Morgunblaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2018
*NÝ
R
HYUNDAI
IX35 2.0 CRDI
PREMIUM PANORAMA
4x4, dísel, sjálfskiptur – í nokkrum litum,
með leðri, glerþaki, leiðsögukerfi, bakkmyndavél o.fl.
Verð aðeins kr. 3.990.000
562 1717
Kletthálsi 2 - bilalif@bilalif.is
bilalif.is
Eigum mikið úrval af nýjum og nýlegum bílum á staðnum
*e
ft
ir
ár
sb
íll
fy
rs
ta
sk
rá
ni
ng
8.
20
15
Frammistaða Áskels ArnarKárasonar á Evrópumótiöldunga 65 ára og eldrisem lauk í Drammen í
Noregi um síðustu helgi er sú besta
sem íslenskur skákmaður hefur
náð á þessum vettvangi. Áskell var
einn fjögurra sigurvegara mótsins,
hlaut 6 ½ vinning af níu mögu-
legum ásamt Rússanum Vor-
otnikov, Svíanum Renman og Þjóð-
verjanum Ackermann en
mótsstigin réðu því að andstæð-
ingur Áskels í lokaumferðinni, Vor-
otnikov, fékk sæmdarheitið Evr-
ópumeistari öldunga 65 ára og
eldri. Áskell Örn varð annar á stig-
um og var sæmdur titlinum alþjó-
legur skákmeistari fyrir frammi-
stöðuna. Hann er vel að
nafnbótinni kominn en meðfram
taflmennsku hefur hann sinnt fé-
lagsmálum skákhreyfingarinnar
áratugum saman og var um skeið
forseti Skáksambands Íslands.
Jóhannes Björn Lúðvíksson vann
sína síðustu skák í lokaumferðinni
og náði einnig afbragðs árangri
með 5 ½ vinning og varð í 13. – 16.
sæti. Hann vann í síðustu umferð
og hversu ánægjulegt sem það var
fyrir hann persónulega, þá voru ör-
laganornirnar samt að spinna sinn
myrka vef, því að punkturinn sá
tryggði Vorotnikov mikilvægt stig.
Eins og fjallað var um um í síðasta
pistli þá tefldi Jóhannes Björn við
Vorotnikov í 1. umferð.
Áskell tefldi af miklu öryggi á
mótinu, tefldi rösklega og fékk oft
betra út úr byrjuninni. Á Hauga-
nesi í grennd við Dalvík, þar sem
Baccalá-mótið var haldið í
tengslum við Fiskidaginn mikla,
fylgdust menn grannt með við-
ureign hans við Nonu Gapr-
indhasvili, heimsmeistara kvenna
frá 1962 til 1978. Mikil spenna og
hart barist. Margoft virtist Áskell
ætla að sigra en Nona náði ein-
hvern veginn alltaf að bægja hætt-
unni frá. Eftir ítrekaðar tilraunir
varð Áskell að sætta sig við jafn-
tefli:
EM öldunga 2018; 7. umferð:
Nona Gaprindhasvili – Áskell
Örn Kárason
Kóngsindversk vörn
1. d4 d6 2. c4 e5 3. Rc3 exd4 4.
Dxd4 Rc6 5. Dd2 Rf6 6. b3 Be6 7.
e4 a5 8. f3 g6 9. Bb2 Bg7 10. Rge2
a4!
Hrifsar til sín frumkvæðið en
svartur getur opnað a-línuna á
hentugu augnabiki.
11. Hd1?! axb3 12. axb3 O-O 13.
g3?
Hvítur á þegar við mikla liðs-
skipunarörðugleika að etja og ekki
bætir þessi leikur úr skák.
13. ... Rd7 14. Rb5 Rce5
15. Bxe5
Nona hefur örugglega ekki leikið
þessu létt í lund – að gefa svart-
reitabiskupinn er nánast dauða-
synd í svona stöðum. En ekkert
betra bauðst.
15. ... dxe5 16. Rc1 c6 17. Rc3
Db6 18. Ra4 Da7 19. Df2 Da5+ 20.
Dd2 Dxd2+ 21. Kxd2
21. ... Hfd8
Tangarsókn kemur úr báðum
áttum! 21. ... f5! hefði rústað vörn-
um Nonu.
22. Kc3 Bf8 23. Be2 Rc5 24.
Hxd8 Hxd8 25. Rd3 Rxa4 26. bxa4
Ha8 27. Hb1 Hxa4 28. Hxb7 Hxc4+
29. Kd2 f6 30. Bd1 Hd4 31. Kc3 c5
32. Bc2 c4 33. Rf4!
Nona er ekki af baki dottin. Nú
er orðið erfitt að vinna stöðuna.
33. ...Bf7 34. Rd5 Bxd5 35. exd5
Bh6 36. Hd7 Bd2+ 37. Kb2 Bb4 38.
h4 Be1
Bæði hér og leik fyrr átti svartur
að leika f6-f5.
39. h5 gxh5 40. Bxh7 Kf8 41.
Bg6 c3 42. Kb3
42. ... Hb4+
Smá glenna í lokin, Nona má
ekki taka hrókinn vegna 43. ... c2+
og síðan 44. ... c1(D). )
43. Ka3 Hc4 44. Kb3 Hb4+ 45.
Ka3 Hb6 46. d6 c2 47. Bxc2 Bb4
48. Ka4 Hxd6 49. Hxd6 Bxd6 50.
Bg6 Kg7
– Jafntefli.
Áskell ætlar ekki að láta staðar
numið við þetta og mun tefla á HM
öldunga sem fram fer í Bled í Slóv-
eníu í árslok.
Tangarsókn kemur úr báðum áttum
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Morthen Auke.
Andstæðingar Nona Gaprindhasvili og Áskell Örn takast í hendur við upp-
haf viðureignar sinnar.
Laugardaginn 18.
ágúst 2018 verður
kosið um skipulagstil-
lögu fyrir nýjan
miðbæ á Selfossi. Það
er margt athugavert
við tillöguna og hér
er bent á nokkur at-
riði.
1. Á fyrsta upp-
drætti af Selfossi,
sem gerður var af
Jóni Víðis 1935-36,
má sjá að Selfoss er bara nokkur
býli. Það er ekki fyrr en með smíði
Ölfusárbrúar 1891 að uppbygging
byrjar og komst á skrið með stofn-
un Mjólkurbús Flóamanna árið
1927 og Kaupfélags Árnesinga árið
1930. Upp úr því fór að myndast
fyrsta þorp í sveit á Íslandi.
2. Það fer því vel á því að reisa
safn um skyr- og mjólkurfram-
leiðslu á Selfossi, því það er ná-
tengt sögu staðarins, frekar en að
reisa byggingar sem eru eftirlík-
ingar af gömlum húsum sem stóðu
í öðrum kaupstöðum á Íslandi, þar
sem þau eiga sína sögu. Að búa til
ímyndaðan gamlan kaupstað má
líkja við sögufölsun.
3. Það er í rauninni sérkennilegt
að þetta sé til umræðu í Árborg
þar sem er einn elsti þéttbýlis-
staður landsins, Eyrarbakki.
Blómaskeið Eyrarbakka var frá
því um miðja 19. öld og fram til
1920. Eyrarbakki hefði getað
þróast og stækkað, ef ekki hefði
verið fyrir slæma hafnaraðstöðu. Á
Eyrarbakka er sagan og þar svífur
enn andrúmsloft gamla tímans
milli gömlu húsanna. Það væri því
miklu nær að styrkja Eyrarbakka
og gera sögunni þar hærra undir
höfði. Selfoss er aftur á móti ungur
bær. Hanna þarf miðbæjarsvæði
sem er örvandi fyrir fólk og ýtir
undir þörf þess á að uppgötva eitt-
hvað nýtt og spennandi.
4. Nútímaborgir eru flestar með
marga kjarna og það myndi
styrkja Árborg að vera fjölkjarna
sveitarfélag þar sem hver kjarni
hefði sína sérstöðu.
5. Umræðan um að það þurfi að
fylla upp sár í bænum
er sérstök, þar sem
þetta svæði hefur
staðið óbyggt lengi.
Að vísu var lítil búð
sem stóð við hring-
torgið og ekki sást inn
á það frá veginum fyrr
en hún var rifin. Það
er engin ástæða til
þess að drífa þetta af
núna og byggja bara
eitthvað til að loka
einhverju sári í bæn-
um.
6. Þegar verið er að skipuleggja
svæði inni í miðjum bæ þarf að
vanda vel til verka. Mikilvægt er
að greina einkenni bæjarformsins.
Hvernig er skipulaginu háttað á
aðliggjandi svæðum og hvað ein-
kennir mynstrið sem göturnar,
lóðirnar og húsin mynda? Í raun
má líkja þessu við bútasaumsteppi
þar sem öllu er lokið nema miðj-
unni. Miðjan þarf að passa við
restina af teppinu. Borgar-
formfræðin fjallar ítarlega um
þetta og innan hennar er bent á
mörg dæmi um vel heppnaðar
lausnir. Árið 2006 voru uppi á
borði tillögur um að byggja
glerháhýsi á þessu svæði. Það var
skömmu fyrir hrun en sennilega
eru flestir fegnir því í dag að ekki
varð af þeim framkvæmdum. Nú
höfum við tillögu sem gengur út í
öfgar, að vísu í hina áttina, en öfg-
ar eru aldrei af því góða.
7. Að lokum þurfum við að
spyrja okkur að því hvernig Sel-
foss mun þróast í framtíðinni. Nú
þegar er fyrirhuguð brú ofar á
Ölfusá sem leiðir umferð framhjá
bænum en ekki í gegnum Selfoss
eins og verið hefur. Ef rýnt er í
söguna þá eltir verslunin veginn,
og byggðarþróunin í Hveragerði er
gott dæmi um það. Væntanlega
mun verslun elta samgönguleiðina
og flytjast að nýjum þjóðvegi.
Byko og Bónus hafa nú þegar fært
sig á svæðið þar sem vegtengingin
við brúna mun verða. Þar eru
verslunarrýmin nýtískuleg og næg
bílastæði.
8. Ef fólksfjöldinn á Selfossi hef-
ur ekki verið nægur hingað til til
að standa undir blómlegum kaffi-
húsum og rekstri í heimabyggð þá
mun þessi uppbygging ekki verða
til þess. Er þá bara verið að
byggja þetta svo að ferðamenn
geri lykkju á leið sína til að upplifa
sýndarveruleika þessa nýja gamla
bæjar?
9. Það er fagnaðarefni að íbúar
fá að kjósa í dag um breytt aðal-
og deiliskipulag og að niðurstaðan
verði bindandi fari þátttökuhlut-
fallið yfir 29 prósent. Þá er nýtt
skref stigið í átt að auknu íbúa-
lýðræði á Íslandi.
Ég vil í fyrsta lagi hvetja fólk til
að fara og nýta atkvæði sitt til að
hafa áhrif á þróun umhverfisins
sem það býr í. Í öðru lagi vil ég
biðja fólk að staldra við og hugsa
um þetta út frá stærri myndinni;
miðbærinn er andlit bæjarins sem
endurspeglar samfélagið og lýsir
sögu þess og þróun. Gerir þessi til-
laga það?
Selfoss í framtíð eða fortíð?
Eftir Sigríði
Kristjánsdóttur
Sigríður
Kristjánsdóttir
»Endurspeglar skipu-
lagstillagan fyrir
nýjan miðbæ á Selfossi
samfélagið og lýsir sögu
þess og þróun? Kosið
verður um tillöguna í
dag.
Höfundur er dósent
í skipulagsfræði.