk- ar í raun og veru og fólk fílar. Ég dýrka bara að senan sé að stækka og að það sé mikið af ungum krökk- um að koma í hana. Það er bara gaman,“ segir Aron. Sticky plötuútgáfa hefur séð um að gefa tónlist Arons út síðustu tvö ár en Sticky er ung útgáfa á vegum skemmtistaðarins Priksins sem hef- ur gjarnan tekið að sér að gefa út efni fyrir unga rappara. „Þeir eru allir snillingar maður og algert „shout out“ á þá, þeir hjálpa okkur í öllu sem við gerum og gera það eig- inlega bara að verkum að við getum gert þetta svona. Mikil ást á þá.“ Tónleikarnir hefjast klukkan níu og standa til miðnættis, hugsanlega kemur fleira listafólk fram á tón- leikunum en Aron vill ekkert gefa upp um það. „Það koma örugglega einhverjir og taka einhver lög þarna óvænt. Fólk verður bara að mæta og sjá.“ Rappari í sókn  Aron Can heldur tónleika á Húrra í kvöld og flytur meðal annars lög af nýjustu plötu sinni, Trúpíter Morgunblaðið/Hari Upptekinn Það er nóg að gera hjá Aroni þessa dagana. Hann er nýkominn frá Noregi þar sem hann spilaði á tónlist- arhátíðinni North Of en vinsældir hans erlendis hafa aukist mikið síðustu misseri, þá sérstaklega í Skandinavíu. Morgunblaðið/Valli Vinsæll Aron Can á Secret Solstice-hátíðinni í júní síðastliðnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.