Morgunblaðið - 14.07.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2018
--- ALLT A EINUM STAD �
HÓT E L R E K S T U R
Komdu og skoðaðu úrvalið í
glæsilegri verslun að Hátúni 6a
Hágæða rúmföt,
handklæði
og fallegar
hönnunarvörur
fyrir heimilið
Eigum úrval
af
sængurvera
settum
Percale ofin –
Micro bómul
l,
egypskri og
indverskri bó
mull
Hátúni 6a, 105 Reykjavík | Sími 822 1574 | hotelrekstur.is
Baldur Arnarson, Jón Birgir
Eiríksson og Guðni Einarsson
Eigendur ferðaþjónustufyrirtækisins
Eleven Experience hafa keypt marg-
ar bújarðir og fasteignir í Fljótunum í
Skagafirði. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hafa þeir sýnt áhuga
á fleiri bújörðum í Fljótunum.
Félag með nafninu Eleven Exper-
ience er ekki skráð í fyrirtækjaskrá.
Fram kom í Morgunblaðinu haustið
2015 að eigandi félagsins sé Chad R.
Pike, yfirmaður hjá fjárfestinga-
sjóðnum Blackstone í Evrópu.
Að sögn Hauks B. Sigmarssonar,
framkvæmdastjóra Green High-
lander, sér það félag um rekstur
lúxushótelsins Deplar Farm í Fljót-
um. Reksturinn sé í samvinnu við
alþjóðlega ferðaþjónustufyrirtækið
Eleven Experience í Colorado.
Samkvæmt fyrirtækjaskrá er
Green Highlander eitt félaga sem
skráð er í eigu hollenska félagsins Sun
Ray Shadow Houdstermaatschappij
BV. Það er eigandi fjárfestingafélags-
ins Blue Elver hf. í Reykjavík.
Samkvæmt hollensku fyrirtækja-
skránni er Sun Ray Shadow, sem virð-
ist heita eftir laxveiðiflugu, skráð í
eigu félagsins Mos Eisley Cantina
(LLC) í Delaware í Bandaríkjunum.
Þess má geta að það félag hefur sama
nafn og bar sem kom við sögu í kvik-
myndinni Stjörnustríð. Michiel Frans
Emiel Nijhuis er skráður stjórnandi
Sun Ray Shadow. Hann er stjórnar-
maður í tengdum félögum á Íslandi.
100% hlutur í þremur félögum
Samkvæmt ársreikningi Blue Elver
2016 átti félagið 100% hlut í félögun-
um Fljótabakka, Black Sheep og
Green Highlander. Þá átti það 60%
hlut í félaginu Hölkna. John Harald
Örneberg er skráður fyrir 40% hlut í
Hölkna í gegnum félagið Varpland hf.
Eignir þess voru rúmar 317 milljónir í
árslok 2016. Örneberg var alþjóðlegur
fjárfestir sem hefur meðal annars
fjárfest í timbri.
Blue Elver var í ársreikningi 2016
skilgreint sem fjárfestingafélag.
Rekstrartap var 456,2 milljónir á
árinu. Eigið fé félagsins í lok árs 2016
var jákvætt um 3.014 milljónir en var
um 2.014 milljónir í byrjun sama árs.
Langtímakröfur á tengda aðila námu
um 3,36 milljörðum króna.
Hálft stöðugildi var hjá félaginu og
námu launagreiðslur 21,8 milljónum.
Friðleifur E. Guðmundsson var fram-
kvæmdastjóri. Með honum í stjórn
var áðurnefndur Michiel Nijhuis, sem
var þá jafnframt framkvæmdastjóri
Black Sheep og Green Highlander.
John Albert Featherman var þá fram-
kvæmdastjóri Hölkna. Aðalstarfsemi
Hölkna var skipulagning ferða og út-
leiga á gistirými. Aðalstarfsemi Black
Sheep og Green Highlander var starf-
semi eignarhaldsfélaga. Ársreikn-
ingar félaganna fyrir 2017 eru óbirtir.
Eignir í Reykjavík
Nokkrar eignir eru í félögunum.
Samkvæmt ársreikningi Black Sheep
átti félagið fasteignir á Ránargötu og
Smiðjustíg í Reykjavík. Bókfært verð
var alls rúmlega 385 milljónir.
Samkvæmt ársreikningi 2016 var
aðalstarfsemi Fljótabakka leiga at-
vinnuhúsnæðis. Þá kemur fram á vef
Skagafjarðar að Green Highlander
sótti vorið 2016 um rekstrarleyfi til
sölu gistingar og veitinga á Deplum.
Rekstur hótelsins er sem áður segir
í samstarfi við Eleven Experience.
Höfuðstöðvar þess félags eru að sögn
Hauks í Colorado í Bandaríkjunum.
Eleven Experience er með hótel víða
um heim, meðal annars í Banda-
ríkjunum, á Bahamaeyjum, Síle og í
Frakklandi. Fram kom í atvinnuaug-
lýsingu Green Highlander að Eleven
Experience bjóði „lúxusgistingu á
heimsmælikvarða og skipuleggi
ógleymanlegar ævintýraferðir og upp-
lifanir sérsniðnar að óskum hvers og
eins“. Reksturinn á Deplum hafi hafist
í apríl 2016. Samkvæmt vefsíðu Ele-
ven Experience kostar herbergi á
Deplum um 252 þúsund krónur á nótt.
Hófst með Deplum
Fasteignirnar í Fljótunum eru
skráðar á félagið Fljótabakka. Við-
skiptin hófust með kaupum á Deplum
í apríl 2011. Þar var reist um 2.500 fer-
metra lúxushótel. Það er langverð-
mætasta fasteignin í eignasafninu en
hún var metin á 2,8 milljarða í árslok
2016. Fljótabakki keypti svo sjö eignir
til viðbótar í Fljótum árin 2012-2017.
Upplýsingar um landamerki voru ekki
tiltækar hjá sýslumanni.
Fljótabakki hefur meðal annars
keypt jörðina Lund (land 1) sem Guð-
rún frá Lundi er kennd við.
Þá keypti Fljótabakki tvær fast-
eignir í Haganesvík í febrúar 2017.
Með þeim á Fljótabakki eignir um öll
Fljótin, frá Haganesi við Fljótavík og
til Hreppsendaár Ólafsfjarðarmegin.
Seldi gamla kaupfélagið
Gunnar Steingrímsson, bóndi í
Stórholti í Fljótum, var seljandi eign-
anna í Haganesvík. Annars vegar
seldi hann gamalt verslunarhús sem
var í eigu Samvinnufélags Fljóta-
manna og hins vegar helmingshlut í
Milljarða fjárfesting í Fljótunum
Erlendir aðilar hafa byggt lúxushótel og keypt fjölda jarða og bæja í Fljótunum í Skagafirði
Tengsl við mörg erlend félög Eignarhaldið skráð í Hollandi en hluthafinn í Bandaríkjunum
Fasteignir í Skagafirði
í eigu Fljótabakka
Hreppsendaá
Ól
afs
fjö
rð
ur
Hofsós
F
L
Ó
K
A
D
A
L
U
R
L á
gh
e i
ð i
F
L
JÓ
T
Deplar
Lundur
Knappsstaðir
Bjarnargil
Brúnastaðir
Hraun
Efra-Haganes
Krakavellir
Stóra-Brekka
Steinavellir
Bergland
M
iklavatn
Fljótavík
Stífluvatn
Fl
jó
ta
á
Flókadalsá
Siglufjörður
Kaup Fljótabakka í Fljótunum
Jörð Kaupdagur
Fasteignamat
2019 Ræktað land
Bókfært verð
31.12.2016*
Deplar 26. apríl 2011 296.607 19,5 ha. 2.806.271
Knappsstaðir 30. október 2012 9.593 9.4 ha. 30.218
Stóra-Brekka 8. september2014 41.052 42,1 ha. 34.339
Hreppsendaá 22. janúar 2015 1.281 10.221
Steinavellir 5. júlí 2016 930 6,7 ha.
Lundur, land 1 5. febrúar 2017 3.830 57,4 ha.
Efra-Haganes 1, lóð 2 27. febrúar 2017 10.915
Efra-Haganes 1, lóð 3 27. febrúar 2017 3.468
Samtals 367.676 135,1 ha. 2.881.049
Upphæðir eru í þús.kr.
Kortagrunnur: openstreetmap.org.
Heimild: Fasteignamatið. *Ársreikningur Fljótabakka 2016.
Ljósmynd/Eleven Experience
Deplar Farm Verkefnið er eitt það umfangsmesta í fágætisferðamennsku á
Íslandi. Gestum er boðið upp á þyrluferðir og fjölbreytta afþreyingu.
Jarðir sem eiga aðild að Veiðifélagi Miklavatns og Fljótaár eru 32 talsins.
Félagið Fljótabakki á eina af jörðunum, Stóru-Brekku, og fer með eitt at-
kvæði. Aðrar jarðir félagsins í Austur-Fljótum eru ofan uppistöðustíflu við
Skeiðsfoss. Þar sem fiskur gengur ekki lengra en að stíflunni nær aðild að
veiðifélaginu ekki til jarða ofan stíflu. Nýr samningur um rekstur árinnar
var gerður í fyrrahaust við Veiðiklúbb Íslands til fimm ára. Hótelið á Deplum
nýtir stóran hluta leyfa í ánni, en veitt er á fjórum stöngum.
Í samræmi við jarðareign Rarik í Austur-Fljótum á fyrirtækið sex at-
kvæði, en samkvæmt verklagsreglum fyrirtækisins skulu fulltrúar þess
sitja hjá við atkvæðagreiðslu og láta heimamenn um stjórn mála. Með
kaupum á Hrauni I og II myndi Fljótabakki eiga samtals þrjú atkvæði í Veiði-
félagi Miklavatns og Fljótaár. Jörðin Steinavellir í Flókadal er í eigu Fljóta-
bakka og liggur að Flókadalsá. Þannig á Fljótabakki aðild að Veiðifélaginu
Flóka ásamt eigendum 23 annarra jarða.
Veiðiréttindi fylgja jörðum
FÉLAGIÐ FLJÓTABAKKI OG JARÐAKAUP Í FLJÓTUM
Haukur B. Sig-
marsson, fram-
kvæmdastjóri
Green Highlan-
der, segir um 50
manns starfa á
hótelinu Deplar
Farm. Hann
segir heima-
menn og aðflutt
starfsfólk í
starfsliðinu.
Leitað sé til iðnaðarmanna í ná-
grenninu og sveitunga um ýmis
verkefni. Hann segir aðspurður
að hótelið hafi „klárlega verið
lyftistöng fyrir Fljótin“. Þegar
fjallað var um hótelið í Morgun-
blaðinu haustið 2015 áttu um 60
manns lögheimili í sveitinni.
Morgunblaðið sendi skriflega
fyrirspurn til Eleven Experience.
Var þar m.a. spurt um umfang
jarðakaupa, veiðiréttindi í sveit-
inni og um endanlegt eignarhald á
móðurfélaginu Sun Ray Shadow,
sem Haukur sagði í eigu Chad R.
Pike. Þá var spurt um áætlaða
veltu í ár og um félög sem sögð
eru tengd félög í ársreikningum
íslenskra dótturfélaga. Svar hafði
ekki borist í gærkvöldi.
Haukur B.
Sigmarsson
Uppgrip fyrir sveitina