Morgunblaðið - 14.07.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 14.07.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2018 SKECHERS FLEX APPEAL 2.0 DÖMUSKÓR MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI. STÆRÐIR 36-41 DÖMUSKÓR KRINGLU OG SMÁRALIND 7.797 VERÐ ÁÐUR 12.995 40% AFSLÁTTUR Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Kunningsskapur okkar hófstfyrir fimm árum þegarÖmer var aðeins 17 ára ogvar að leita sér að samstarfsaðila fyrir Erasmus- verkefni sem hann hafði fengið hug- mynd að og langaði að hrinda í fram- kvæmd,“ segir Jóhanna Ingvarsdóttir um upphaf samstarfs og vináttu henn- ar og ungs tyrknesks manns, Ömer Gülmez, sem nú er orðinn 22 ára. „Það var mín gæfa að hitta á Jó- hönnu, við vinnum svo vel saman. Ég sækist eftir því erfiða og fjarlæga og ákvað því að teygja mig alla leið til Ís- lands þegar ég fór af stað með þetta fyrsta verkefni. Þó ég hafi verið að- eins sautján ára og hún nærri fjórum áratugum eldri, þá fundum við strax að við áttum vel saman sem vinnandi teymi. Þetta snýst allt um tilfinning- una, að tengja við manneskju og eiga auðvelt með að vinna saman. Gagn- kvæmt traust er grundvallaratriði, en auk þess er ekkert gaman ef sam- vinna er formleg og fólk finnur ekki tengingu,“ segir Ömer og Jóhanna bætir við að henni finnist aldrei að hún sé að tala við kornungan mann, heldur fullorðinn jafningja. „Við grínumst stundum með að Jóhanna sé orðin íslenska stjúp- mamma mín,“ segir Ömer og hlær. Jóhanna segir að samvinna þeirra fari að mestu leyti fram á skila- boðaskjóðunni á fésbók og að þau tali þar saman nánast fimm sinnum á dag. „Ömer er svo kappsamur að hann hringir stundum á sunnudags- morgnum til að segja mér frá nýjustu hugmyndunum sem hann fær. Hann áttar sig ekki á því að ég þarf að sofa út,“ segir Jóhanna. „Ef fólk ætlar að komast áfram í lífinu, þá þarf það að vera opið fyrir hverskonar tækifærum, þannig vinn ég, ég loka ekki á neitt fyrirfram,“ segir Jóhanna og telur það vera ástæðu þess að henni hafi gengið svo vel sem raun ber vitni að fá styrki vegna þeirra fjögurra verkefna sem hún og Ömer hafa unnið saman. Fara með hópana út í heim Þessi fjögur Erasmus-verkefni sem Jóhanna og Ömer hafa haft frumkvæði að snúast öll um svokölluð ungmennaskipti milli skóla í ólíkum löndum, fyrir nemendur á aldrinum 18-22 ára, undir merkjum óhefðbund- innar menntunar. „Þetta snýst um gagnvirkni, þau læra í gegnum leiki og miðla hvert öðru með jafningjafræðslu. Hvert verkefni hefur verið með fjórar sam- starfsþjóðir, níu þátttakendur frá hverju landi eða samtals 36 manns í það heila. Hver hópur býr til kynn- ingar fyrirfram um þema verkefnis hverju sinni um ástand mála í sínum heimalöndum og deilir því meðal jafn- aldra frá öðrum löndum þegar hóp- arnir koma saman í fyrirfram völdum löndum auk þess sem ímyndunarafl- inu er gefinn frjáls taumur þegar hóp- arnir halda sín menningarkvöld og kynna land, siði, mat, músík og aðrar þjóðlegar hefðir,“ segir Jóhanna sem sótt hefur um styrki vegna verkefn- anna hjá landsskrifstofu Erasmus á Íslandi. En þar er við marga að keppa og umsóknarferlið tekur langan tíma, því bíða þarf í tvo til þrjá mánuði eftir svari. „Fyrsta verkefnið okkar Ömers var fjölmenningarverkefni þar sem Fjölbrautaskólinn í Garðabæ tók á móti erlendum ungmennum frá þremur löndum, Rúmeníu, Litháen og Tyrklandi. Þau voru í sjö daga á Ís- landi og ég leigði rútu og bílstjóra og fór með hópinn víða um Ísland. Ég fékk þrjá kennara úr skólanum til liðs við mig,“ segir Jóhanna og bætir við að þetta fyrsta verkefni hafi verið stórkostleg byrjun á framtíðarsam- starfi þeirra Ömers. „Annað verkefni okkar snerist um netfíkn og eitur- lyfjafíkn og í hópnum voru, auk nem- enda frá Íslandi, krakkar frá Tyrk- landi, Litháen og Spáni. Borgar- holtsskóli var með okkur og hópurinn hittist á Tenerife og á Íslandi. Þriðja verkefnið fjallaði um flóttamanna- vanda og fjölmenningu, og við unnum það með Fjölbrautaskólanum í Breið- holti. Þá hittist nemendahópurinn á Tenerife og í Grikklandi.“ Finnst Íslendingar gestrisnir Þau hafa nýlega fengið já við fjórða verkefninu og vinna það með Fjölbrautaskóla Snæfellinga, en það fjallar um loftslagsbreytingar og hnattræna hlýnun, endurvinnslu og endurnýjanlega orkugjafa. Sá hópur hittist á Tenerife og á Möltu í haust. „Ég hélt nýlega fund hér heima hjá mér með öllum hópstjórum þess verk- efnis, við vorum að plana dagskrána og negla allt niður. Þetta var eins og ítölsk fjölskylda, ég skipaði fólki í hlutverk, á grillið, í salatið, kartöfl- urnar og fleira. Ég henti börnunum mínum út til að koma fundargestum fyrir í gistingu og nágrannakona mín leigði út íbúðina sína fyrir restina af fólkinu, en hún er vön að gera það þegar fjölmennir fundir erlendra aðila eru hjá mér. Hún fer þá í sumarhúsið sitt á meðan. Þetta snýst um að redda sér,“ segir Jóhanna. Jóhanna starfar sjálfstætt að þróun og ritun Evrópuumsókna með sínu tengslaneti úti í Evrópu, sem er orðið býsna stórt og fer stækkandi. „Ég ákvað að búa til mína eigin vinnu- veröld fyrir fjórum árum þegar ég stóð uppi atvinnulaus, 53 ára. Ég flétt- aði inn í þá veröld mín helstu áhuga- mál, ferðalög og ólíka menningar- heima, auk þess sem mér hefur alltaf fundist skemmtilegt að vinna með ungu fólki. Á þessum fjórum árum hef ég landað samtals tíu mjög fjöl- breyttum Erasmus-verkefnum fyrir sjö aðila og fengið styrki fyrir samtals 147 milljónir króna. Ég er bara nokk- uð ánægð með mig, ég er orðin 57 ára og þarf orðið að hafna beiðnum um samstarf frá útlöndum þó að hefð- bundin atvinnuleit hér heima á Íslandi hafi lítinn árangur borið fyrir konu á sextugsaldri.“ Ömer er nú í sinni þriðju Íslands- heimsókn, en hann er að læra bygg- ingaverkfræði í háskóla í Ankara heima í Tyrklandi. „Hann bað mig um að redda sér starfsnámi á Íslandi í sumar og þeir hjá Vegagerðinni tóku okkur vel. Þar hefur hann verið und- anfarnar vikur. Hann elskar Ísland og byrjar alla morgna á því að lesa mbl.is, visi.is og aðra miðla, bregður þýðingarvél á fréttirnar,“ segir Jó- hanna en Ömer bætir við að margt sé líkt með Íslendingum og Tyrkjum. „Ég hef komið til 15 landa í heiminum en hér á Íslandi mæti ég meiri gest- risni en annars staðar. Grunngildin á Íslandi eru líka svipuð og heima, mér líður ekki eins og ég sé útlendingur hér.“ Aldursmunur truflar þau ekki Þó tæplega fjörutíu ár skilji þau að í aldri þá gengur samvinna þeirra fullkomlega fyrir sig. Þau segja gagnkvæmt traust vera grundvallar- atriði í samvinnu sem og tilfinninguna fyrir manneskjunni sem unnið er með. Saman hafa þau landað fjórum stórum ungmennaskipta- verkefnum á þeim fjórum árum sem þau hafa þekkst. Og þau eru hvergi nærri hætt. Ömer og Jóhanna eru afkastamikið tvíeyki. Gaman Jóhanna (þriðja t.h) og Ömer (blákæddur fremst) 2017 með þátttakendum frá fjórum löndum á Tenerife. Ömer og Jóhanna Á Grikklandi 2017 í Erasmus-verkefni um flóttamenn. Namm Loftur Árni Björgvinsson, kennari við Fjölbrautaskóla Snæfellinga, kynnir þeim Hector Fernandez og Carlos Ventura íslenskan hákarl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.