Morgunblaðið - 14.07.2018, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.07.2018, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2018 ✝ Sigríður Ólafs-dóttir fæddist í Gíslholti Vest- mannaeyjum 22. júlí 1931. Hún lést á dvalarheimilinu Hraunbúðum 30. júní 2018. Foreldrar henn- ar voru hjónin Kristín Jónsdóttir frá Rauðsbakka í A-Eyjafjöllum, f. 22. mars 1898, d. 19. apríl 1969, og Ólafur Vigfússon frá Raufarfelli, f. 21. ágúst 1891, d. 15. maí 1974. Systkini Sirrýjar eru Vigfús, f. 13. apríl 1918, d. 25. október 2000, Kristný, f. 8. júlí 1921, d. 24. nóvember 2006, Jóna Margrét, f. 13. apríl 1924, d. 4. ágúst 1944, Ágúst, f. 1. ágúst 1927, d. 29. júlí 2003. Guðjón, f. 1. nóvember 1935. Jóna Margrét eignaðist Jón Ólaf 18. júlí 1944, hún lést af barnsförum og var Jón Ólafur alinn upp sem eitt af systk- inunum. Sirrý, eins og hún var kölluð af vinum og ættingjum, giftist 17. október 1953 eftirlifandi eiginmanni sínum, Tryggva Ágústi Sigurðssyni vélstjóra, f. 16. febrúar 1931. Foreldrar Tryggvi Steinn, giftur Guðnýju Erlu, börn þeirra Sigurður Hjálmar og Sædís Lilja. 5) Kristný Sigurbjörg Tryggva- dóttir, gift Gretari Þór Sæ- valdssyni. Börn þeirra Svava Kristín, Kristgeir Orri og Ágúst Emil. Sirrý ólst upp í Gíslholti og bjó alla sína ævi í Vestmanna- eyjum fyrir utan þann tíma sem eldgosið í Eyjum stóð yfir. Sirrý og Tryggvi hófu sinn bú- skap við Faxastíg 53 en byggðu sér síðar hús við Grænuhlíð 3 en það varð eldgosinu að bráð árið 1973. Sirrý var alla tíð mikil Eyjamanneskja sem sést best á því að hún var flutt aft- ur til Eyja í september 1973 til að aðstoða við hreinsun eftir gosið. Það ár keyptu Sirrý og Tryggvi sér hús við Birkihlíð 11 þar sem hún bjó þar til hún fluttist á dvalarheimilið Hraun- búðir árið 2016. Sirrý vann við fiskvinnslu ásamt afgreiðslu- og þjón- ustustörfum. Hún var einnig mjög virk í félagsstörfum fyrir bæði knattspyrnufélagið Tý og ÍBV, en Sirrý sat í stjórn Týs árið 1979. Ásamt því að vera öflug í hinum ýmsu sjálf- boðastörfum starfaði hún einn- ig fyrir Slysavarnafélagið Ey- kyndil. Þessu sinnti hún meðfram því að vera húsmóðir á stóru heimili. Útför Sigríðar verður gerð frá Landakirkju í dag, 14. júlí 2018, og hefst athöfnin kl. 14. Tryggva voru Sig- urður Hjálm- arsson, f. 17. októ- ber 1900, d. 29. júlí 1981, og Klara Tryggvadóttir, f. 1. október 1906, d. 9. október 1997. Tryggvi og Sirrý eignuðust fimm börn, þau eru: 1) Ólafur Kristinn Tryggvason, f. 30. mars 1951, giftur Björgu Pét- ursdóttur. Sonur þeirra Tryggvi Ágúst. 2) Hallgrímur Tryggvason, f. 9. nóvember 1952, giftur Ásdísi Sævalds- dóttur, börn þeirra a) Anna Rós, gift Páli Hjarðar, börn þeirra Almar Benedikt, Ásdís Halla og Ari Páll. b) Halla Björk gift Karli Haraldssyni, dætur þeirra Guðbjörg og Katla Svava. c) Sævald Páll, unnusta hans Fjóla Sif, börn þeirra Ríkharður Páll og Ásdís. d) Einar Ottó. 3) Sigurður Hjálmar Tryggvason, f. 20. jan- úar 1956, d. 10. febrúar 2004. 4) Klara Tryggvadóttir, f. 14. september 1961. Börn hennar a) Sigríður Árdís, sonur hennar Gretar Ingi. b) Jón Kristinn, sonur hans Hákon Ari. c) Elsku ótrúlega mamma mín. Ég hef alltaf hugsað til þín þeg- ar forsetinn veitir orður og hef oft sagt að mamma mín ætti að fá orðu eftir sitt ótrúlega lífshlaup en það er auðvitað bara mín upplifun á þér. Heimilislífið var oft og tíð- um frekar erfitt og ýmislegt sem gekk á. Mér finnst engu líkara en að þú hafir verið þræll, svo mörg voru verkefnin, en rosalega já- kvæður og glaður þræll. Þú vildir aldrei neinu henda og bar Birki- hlíðin þess merki. Já, já, það kom sér kannski vel stundum, en við vorum alls ekki sammála um það hverju átti að henda og hverju ekki, það var helst á þessum til- tektardögum sem varð einhver ágreiningur okkar á milli, þar sem ég er ekkert sérlega rík af þol- inmæði gat ég orðið mjög pirruð við þig. Ég er yngst af okkur fimm systkinunum og við vorum miserf- ið, sumir töluðu of lítið og aðrir of mikið. Ég var í síðari hópnum eins og fór nú ekki fram hjá neinum og sérstaklega ekki þér mamma mín. Ég þarf líka að játa á mig frekjuna og hef ég oft skammast mín fyrir það hvað ég var leiðinleg við þig á yngri árum, mér bara fannst þú alltaf svo gömul. Ég kaus frekar að þú værir heima en að koma á danssýningarnar eða aðra við- burði hjá mér þar sem jafnaldrar mínir gætu mögulega fattað að þú værir mamma mín. En ég áttaði mig nú fljótlega á því að ég átti auðvitað bestu mömmuna sem gerði allt fyrir mig. Stundum fékkstu það verkefni að sauma á mig kjól eða dress sem ég sá mynd af í einhverju blaði, þar var að sjálfsögðu ekkert snið og ekki var hægt að „googla“ sniðið, en því var bara reddað eins og öllu öðru. Mamma mín, þú og pabbi geng- uð í gegnum verstu lífsreynslu sem fólk gengur í gegnum að lifa barnið sitt, Sigurður þinn var allt- af í huga þér alla daga, enda hélt hann þér vel við efnið með öllum sínum ótrúlegu uppátækjum og veikindum alveg fram á síðasta dag. Þú komst nú líka við það að vera veik mamma mín, eins mikið og þú hataðir ketti þá áttir þú það sameiginlegt með þeim að eiga þér níu líf, en að kvarta var ekki þinn stíll. Týs-þjóðhátíð, Shell-mót og þrettándinn, sem ég hélt nú lengi vel að þú hefðir fundið upp, enda var ég alin upp við það að tröllin voru búin til í kjallaranum á Grænuhlíðinni. Á meðan heilsan gaf áttir þú stóran þátt í öllum þessum viðburðum, enda varstu mikil félagsvera og varst ósérhlíf- inn dugnaðarforkur. Svo voru það líka launuðu vinnurnar, Fiskiðjan, sjúkrahúsið, Skútinn og það var nú ekkert skrýtið að skrokkurinn hafi verið búinn. Elsku mamma, það var svo gott að sjá hvað þér leið vel á Hraun- búðum þessi tvö ár sem þú bjóst þar. Þar sastu og horfðir á íþrótt- ir, þá helst fótbolta, beinar út- sendingar eða endursýningar, það skipti ekki öllu máli, þetta var allt- af jafnspennandi. Á leikdögum færðum við þér svo bjór eða sérrí sem gladdi þig mjög en þér fannst við þó kannski skammta þér helst til naumlega. Elsku mamma mín, vonandi er fjör á þjóðhátíðinni hjá þér. Ég lofa að passa pabba. Guð geymi þig. Þín Kristný. Laugardaginn 30 júní sl. yfir- gaf elsku mamma þetta líf. Það er margs að minnast þegar maður hugsar til baka til þess þegar ég var lítill drengur á Faxastígnum þar sem mamma og pabbi höfðu stofnað heimili á neðri hæðinni hjá ömmu Klöru. Einnig þegar við fjölskyldan fluttum í nýtt hús að Grænuhlíð 3 sem mamma og pabbi höfðu byggt sér. Það var nóg að gera meðan á byggingunni stóð, mamma að skafa timbur og nagldraga og pabbi í vinnu. Hún lét ekki sitt eftir liggja í þeirri byggingu, enda dugnaðarforkur. Það kom sér vel að æskuheimili mömmu var handan við túnið bak við okkur því þar voru við systk- inin í pössun hjá ömmu í Gíslholti. Ég er ekki hissa á því að Græna- hlíð 3 hafi ávallt verið efst í huga mömmu fram á síðasta dag. Mamma saumaði á okkur fjöl- skylduna nánast öll föt sem við áttum í þá daga. Á æskuárum mínum var mamma mikið að vas- ast í íþróttastarfi, þá sérstaklega handbolta sem hún hafði alla tíð mikinn áhuga á og hafði spilað þegar hún var ung og þá auðvitað með Tý. Eitt sinn var mamma að fara sem fararstjóri með hand- boltastelpur þegar ég var 10 ára gamall. Fékk ég að fara með og var það mín fyrsta ferð til Reykja- víkur. Við vorum náin alla tíð við mamma, hún var ekki með mynd af Elvis Presley eða Beckham í veskinu sínu, nei hún var með myndir af mér í veskinu sínu alla tíð. Kannski þess vegna var ég alltaf hálfgerður mömmupeyi. Þegar ég var í skólanum og hafði smíðað eitthvert dót í smíði sem leit kannski ekkert allt of vel út, kláraði mamma það í eldhúsinu heima, slípaði, pússaði og lakkaði svo þetta liti þokkalega út fyrir skólasýninguna. Þrettándinn hjá mömmu var í hávegum hafður enda sáu Týrarar um hann. Í kjallaranum á Grænu- hlíðinni byrjaði lítil tröllasmiðja ca. 1965, þar voru þær systur, mamma og Nýja, í essinu sínu að búa til tröll. Ef vantaði ull þá hljóp Nýja yfir túnið í Gíslholt og klippti ullarlaf af rollunum sem mamma síðan límdi á tröllin, skipti ekki máli þótt skítakleprarnir héngu úr ullinni, þetta varð að vera flott. Gosnóttin er okkur mjög minn- isstæð eins og öllum sem hana upplifðu. En hjá okkur hvarf mamma stuttu eftir að gosið hófst, hvað var hún að gera? Hún hljóp austur alla Grænuhlíðina til að ganga úr skugga um það að allir í götunni væru vaknaðir, þetta lýsir mömmu best. Allir aðrir en hún sjálf voru alltaf í fyrsta sæti hjá henni. Hún var alltaf mjög hjálp- söm og tilbúin að aðstoða alla ef með þyrfti. Það var mömmu mikið áfall þegar Grænahlíð 3 fór undir hraun. En það var engin uppgjöf, áfram skyldi haldið og fluttu mamma og pabbi til baka strax í september sama ár og í nóvember keyptu þau sér hús að Birkihlíð 11 og bjó hún þar allt til þess tíma er hún fór á Hraunbúðir fyrir rúm- um tveimur árum. Elsku mamma, nú hefur þú fundið hvíldina. Síðasta hálfa árið hefur verið þér erfitt en aldrei heyrðist í þér kvarta. Vonandi ert þú komin á þann stað þar sem þér líður vel. Elsku pabbi, þú vermir þér við minningar góðrar konu. Þinn Hallgrímur. Elsku tengdamóðir mín er dá- in, ég trúi þessu varla enn, þessi yndislega og brosmilda tengdó. Ég þarf bara að sætta mig við það. Mínar minningar hefjast þegar ég kynnist Óla Kristni manninum mínum frá Vestmannaeyjum, þá kynnist ég tengdamóður minni sem var á flótta ásamt fjölskyldu undan eldgosinu 1973 í Eyjum. Á þeim tíma ákváðum við Óli Kristinn að gifta okkur 1974 og fluttum í kjölfarið til Eyja þar sem ég kynntist tengdó betur og síðar þegar móðir mín dó sama ár og ég átti drenginn minn gekk hún mér í móðurstað. Eftir 10 ár fluttum við til Ála- borgar þar sem maðurinn minn hóf nám í háskólanum þar og þá vildi svo til að þegar sonur okkar þurfti að fara í aðgerð til Köben og ég nýstigin upp úr aðgerð sjálf, maðurinn minn í miðjum prófum, gerði tengdó sér lítið fyrir og flaug til Köben til að hitta okkur Tryggva Ágúst son minn og ég hef aldrei getað þakkað þér nóg fyrir þá hjálp, yndislega tengdamóðir. Þó að ekki væri alltaf frí hjá okkur af spítalanum þar sem við vorum í herbergi þar, áttum við yndislegar stundir saman og má segja að þarna hefðum við kynnst hvor annarri á nýjan leik, rápuð- um í jólabúðir og fengum okkur stundum bjór á kantinum saman eftir langt rölt. Já við vorum sannarlega vin- konur ég og tengdó og gátum tal- að um allt og ekkert saman yfir sérrí í horninu á stofunni í Birki- hlíðinni. Á seinni árum var því miður ekki mikið af heimsóknum til Eyja en alltaf hlakkaði ég til að hitta mína brosmildu tengdó hvort sem Sigríður Ólafsdóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Elskuleg móðir okkar, HALLFRÍÐUR S. BRYNJÓLFSDÓTTIR frá Hrísey, lést á Hrafnistu, Laugarási, 3. júlí. Jarðsett verður frá Grafarvogskirkju 16. júlí klukkan 13. Fyrir hönd maka, ættingja og annarra fjölskyldumeðlima, Unnur Markúsdóttir Bisgaard Brynjólfur Markússon Jörundur Markússon Markús Sveinn Markússon Erlendur Markússon Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR FRIÐGEIRSDÓTTIR Holla, Sunnuhvoli, Raufarhöfn, lést á Dvalarheimilinu Hvammi fimmtudaginn 5. júlí. Jarðsungið verður frá Raufarhafnarkirkju þriðjudaginn 17. júlí klukkan 14. Vilmundur Þór Jónasson Valgeir Jónasson Kristín Böðvarsdóttir Gunnar Finnbogi Jónasson Þórhildur Hrönn Þorgeirsdóttir barnabörn og langömmubörn Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Kristín IngólfsdóttirSverrir Einarsson Margrét Á. Guðjónsd. Hannes Ó. Sampsted Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRA SIGRÍÐUR HELGADÓTTIR, Árskógum 2, Reykjavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ fimmtudaginn 28. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Fjölskyldan þakkar fyrir þann hlýhug og samúð sem þeim hefur verið sýnd. Hrefna Gissurardóttir Arnar Hreiðarsson Ingunn Alda Gissurardóttir Hjálmar Ingi Magnússon Elsa Gissurardóttir Þorbjörn Svanþórsson Einar Örn Gissurarson Hilary Graffox barnabörn og barnabarnabörn HELGA SVANA ÓLAFSDÓTTIR, kennari í Bolungarvík, lést á hjúkrunarheimilinu Bergi miðvikudaginn 11. júlí. Útförin fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík laugardaginn 21. júlí klukkan 14. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Sjálfsbjörg og slysavarnardeildirnar í Bolungarvík. Svanhildur, Steinunn, Egill, María, Ólafur Helgi, Guðrún, Rögnvaldur Okkar kærleiksríki, FILIPPUS BJÖRGVINSSON, Sólheimum 25, Reykjavík, er látinn. Hann verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 31. júlí klukkan 13:00. Sjöfn Árnadóttir Selma Filippusdóttir Björgvin Filippusson Kolbrún J. Gunnarsdóttir og afabörn Ástkær faðir minn, afi, sonur og bróðir, ÞORMAR SKAFTASON, Laugarbökkum, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Akureyri sunnudaginn 8. júlí. Hann verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju fimmtudaginn 19. júlí klukkan 14. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á endurhæfingarsjóð Heilbrigðisstofnunar Sauðárkróks. Karl Gunnar Þormarsson og börn Edda Stefáns Þórarinsdóttir og systkini hins látna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.