Morgunblaðið - 14.07.2018, Qupperneq 52
LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 195. DAGUR ÁRSINS 2018
Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Trump, May og Katrín Jakobsdóttir
2. Bakveikur - ekki fullur
3. „Við höfum aldrei séð annað eins“
4. WOW air tapaði 2,4 milljörðum …
Þungarokkssveitin Sólstafir kemur
til með að hita upp fyrir ensku hljóm-
sveitina Paradise Lost, eina kunnustu
öfgarokkssveit heims, á tónleikaferð
þeirrar síðarnefndu um Norður-
Ameríku í október. Fyrstu tónleikarn-
ir fara fram 2. október í Baltimore en
þeir síðustu 21. október San Franc-
isco. Hljómsveitin Atlas Moth verður
einnig með í för.
Paradise Lost var stofnuð fyrir 30
árum í Halifax á Englandi og þykir af-
ar áhrifamikil hljómsveit í málmgeira
þungarokksins.
Morgunblaðið/Eggert
Sólstafir hita upp
fyrir Paradise Lost
Skipuleggjendur tónleika banda-
rísku rokksveitarinnar Guns N’ Roses
hafa sett 2.000 aðgöngumiða til við-
bótar í sölu á vefsíðunni show.is og
stefnir því í að tónleikarnir, sem fram
fara á Laugardalsvelli, verði þeir fjöl-
mennustu í Íslandssögunni. Þá hefur
verið tilkynnt að íslenska rokksveitin
Brain Police muni sjá um upphitun
fyrir bandaríska kollega sína. Tónleik-
arnir fara fram 24. júlí og verður
hleypt inn frá kl. 17. Búnaðurinn sem
fylgir Guns N’ Roses er ekkert
smáræði og fyllir hvorki meira
né minna en 45 gáma, skv. til-
kynningu frá skipuleggjendum,
og vega herlegheitin um 1.300
tonn. Meðal þess sem flutt verð-
ur til landsins er
stærsta svið sem sett
hefur verið upp hér á
landi, 65 metra breitt
með þremur gríð-
arstórum skjám.
Sala á aukamið-
unum er þegar haf-
in á show.is. »6
2.000 miðum bætt við
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Léttir smám saman til norðaustanlands en stöku skúrir vestan til.
Gengur í austan 5-15 seint í kvöld með rigningu sunnanlands. Hiti 10 til 20 stig.
Á sunnudag Austlæg og síðar breytileg átt með rigningu um allt land en styttir upp
norðaustan til síðdegis. Hiti 7 til 17 stig, svalast á norðanverðum Vestfjörðum.
Á mánudag Norðlæg átt, 3-10 m/s. Léttir til á vestanverðu landinu en lítils háttar væta
með norðurströndinni fram yfir hádegi en skúrir austanlands. Hiti 7 til 17 stig.
Frakkar og Króatar mætast í úrslita-
leik heimsmeistaramótsins í knatt-
spyrnu karla í Moskvu á morgun.
Frakkar hafa einu sinni orðið heims-
meistarar í knattspyrnu karla, fyrir
20 árum á heimavelli. Króatar hafa
aldrei komist nær því að vinna titilinn
en nú. Áður en flautað verður til úr-
slitaleiksins mætast Belgar og Eng-
lendingar í bronsleik mótsins. »1
Úrslitastund HM
nálgast í Moskvuborg
Víkingur Reykjavík tók á
móti Keflavík í 10. umferð
Pepsi-deildar karla í knatt-
spyrnu í gær en leiknum
lauk með 1:0-sigri heima-
manna. Það var Arnþór Ingi
Kristinsson sem skoraði
eina mark leiksins á 4. mín-
útu. Víkingar eru komnir í
fimmta sæti deildarinnar
með 18 stig en Keflavík er
sem fyrr á botninum
með 3 stig. »3
Víkingar í fimmta
sæti deildarinnar
Sjaldan eru fréttir af leikmannaskipt-
um í NBA-deildinni á sumrin þess
virði að eyða í þau prentsvertu, þótt
frá því séu undantekningar. Svo var
þó nýlega þegar LeBron James ákvað
að yfirgefa Cleveland
Cavaliers og gera
samning
við Los
Angeles
Lakers
fyrsta júlí
síðastliðinn.
Enda er um að
ræða fremsta körfu-
knattleiksmann
sinnar kynslóðar
auk þess sem
skipti hans breyta
hlutföllum milli
Vestur- og Aust-
urdeildar. »4
Margt breytist með
komu James til Lakers
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Í stærsta fjósi á Íslandi, sem er á
bænum Flatey skammt vestan við
Hornafjörð, var á dögunum opnaður
veitingastaður. Fjósið var tekið í
notkun fyrir nokkrum árum og á
annarri hæð í steinsteyptri bygg-
ingu í norðurhluta hússins var ágætt
rými sem forsvarsmenn búsins sáu
að mætti nýta fyrir gesti og gang-
andi. Ákveðið að nýta tækifærið og
útkoman er óvenjulegur veitinga-
staður sem strax hefur vakið tals-
verða athygli.
Hæfir vel saman
„Hugsunin í upphafi var ekki sú
að fara í veitingarekstur jafnframt
búrekstri. En hugmyndin kom þó
fljótlega eftir að uppbyggingin hófst
og sé rétt að málum staðið á þetta
vel saman,“ segir Hjalti Þór Vign-
isson. Hann er framkvæmdastjóri
Selbakka ehf. sem á og rekur búið.
Selbakki er í eigu sjávarútvegsfyr-
irtækisins Skinneyjar-Þinganess á
Höfn í Hornafirði. Fjósið á Flatey er
stórbygging, þar sem í dag eru alls
200 mjólkandi kýr sem verður bráð-
lega fjölgað um 40. Þá er fjöldi ann-
ars nautpenings í fjósinu.
„Þegar Skinney-Þinganes kom
inn í búreksturinn á Flatey á sínum
tíma var ætlunin að renna styrkari
stoðum undir atvinnulíf hér á svæð-
inu. Sjávarútvegurinn verður auðvit-
að alltaf númer eitt í okkar starf-
semi, en við horfum til annarra átta
eins og við á hverju sinni,“ segir
Hjalti Þór.
Fræðsluefni í fjósinu
Í fjósinu á Flatey hefur nú verið
útbúið ýmislegt fræðsluefni, svo sem
um gripina, mjaltaþjónana og fóður-
kerfin en allt í byggingunni er sam-
kvæmt nýjustu tísku og tækni, sem
mörgum kann að þykja framandleg.
Og svo er það veitingastaðurinn,
sem Óðinn Eymundsson veitir for-
stöðu, en þar má fá nautasteikur og
annað lostæti frá Flatey og súpu úr
Hornafjarðarhumri svo eitthvað sé
nefnt. Þá er, að sögn Hjalta Þórs, í
skoðun að setja upp gerilsneyðing-
artæki í Flatey, svo bjóða megi gest-
um upp á drykkjarmjólk eða vinna
osta og slíkt úr mjólkinni. Að bjóða
upp á veitingar úr hráefni í héraði og
beint frá býli skapi sérstöðuna.
„Ferðafólk hefur mikinn áhuga á
því að kynna sér búrekstur og at-
vinnulífið á hverjum stað. Hér á
Höfn spyrja margir um hvort mögu-
legt sé að skoða fiskvinnsluna okkar,
sem við höfum ekki mikil tök á þótt
stundum séu gerðar undantekn-
ingar. En kannski skoðum við það
betur á næstu árum að skapa að-
stöðu til slíks,“ segir Hjalti Þór sem
bætir við að fyrri sláttur sé langt
kominn í Flatey, nytin í kúnum góð
og búreksturinn í föstum skorðum.
Veitingar í Flateyjarfjósi
Nautakjöt og
humar á stærsta
kúabúi landsins
Eldhúsfólk Maria Boghean, Svandís Dóra Jónsdóttir, Óðinn Eymundsson og Helga Valdís Helgadóttir.
Stórbygging Hundruð gripa eru í fjósinu á Flatey og
mjólkandi kýr þar verða brátt orðnar 240 talsins.
Gestagangur Bjarni Benediktsson, þá forsætisráð-
herra, kom við á Flatey sl. haust og kynnti sér búskap.