Morgunblaðið - 14.07.2018, Page 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hæg þróun í vissu sambandi veld-
ur þér vonbrigðum. Hún er vísbending um
að þú eigir að halda áfram á þeirri leið
sem þú hefur verið á.
20. apríl - 20. maí
Naut Í dag eru líkur á að þú lendir í deil-
um vegna sameignar. Hafðu þetta hugfast.
Einnig er mögulegt að þú reynir að fá ein-
hvern til þess að breyta lífi sínu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það eru miklir umbreytingatímar
hjá þér og þú færð tækifæri til að öðlast
mikla reynslu ef þú heldur rétt á spil-
unum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Láttu ekki ummæli annarra í þinn
garð skemma fyrir þér daginn. Möguleik-
arnir eru óteljandi og það er synd að sitja
með hundshaus og hendur í skauti.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú fyllist andúð í garð einhvers og
finnst að gerðar séu meiri kröfur til þín en
annarra. Reyndu að finna lausn sem sættir
öll sjónarmið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú gætir lent í óþægilegri aðstöðu
er þú leitast við að aðstoða vin í vanda.
Talaðu aðeins við þann sem þú treystir
fullkomlega fyrir þínum málum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þótt þér þyki gott að viðra hugmyndir
þínar við aðra skaltu fara varlega í þeim
efnum núna svo þeim verði ekki stolið frá
þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Samræður munu koma þér á
óvart í dag. Vertu með svörin við algeng-
um spurningum á reiðum höndum og þá
er allt klárt. Leitaðu ráða ef þú vilt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er nú einu sinni svo að
stundum þarf að gera fleira en gott þykir.
Vinnufélagarnir eru samstarfsfúsir og þér
er hlýtt til þeirra.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Gerðu allt sem í þínu valdi
stendur til þess að bjóða skilgreiningum
byrginn. Gefðu öðrum færi á að vega og
meta það sem þú segir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú veltir fyrir þér lífinu og til-
verunni þessa dagana. Gerðu ekki meiri
kröfur til sjálfs þín en þú ert fær um að
standast.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það eru margir fúsir til þess að
rétta þér hjálparhönd en einhverra hluta
vegna vilt þú ekki þiggja aðstoð. Samskipti
við vini þína kunna að verða sérkennileg í
dag.
Þegar Víkverji mundar að þessusinni stílvopnið, reikar hugurinn
aftur í tímann. Víkverji var barn,
kannski hálfstálpaður, og foreldrar
hans ræddust við inni í stofu. Móðir
Víkverja var að fara þess á leit við föð-
ur hans að þau keyptu Morgunblaðið,
það vantaði „meiri menningu inn á
heimilið“. Faðir Víkverja, frjálslyndur
vinstrimaður, tók þá upp gamalt eintak
af Morgunblaðinu og las upp úr Vík-
verja. Það þótti honum duga sem rök
gegn áskrift að Mogganum.
x x x
Víkverji var enda íhaldssamur í þátíð. Og er enn, eðli íhaldsseminnar
samkvæmt. Hann hefur vitaskuld slak-
að á taumunum á mörgum sviðum en á
tveimur rígheldur hann í hefðirnar.
Það er á sviði mannanafna annars veg-
ar og í trúmálum hins vegar. Ef Vík-
verji fengi í þessum efnum að heita ein-
ráður, vildi hann helst hverfa aftur til
átjándu aldar.
x x x
Það sauð til dæmis á Víkverja þegarhann sat á hamborgarastað í vik-
unni. Þar heyrði hann út undan sér í
móður skamma barnið sitt og ávarpa
það í sífellu báðum nöfnunum sem það
bar. Danir segja að elskað barn beri
mörg nöfn. Víkverja þykir því alveg öf-
ugt farið. Eða kannski hefði Gunnar
Aron á Hlíðarenda bara verið „geggjað
nafn“.
x x x
Víkverji er sennilega ekki fyrstur tilað amast við þessum ósið. Og
hann er sannarlega ekki fyrstur til að
amast við guðleysi Íslendinga. Nútíma-
mönnum þykir göfug afstaða að vera á
móti kirkjunni. En á sama tíma og þeir
lýsa glaðir yfir að enginn Guð sé til,
bíða þeir í biðröðum eftir strigaskóm.
Hvaða máttarvöld eru þar við lýði?
x x x
Kannski er Víkverji óttalega gam-aldags. Kannski hefðu þessi við-
horf hans líka gengið fram af föður
hans forðum. En, Víkverji sjálfur heitir
bara einu nafni. Kristin nútímamóðir
hefði kannski haft annan háttinn á og
skírt hann Víkverja Helga. Eða enn
verra, að heiðinn nútímafaðir hefði
fengið að ráða og nefnt hann Víkverja
Frey. Leggjum tvínefnunum – í guð-
anna bænum. vikverji@mbl.is
Víkverji
Blessun Drottins auðgar og erfiði
mannsins bætir engu við hana.
(Orðskviðirnir 10.22)
Laugardagsgátan er sem endra-nær eftir Guðmund Arnfinns-
son:
Þjóðlegur er þessi bragur.
Þokkafullan megum sjá.
Limaburður löngum fagur.
Línu stundum framinn á.
Helgi Seljan svarar:
Í þjóðdönsunum þykir gott,
af þokka stiginn hver einn dans.
Létt með limaburðinn flott,
í línudansi er aldrei stanz.
Helgi R. Einarsson á þessa lausn:
Aulinn Óli Skans
og hún Vala hans
gætu hér með glans
giskað strax á dans.
Guðrún Bjarnadóttir leysir gát-
una þannig:
Í þjóðdönsunum þrauka má,
ég þrái tangódans á eftir.
Ef ballettdansinn brúka á,
er býsn hvað línudansinn heftir.
„Þá er það lausnin,“ skrifar
Harpa á Hjarðarfelli:
Þjóðdans með þokka og friði.
Þessi dans við kvæði.
Listdans er leikinn á sviði.
Línudans á þræði.
Þessi er skýring Guðmundar:
Danskvæði er þjóðlegt þetta.
Þokkafullur ballett dans.
Í dansi limir létt sig fetta.
Línudansinn stíg með glans.
Þá er limra:
Á dansleiknum Fjólu fangaði
og fimur um gólfið sprangaði
Innbæjar-Ljótur,
hinn ágengi þrjótur,
hann gekk ekki lengra, en langaði.
Og síðan er ný gáta eftir Guð-
mund:
Vætusamt er veðurfar,
versna stöðugt horfurnar,
helst er þá til huggunar
að halda sig við gáturnar.
Oft hann til úr bréfi bjó.
Betri þó úr tré á sjó.
Hann er dáta höfuðfat.
Á höfði flugfreyjunnar sat.
Helgi R. Einarsson lét þessa
limru fylgja sinni lausn, – „Eftir
langan göngudag með skemmtilegu
fólki á Jersey varð þessi til“:
Við þráum öll lífsins listir,
lostinn þó dýpst þar ristir,
en Benni segir
(sjaldan hann þegir):
„Þeir síðustu verða þyrstir.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Far þú í dans en
gættu við hvern þú stígur
Í klípu
„ÉG MYNDI BJÓÐA ÞÉR INN, EN ÉG
GLEYMDI AÐ RYKSUGA UNDIR SÓFANUM.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„KASTAÐU ÞEIM LENGRA!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að gefast aldrei upp á
draumum þínum.
ER ÉG EKKI
SVALUR, LÍSA?
ÉG ER
HÉRNA
HVER SAGÐI
ÞETTA?!
MANNESKJAN SEM
FINNST ÞÚ EKKI
VERA SVALUR
ÞESSI POKI ER MEÐ NÓG
TIL ÞESS AÐ ENDAST OKKUR
Í LANGAN TÍMA!
ER HANN
FULLUR AF
PENINGUM?
NEI, ÞETTA ER
POKAPOKI!
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds