Morgunblaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2018
með einkennandi glottið sitt og
blikið í augunum. Auðvitað gerð-
um við það og skáluðum í súkku-
laðisjeik niðri á höfn áður en við
hjóluðum heim.
Einar ræktaði samband sitt
vel við vini og fjölskyldu, hann
notaði hvert tilefni til að hóa sam-
an sínu fólki, eða einfaldlega bjó
tilefnin til.
Ég er honum þakklát fyrir
ótrúlega margt en þakklátust er
ég fyrir einmitt það, hans hlut í
þessari góðu og nánu stórfjöl-
skyldu sem hefur reynst mér svo
vel.
Elsku Einar, ég á eftir að
sakna þín, það verður skrýtið að
fara á skíði í vetur eða í Leiru-
fjörð næsta sumar án þín. Það
mun hjálpa að eiga nóg af minn-
ingum til að rifja upp og sögur til
að segja barnabörnunum þínum
af afa Einari.
Arna Sigríður Albertsdóttir.
Lífið er eins og veðrið. Það
snjóar. Það rignir. Kemur þoka.
Það kemur sól og logn. Svo
hvessir. Verður rok. Stöku sinn-
um ofsaveður. Fréttin af andláti
þínu var ofsaveður. Svo óvænt og
svo óvægið. Slær mann niður og
maður hniprar sig saman. Gang-
an okkar frændanna saman er
búin að vara frá því í æsku. Við
vorum alltaf saman í sveitinni hjá
ömmu og afa í Bæjum í barnæsku
á sumrin. Síðan vinnumenn hjá
Palla og Önnu. Eftir að við hætt-
um vinnumennskunni komum við
alltaf saman í leitir í Bæi ásamt
fjölda fólks. Smöluðum saman
Jökulfirði og Kaldalón. Eftir að
við byrjum að búa í Hafnardal
komst þú og frændur okkar í leit-
ir til okkar líka.
Elsku vinur, þegar við hitt-
umst öll fyrir mánuði í giftingu
Indriða og Svölu áttum við svo
dásamlega stund saman. Ykkur
smölunum úr sveitinni var raðað
saman við eitt borð og koníaks-
flaskan sett á borðið eins og var í
sveitinni og fengið sér í tappa.
Þessi kvöldstund var yndisleg.
Minnti á ótal stundir heima í
Hafnardal og Nauteyri í smala-
mennskum. Stundir sem eru
ógleymanlegar þegar þið frænd-
urnir komu til okkar í heila viku á
hverju hausti. Þá var smalað
tvær helgar og í miðri viku vasast
í fé. Slátrað og féð vigtað. Farið í
pottinn á kvöldin og glaðst sam-
an.. Það var alltaf tómlegt þegar
þið fóruð og við urðum eftir tvö.
En vinátta ykkar frændanna sem
og tryggð ykkar við okkur var
ómetanleg og við hefðum aldrei
getað þetta án ykkar hjálpar. Svo
hættum við að búa og fluttum
suður og þótt við byggjum öll á
sama svæðinu hittumst við ekki
oft en samt var alltaf eins og við
hefðum hist í gær. Þannig var
þessi stund. Þegar við heyrðum í
þér tveimur dögum áður en þú
yfirgafst okkur var það til að full-
vissa okkur um að við myndum
hittast nokkrum dögum seinna
þegar þú kæmir úr fjörðunum og
við vestur. Við áttum ekki von á
að við myndum hittast í kirkjunni
yfir kistunni þinni næst. En
svona er lífið stundum
óútreiknanlegt. Elsku vinur, takk
fyrir samfylgdina og alla hjálpina
í þessu lífi og við eigum eftir að
sakna þín mikið. Mjög mikið.
Elsku Hanna Rósa, Inga Ósk og
Eydís Eva. Ykkar missir er mikill
og við samhryggjumst ykkur af
öllu hjarta.
Reynir og Lóa.
Þegar ég heyri góðs manns
getið þá mun ég minnast stóra
bróður, Einars Rósa.
Orðalaust var hann alltaf til
staðar, tilbúinn að aðstoða, orða-
laus, fumlaus og athugull, hæg-
látur með stórt hjarta. Orðalaust
er hann einnig farinn, hann
kvaddi í sveitinni sinni enda var
Einar Rósi sveitamaður. Fyrst
var hann í sveitinni sinni í Bæjum
hjá föðurfólkinu sínu og síðan á
Dynjanda í Leirufirði þar sem við
Albert, Einar Rósi og fjölskyldur
byggðum upp sælureit. Einar var
stoltastur okkar allra af þessu af-
reki, fallegt hús á einstökum stað,
byggt með stóru brosi. Húsbygg-
ingin og samverustundir okkar
þar hafa sameinað fjölskyldur
okkar órjúfanlegum böndum.
Þessara stunda eigum við eftir að
minnast með gleði og þakklæti. Á
pallinum klukkan fimm; hans
staður, hans stund og lífið er
núna. Þetta kennir okkur að
njóta. Njóta hvert annars, njóta
stundarinnar og muna að allar
okkar ákvarðanir eru réttar á
þeirri stundu sem þær eru tekn-
ar.
Einar Rósi var glaður og sátt-
ur, hann var á sínum rétta stað í
lífinu og naut þess að ferðast,
dansa og vera með barnabörnun-
um.
Einar Rósi var svo margt og
gat allt og gerði allt. Hann var
sjóari og hann var sveitó, leið
best í litríkum ferðafötum. Hann
var góður skíðamaður, ratvís með
eindæmum og fór fyrir hópnum.
Fólk treysti á innsæi hans og
fylgdi þessum rólega en ákveðna
manni. Einar Rósi var líka mat-
maður, verkaði sviðin fyrir sviða-
messur og sauð skötu fyrir stór-
fjölskylduna. En í okkar huga eru
kótelettukvöldin í skíðaferðunum
á Akureyri uppáhalds, nóg af
rabarbarasultu og grænum baun-
um, þetta var hans matur og
hann bauð, og bauð vel. Koníak í
eftirmat yfir notalegu spjalli,
spilaður staur og hann sakaður
um svindl og hann glotti.
Takk Einar Rósi að þurfa ekki
að nota orðin þín til að segja hve
vænt þér þótti um okkur. Móðir
hans, börn og barnabörn hafa
misst mikið, stóran mann og
traustan, klettinn sem sá um
sína. Minning hans verður ljós í
lífi okkar.
Góða ferð já það er allt og síðan bros,
því ég geymi alltaf vinur það allt er
gafstu mér
góða ferð, vertu sæll já góða ferð.
(Jónas Friðrik)
Hafðu þökk fyrir allt og allt
elsku besti.
Lydía Ósk, Kristján, Lydía
Hrönn og Iðunn Rún.
En nú varir trú, von og kærleikur,
þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn
mestur.
(I. Korintubréf 13:13)
Fallegur og sólríkur laugar-
dagurinn rennur upp og Einar
Rósinkar Óskarsson, fyrrverandi
mágur minn, fer í gönguferð með
fjölskyldu sinni norður í Leir-
ufirði. Það reyndist hans síðasta
gönguferð í þessu jarðneska lífi.
Ég kynntist Einari fyrst þegar
hann og systir mín byrjuðu að
búa saman. Einar var ekki maður
margra orða en hann var heil-
lyndur og traustur maður til orðs
og æðis. Ég varð aldrei var við að
honum félli illt orð til nokkurs
manns og það mátti alltaf treysta
því að það sem hann sagði stæð-
ist. Það sem var þó eftirtektar-
verðast var það af hversu miklum
kærleika og umhyggjusemi hann
sinnti dætrum sínum. Þær hafa
misst mikið og sakna hans sárt.
Það er margs að minnast og
þar á meðal ferðanna með honum
í sumarbústaðinn í Hvammi í
Leirufirði. Það var lærdómsríkt
og um leið skemmtilegt að vera
með honum þar. Við fórum í
gönguferðir um nágrenni Dynj-
anda og bátsferðir í næstu firði.
Þá var tíminn einnig nýttur til að
lesa með honum Grunnvíkinga-
bækurnar en síðast en ekki síst
var það spjallið og nærvera hans
sem gaf ferðunum mest gildi.
Leirufjörðurinn var sá staður
sem hann hafði tekið mestu ást-
fóstri við enda átti hann uppruna
sinn að rekja þangað. Þar vildi
hann helst vera og þar deyr hann.
Að lifa er að elska,
allt hitt er dauði,
og allt sem lifir er fætt af ástinni,
því veröldin er sköpun hennar.
Það er hún sem vakti aflið,
sem stjórnar viti og vilja mannsins
og vefur örlagaþræði lífsins.
Það er hún sem gerir veröldina fagra,
því að hún er brosið á rúbínvörum
kvöldsins
og ljós hinnar ódauðlegu gleði í augum
morgunsins.
Að lifa er að elska,
og sá sem einhver elskar getur aldrei
dáið.
(Gunnar Dal)
Góður drengur er genginn.
Einar var elskaður og hans er
sárt saknað af ástvinum. Hann
lifir samt áfram í hug og hjarta
ættingja og vina. Blessuð sé
minning hans.
Emil Ingi Emilsson.
Demantar þurfa ekkert að
segja því þeir eru harðastir og
fallegastir. Fyrir 25 árum síðan
fór ég í mína fyrstu smala-
mennsku upp á Hafnardalsfjall
og þá varst þú á sama aldri og ég
er núna á. Ég var látinn bíða uppi
á „Leiðindatindi“ í heila öld eftir
ykkur og átti að leggja af stað
niður í gil þegar ég sá þig. Við
vorum saman í gilinu í 10 ár og
áttum alltaf heilaga stund saman
við að drekka kókómjólkina og
borða kleinurnar, á meðan við
biðum eftir hinum smölunum að
komast í beina línu við okkur. Þú
sást alveg um mig þarna, ef ég
kláraði þrúgusykurinn röltir þú
til mín og gafst mér meira af hon-
um.
Þú kallaðir mig alltaf stígvél-
aða köttinn því ég átti bara stíg-
vél en enga skó á fjallið, það var
reyndar það eina sem þú sagðir
við mig í nokkur ár. Þú sagðir
ekki mikið í orðum, þið kallarnir
segið ekki mikið í orðum yfir höf-
uð, en hlýjan í augunum, brosið
og faðmlögin frá ykkur þegar við
hittumst voru og eru það dýr-
mætasta í tilverunni. Ég trúi ekki
að þú sért farinn, við vorum sam-
an á borði með hinum smölunum í
giftingunni hans Indriða bara
fyrir fjórum vikum. Þú sást um
að allir sem vildu fengju koníak-
stappa við borðið. Mér fannst
glatað að missa ömmu í vikunni
en alveg skelfilegt, hryllilegt og
ömurlegt að missa þig í fram-
haldinu. Ég öskraði af sársauka
að heyra þetta og ég hef grátið
þig hvern dag þegar þetta er rit-
að. Þetta er allt of snemmt og
þetta finnst mér ógeðslega
ósanngjarnt. Ég vann eitt sumar
í Samskipum og hittumst við
reglulega í mötuneytinu og á
planinu, það var svona stund þar
sem við stóðum saman, heilsuð-
umst, sögðum lítið, röltum í ró-
legheitum í smá stund og kvödd-
umst, tilveran með þér var
dýrmæt og stundirnar líka. Inga
Ósk sagði við mig að þú hefðir
verið montinn þegar ég var í
Samskipum á sama stað og þú, ég
var líka glaður að hafa þig ná-
lægt. Mér var boðið í pizzu heim
til ykkar en Inga sagði að þú
hefðir átt hugmyndina að bjóða
mér.
Ég er að skrifa þetta til þín og
ég get ekki hætt að gráta. Hug-
urinn minn er hjá Hönnu Rósu,
Ingu Ósk, Eydísi Evu og öllu
fólkinu okkar í stórfjölskyldunni
frá Dynjanda í Jökulfjörðum. Þú
varst demantur, frændi minn,
hvíldu í friði.
Páll Jens Reynisson.
Þeir eru búnir að vera skrítnir
dagarnir eftir að Einar Rósi
frændi okkar og vinur fór svona
óvænt og skyndilega.
Einar hefur verið hluti af lífi
okkar bræðra frá því að við fyrst
munum eftir okkur enda bjó
hann okkar uppvaxtarár í næsta
húsi við okkur ásamt foreldrum
sínum, Óskari föðurbróður okkar
og Ludý og yngri systkinum Al-
bert og Lydíu Ósk. Miklir kær-
leikar voru alla tíð á milli pabba
og Óskars og óhjákvæmilega
smituðust þeir kærleikar á milli
okkar bræðranna þriggja í Tún-
götunni og þeirra systkinanna
þriggja í Fjarðarstrætinu.
Þannig munum við samskiptin
öll okkar uppvaxtarár og allt
fram til þessa dags og aldrei hef-
ur borið neinn skugga þar á.
Einar og Jói bróðir okkar voru
fæddir á sama árinu og voru af-
skaplega miklir vinir og félagar
alla tíð allt þar til Jói lést árið
2010.
Fráfall hans var Einari sárt
eins og okkur öllum. Eftir að Jói
lést tók Einar við „ferðatösk-
unni“ sem þeir áttu saman og
höfðu keypt á áttunda áratugnum
og sá til þess að við sérstök tæki-
færi væri úr henni tekið og Jóa
minnst sérstaklega. Eftir fráfall
Einars munum við systkini Jóa
og Einars og afkomendur þeirra
sjá til þess að tekið verði áfram
úr töskunni og þeirra frænda og
vina minnst og minningu þeirra
viðhaldið.
Nú þegar komið er að leiðar-
lokum viljum við bræður þakka
þér samfylgdina við okkur bræð-
urna þrjá en sérstaklega viljum
við þakka þér fyrir ræktarsemina
sem þú sýndir foreldrum okkar
alla tíð og nú pabba síðustu ár
eftir að mamma féll frá. Milli
pabba og þín var alltaf sérstakt
samband og einlægur kærleikur
þar á milli.
Elsku Hanna Rósa, Inga Ósk,
Eydís Eva, Ludý, Albert, Lydía
Ósk, Jónas, Sissa, Kristján og
afabörn og systkinabörn Einars
Rósa. Söknuður ykkar er mikill
en minningin um góðan mann lif-
ir að eilífu.
Okkur langar að kveðja þig
með bæninni sem langa-
langamma okkar Jóhanna á
Dynjanda kenndi sínum börnum
og barnabörnum og feður okkar
lærðu síðar í sínum uppvexti á
Dynjanda
Jesú mér ljúfur lýsi
leið þú mig Jesú kær.
Jesú mér veginn vísi,
vertu mér Jesú nær.
Hafðu mig Jesú hýri
handanna á milli þín.
Jesú mér stjórni og stýri
stoð Jesú vertu mín.
(Höf. ókunnur)
Þínir frændur,
Brynjar og Elvar.
Í dag kveðjum við kæran sam-
starfsfélaga okkar, Einar Rós-
inkar.
Var okkur mjög brugðið við þá
fregn að hann hefði orðið bráð-
kvaddur því ekki áttum við von á
því þegar við kvöddum hann að
loknum vinnudegi 18. júlí síðast-
liðinn að við værum að kveðja
hann í síðasta sinn þar sem hann
var að fara í sumarfrí.
Einar Rósinkar var traustur
og áreiðanlegur samstarfsfélagi
sem ávallt var hægt að leita til og
verður hans sárt saknað. Einar
var ákveðinn maður og stóð á sín-
um skoðunum, dugnaður ein-
kenndi störf hans og átti hann
mjög gott með að hrífa aðra með
sér.
Hann sá til þess að hans tæki
væri snyrtilegt og í lagi. Í gegn-
um árin var hent gaman að því að
þegar Einar kom úr sumarfríi
rétti hann afleysingamanni sín-
um kústinn til að þrífa tækið því
hann bar mikla virðingu fyrir
sínu tæki.
Á skemmtunum starfsmanna
var ávallt stutt í glensið og gam-
anið hjá Einari, jafnframt átti
hann það til að sýna góða dans-
takta.
Við samstarfsfélagarnir vott-
um dætrum Einars sem og allri
fjölskyldu hans okkar dýpstu
samúð og við minnumst hans með
þakklæti fyrir góða viðkynningu.
Horfinn er vinur handan yfir sundin,
hryggðin er sár, svo jafnvel tárast
grundin.
Þá er svo gott, um ævi megum muna
milda og fagra geymum kynninguna.
Óvæntust ætíð kemur kveðjustundin
kærast í hjarta geymum minninguna.
(Vilhjálmur S.V. Sigurjónsson)
Fyrir hönd starfsmanna Hafn-
arsvæðis Samskipa,
Ómar Örn Karlsson.
Hjartkær föðursystir okkar, Lilja frænka,
RAGNHEIÐUR LILJA ÞÓRÐARDÓTTIR
LENNON,
lést á heimili sínu í Colorado Springs,
Colorado, Bandaríkjunum miðvikudaginn
15. ágúst, á 98. aldursári.
Bálför fór fram í Colorado Springs. Lilja verður jarðsett síðar við
hlið eiginmanns síns USAF Major Edward F. Lennon í
Þjóðargrafreitnum í Arlington í Virginíu .
Guðmundur Halldórsson
Þórólfur Halldórsson
Ágústa Halldórsdóttir
Auðbjörg Halldórsdóttir
Bróðir minn og mágur,
JÓHANNES BORGFJÖRÐ BIRGISSON,
Boggi,
rennismíðameistari og starfsmaður
Baader Ísland hf.,
Álfhólsvegi 129, Kópavogi,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn 26.
júlí. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Kristján Sigurður Birgisson og Ingibjörg Jónasdóttir
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Kristín IngólfsdóttirSverrir Einarsson Margrét Á. Guðjónsd. Hannes Ó. Sampsted
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir og
tengdasonur,
STEFÁN STEFÁNSSON,
rafeindavirki,
Hraunbæ 88,
lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi 8. ágúst.
Útför hans fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 23. ágúst
klukkan 13.
Stefanía L. Stefánsd. Waage Bjarki Stefánsson
Stefán Valur Stefánsson
Ásdís Halldóra L. Stefánsd.
Helena Ásdís Brynjólfsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
KRISTINN HALLDÓR JÓHANNSSON,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 14. ágúst.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 21. ágúst klukkan 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Heimahlynningu á Akureyri.
Margrét Alfreðsdóttir
Alfa Björk Kristinsdóttir Magnús Björnsson
Signý Þöll Kristinsdóttir Viktor Pálsson
Jóhann Kristinsson Hulda Þórhallsdóttir
og afabörn
Látin er
FRÚ ÁSTA STEINGRÍMSDÓTTIR
SANCHEZ,
San Antonio, Texas, USA.
Útför fór fram ytra 3. ágúst.
Aðstandendur