Morgunblaðið - 18.08.2018, Síða 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2018
Hildur Loftsdóttir
hilo@mbl.is
Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleik-
ari kemur fram á næstu stofu-
tónleikum Gljúfrasteins á morgun,
sunnudag, kl. 16 og flytur tvær af
sellósvítum Bachs. Svíturnar eru
meðal þekktustu einleiksverka tón-
listarsögunnar, en Johann Sebast-
ian Bach var einmitt í sérstöku
uppáhaldi hjá Halldóri Laxness.
Alltaf jafn skemmtilegt
Árið 2015 lék Bryndís Halla allar
sellósvíturnar sex á tónleikum í
Hörpu, hljóðritaði og gaf út á
plötu.
„Á morgun ætla ég að spila svít-
ur nr. 1 og 2, sú fyrri er í G-dúr og
sú seinni í d-moll. Ég valdi þær
m.a. vegna þess að þær passa inn í
tímarammann, en í staðinn fyrir að
spila bara eina langaði langaði mig
frekar að spila tvær ólíkar svítur,“
segir Bryndís Halla.
„Það er alltaf jafn skemmtilegt
að spila þessar svítur af því að í
rauninni er lítið skrifað, fyrir utan
nóturnar, þannig að það er frjálst
hvernig maður túlkar þetta að
mörgu leyti. Margir hafa ákveðnar
skoðanir á því hvernig eigi að
túlka þessi verk, en fyrir mér er
þetta opið og visst frelsi sem fylgir
því. Þótt maður spili þetta aftur og
aftur getur maður alltaf breytt
túkun sinni og spilað eitthvað
öðruvísi,“ segir Halla Bryndís, sem
finnst hún alltaf verða að endur-
hugsa þetta, annars verði hún
kannski leið á því.
Túlkun fyrir minna rými
„Ég hef ég líka hlustað á svo
marga spila þetta á svo ólíkan hátt
og mér finnst bara svo margt
koma til greina þannig að það er
um að gera að prófa eitthvað
nýtt.“
Seinast lék Bryndís Halla svít-
urnar í Hörpu fyrir fjölda manns
og nú leikur hún þær á stofu-
tónleikum fyrir mun færri áheyr-
endur.
„Ég hef einmitt verið að hugsa
hvernig ég myndi nálgast verkið á
annan hátt, af því að þetta er
svona nánara rými, og fyrir utan
það að þegar tónleikar eru í stærra
rými þarf tónlistin að berast bet-
ur.“
– Þú getur kannski sýnt fínlegri
hliðar á verkinu?
„Það er nefnilega aldrei að vita
nema ég geri það. Ég hef einmitt
verið að hugsa á þeim nótum.“
– Þurftirðu að æfa þig?
„Sko, þetta er alveg í puttunum
og kerfinu mínu, en maður æfir sig
samt alltaf, sérstaklega ef maður
ætlar að vera með nýja nálgun,“
segir Bryndís Halla Gylfadóttir
sellóleikari, sem hlakkar til að tak-
ast á við Bach-svíturnar á Glúfra-
steini á morgun.
Morgunblaðið/Ómar
Frelsi Bryndís Halla Gylfadóttir segir að sellóleikaranum sé frjálst að túlka svíturnar á margan hátt.
„Svíturnar eru í puttunum“
Bryndís Halla túlkar sellósvítur
Bachs á nýjan hátt á Gljúfrasteini
Hildur Loftsdóttir
hilo@mbl.is
Sálmafoss nefnist fjölbreytt tónlist-
ardagskrá sem verður í boði á
Menningarnótt í Hallgrímskirkju
og stendur frá kl. 15-21. Fram
koma kórar, einsöngvarar, orgel-
leikarar og djassarar. Á heila tím-
anum verða sálmar sungnir og allir
hvattir til að syngja með.
Áhersla á nýsköpun sálma
Hörður Áskelsson er listrænn
stjórnandi í Hallgrímskirkju og hef-
ur séð um Sálmafossinn frá upp-
hafi.
„Hugmyndin að Sálmafossinum
fæddist með þessa áherslu á sálm-
inn. Ég hef verið í sálmabókanefnd
lengi og við sáum vettvang til að
vekja athygli á sálminum og á
sálmasöng á annan hátt en annars,“
útskýrir Hörður.
„Aðalmálið var að stuðla að ný-
sköpun sálma, sem tengdist tón-
menntasjóði kirkjunnar, sem er
ætlað að stuðla að nýsköpun í
kirkjutónlist,
bæði texta og
tónlist. Það var
því upplagt að
panta sálma hjá
skáldum og tón-
skáldum til að
frumflytja á
Sálmafossi. Síðan
þá hafa annað
hvert ár verið
pantaðir sálmar. Stundum hafa
textahöfundar og tónskáld mæst í
sömu persónunni, eins og tónlist-
armaðurinn KK sem samdi bæði
texta og lag, sem fór inn í sálmabók
og er býsna mikið sungið í kirkjum.
Á næsta ári kemur út ný stór
sálmabók á vegum kirkjunnar og
þar verða mjög margir af þeim
sálmum sem hafa orðið til og frum-
fluttir á Menningarnótt, en þeir eru
komnir á fjórða tug.“
Þúsundir manns mæta
Í ár verða ekki frumfluttir nýir
sálmar en sálmahefti verður í kirkj-
unni með nokkrum sálmanna, sagt
verður frá þeim og þeir sungnir.
„Stundum hafa verið fleiri kórar
en í ár. Við erum með djassspuna
og raftónlistarspuna með orgelinu.
Á Sálmafossi getum við leyft okkur
að leika okkur svolítið með þetta
þema. Það eru ekki bara sálmar
sem eru sungnir, heldur líka kórlög
og orgeltónverk sem verða spiluð,“
segir Hörður.
„Saxófónleikarinn Sigurður
Flosason mun leika með Schola
Cantorum úrval af þeim 26 sálmum
sem hann og ljóðskáldið Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson sömdu saman
og kórinn gaf síðan út á plötu. Siggi
ætlar að spinna á saxófóninn og búa
til brýr á milli laganna; leikur að
sálmum.“
– Er Sálmafoss alltaf vel sóttur?
„Já, það eru þúsundir manns sem
koma í kirkjuna þennan dag, það er
streymi út og inn. Fáir sitja alla
klukkutímana samfellt en þó eru
dæmi um það,“ segir Hörður Ás-
kelsson, sem býður alla velkomna í
Hallgrímkirkju á Menningarnótt til
að syngja og hlusta.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kór og sax Schola Cantorum syngur úrval sálma eftir Sigurð Flosason saxófónleikara og ljóðskáldið Aðalstein
Ásberg Sigurðsson á tónleikum í Hallgrímskirkju dag. Sigurður byggir brýr milli sálmanna með saxófóninum.
Sálmar, kórverk, orgelverk og djass í Hallgrímskirkju
Hörður Áskelsson
„Á Sálmafossi leikum við
okkur svolítið með þemað“
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Laugardagur 18.8. Menningarnótt - fjölbreytt dagskrá. Opið til 22
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Heiðnar grafir í nýju ljósi
– sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð
Iben West og Else Ploug Isaksen – Augnhljóð í Myndasal
Nanna Bisp Büchert – Annarskonar fjölskyldumyndir á Vegg
Prýðileg reiðtygi í Bogasal
Leitin að klaustrunum í Horni
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Laugardagur 18.8. Menningarnótt - fjölbreytt dagskrá. Opið til 22
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið alla daga 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga 10-17
LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR – 17.7 - 16.12.2018
ÝMISSA KVIKINDA LÍKI - ÍSLENSK GRAFÍK – 11.5. - 23.9.2018
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign – 7.4.2017 - 31.12.2019
BÓKFELL Eftir Steinu í Vasulka-stofu – 18.5. – 31.12.2018
SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga frá kl. 10-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON
21.10.2017 - 7.10.2018
Opið alla daga frá kl. 13-17.
Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
- HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR
KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
15.5. - 15.9.2018
Opið alla daga frá kl. 13-17.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is