Morgunblaðið - 18.08.2018, Side 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2018
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég varð fyrst var við Bag-dad Brothers í gegnumsafnplötuna Drullumall 1
sem Listbandalagið post-dreifing
gaf út á Bandcamp-vefsíðunni í mars
á þessu ári. Hljóðheimurinn í lagi
þeirra þar, „Sjálfbær elskhugi“, er
kunnuglegur, hin svokallaða C86-
stefna í hávegum höfð, „indí“-rokk
frá níunda áratugnum sem hafði á
að skipa mektarsveitum á borð við
Pastels, Primal Scream (fyrri tíma)
og Wedding Present, dagskipunin
klingjandi melódískt gítarrokk;
næmt og viðkæmnislegt með vísun í
hetjur eins og Velvet Underground.
Sköpun umfram skotsilfur
Bagdad Brothers spila svona tónlist,
hvort sem þeir gera sér grein fyrir
vísuninni eða ekki.
Þessi stefna, C86, var áhrifarík
og allt fram á þennan dag hefur mel-
ódískt neðanjarðarbundið gítarrokk
verið nýtt reglubundið, eins og sann-
ast á vinum okkar. Ég náði að rekja
mig að heilli plötu með Bagdad
Brothers, jazz kids summer project
(með litlum stöfum að sjálfsögðu),
sem kom út síðasta haust. Níu laga
plata, einkar áhlýðileg og með
áreynslulausan sjarma. Minnir smá
á það sem hin stórgóða Nolo var að
gera, smá sýrukeimur af þessu einn-
ig. Fimm laga stuttskífa kom þá út
fyrir stuttu en á henni, sem ber tit-
ilinn JÆJA, sigla þeir félagar um
svipuð mið en meðlimir eru annars
þeir Sigurpáll Viggó Snorrason og
Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Bagdad Brothers eru hluti af
neðanjarðarsenu Reykjavíkur eins
og hún er í dag (þó að meðlimir komi
úr Kópavogi) en áðurnefnd post-
dreifing hefur verið dugleg við að
halda utan um starfsemina með
safnplötum, tónleikahaldi og allra
handa útgáfu. Hljómsveitir og tón-
dæmi má nálgast í gegnum Band-
camp t.d., en post-dreifing er þar
með sérstakt setur.
Meðlimir lýstu því í útvarps-
þættinum Lestinni (RÚV) að þeir
hefðu verið í hljómsveitinni Vára, en
orðið þreyttir á dimmunni þar yfir
og ákveðið að vinna markmiðs-
bundið með léttleika og kímnigáfu.
Íslenskir kjörgripir eins og Sumar á
Sýrlandi með Stuðmönnum hafi þá
m.a. verið áhrifavaldur (það heyrist)
en Einnig Mannakorn og Brunaliðið,
áttunda áratugar sveitir sem nú eru
orðnar móðins hjá „hipsterunum“. Í
viðtali við Grapevine nefndu þeir svo
Ísak Harðarson og Gyrði Elíasson
sem innblástur að textum.
Bæði í Lestinni og Grapevine
lögðu þeir Sigurpáll og Bjarni ríka
áherslu á þátt listamannabandalags-
ins post-dreifingar í þessu öllu sam-
an. Markaðs- og gróðahyggju er þar
alfarið neitað (það er von) og hug-
sjónirnar fallegar og ríkar. Sena sé í
kringum fyrirbærið, sem er opið öll-
um og án yfirstjórnar, en þeir fé-
lagar sýna talsvert innsæi með því
að gera sér grein fyrir elítuhætt-
unni, nokkuð sem þeir vilji forðast
fyrir alla muni. Hugmyndin sé, í sem
skemmstu máli, að búa til annars
konar og heilnæmara umhverfi en
bransinn á alla jafna að venjast. Út-
gangspunkturinn sé ekki sá að selja
eða troða sér inn á nýja markaði
heldur fyrst og síðast að stuðla að
umhverfi þar sem fólk geti skapað.
»Klingjandi mel-ódískt gítarrokk;
næmt og viðkvæmn-
islegt með vísun í hetjur
eins og Velvet Und-
erground. Bagdad Brot-
hers spila svona tónlist,
hvort sem þeir gera sér
grein fyrir vísuninni eða
ekki.
Bagdad Brothers Sigurpáll Viggó Snorrason og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Bagdad Brothers er
nýbylgjusveit sem ger-
ir út frá Reykjavík.
Tvær plötur liggja nú
eftir mannskapinn.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Tónlistarhátíðin New Music for
strings (NMFS) hefst á mánudags-
kvöld en þemað á hátíðinni er, eins
og nafnið gefur til kynna, ný tónlist
fyrir strengi.
Þrennir tón-
leikar verða
haldnir, ásamt
fjölda af fyrir-
lestrum, vinnu-
stofum og „mast-
erklössum“ sem
margir verða
opnir almenningi.
„Í grunninn er
þetta samstarfs-
verkefni milli tón-
skálda og
strengjaleikara. Þetta eru aðallega
ný verk,“ segir Þórunn Vala Valdi-
marsdóttir, einn af skipuleggjendum
NMFS, í samtali við Morgunblaðið.
Hátíðin er nú haldin í fyrsta skipti
á Íslandi en hún hefur verið haldin
beggja vegna Atlantshafsins, í
Bandaríkjunum og Danmörku, sl.
tvö ár.
Hátíðin var í síðustu viku haldin í
Árósum og Kaupmannahöfn og lýk-
ur á morgun. Því mun, að sögn Þór-
unnar, fjöldi hæfileikaríkra tónlist-
armanna koma beint frá Danmörku.
Í þessu samhengi nefnir Þórunn
sem dæmi Eugene Drucker, fyrsta
fiðluleikara Emerson-strengja-
kvartettsins, og hina kínversku Du
Yun.
„Drucker er að fara að halda
„masterklassa“ fyrir fiðlunemendur
í Listaháskólanum.
Svo er að koma mjög áhugaverð
kona, Du Yun, sem er svona múltí-
listamaður og Pulitzer-verðlauna-
hafi. Hún er með námskeið líka,“
segir Þórunn en Du Yun og Páll
Ragnar Pálsson tónskáld munu sam-
an halda þrjár vinnustofur í húsnæði
Listaháskólans og í Veröld – húsi
Vigdísar sem opnar eru almenningi.
Þá mun Judy Lockhead, prófessor
í tónlistarsögu við Stony Brook Uni-
versity, halda fyrirlestur í LHÍ á
miðvikudag.
Degi síðar heldur japanski fiðlu-
leikarinn og tónsmiðurinn Mari
Kimura fyrirlestur, einnig í LHÍ.
Frítt á lokatónleikana
„Fyrstu tónleikarnir verða haldn-
ir í Mengi á miðvikudagskvöld. Þeir
einblína á einleikstónlist fyrir
strengjahljóðfæri. Þar verða t.d.
Una Sveinbjarnardóttir, Mari Kim-
ura og Borgar Magnason með sín
eigin verk. Þar verður alveg glæný
tónlist.
Næstu tónleikar verða í Hörpu á
fimmtudagskvöld klukkan 18. Þeir
verða stærri en þar verðum við með
strengjasveit og einnig munu Guðný
Guðmundsdóttir og Eugene Druck-
er spila dúetta eftir Béla Bartok.
Einnig verða flutt verk eftir Önnu
Þorvaldsdóttur og Hafliða Hall-
grímsson. Svo verður fluttur nýr
strengjakvartett eftir Eugene
Drucker.“
Lokatónleikar hátíðarinnar verða
haldnir í Veröld – húsi Vigdísar á
föstudagskvöld.
„Þar verður m.a. flutt verk eftir
Pál Ragnar Pálsson,“ segir Þórunn.
Miða á tónleikana er hægt að
nálgast á heimasíðum Mengis og
Hörpu en ókeypis verður inn á loka-
tónleikana í Veröld.
Verðlaunafólk á
leið til landsins
Emerson-kvartettinn, sem Eug-
ene Drucker hefur verið hluti af frá
stofnun árið 1976, hefur unnið til níu
Grammy-verðlauna, þar af tvisvar
fyrir bestu klassísku plötuna. Sjö
sinnum hefur kvartettinn hlotið
Grammy-verðlaun fyrir besta flutn-
ing á kammertónlist.
Þá hlaut Du Yun Pulitzer-
verðlaunin í fyrra fyrir óperu sína,
Angel’s Bone, en Du Yun hefur einn-
ig verið þekkt fyrir raddlistir sínar
og sviðsframkomu.
Ný tónlist fyrir strengi mun
óma í Reykjavík í vikunni
Þrennir tónleikar og fjöldi fyrirlestra og „masterklassa“
Fiðla Eugene Drucker, fyrsti fiðlu-
leikari í Emerson-kvartettinum.
Verðlaunahafi Du Yun fékk í fyrra
Pulitzer-verðlaun fyrir óperu sína.
Þórunn Vala
Valdimarsdóttir
Tónskáld Páll Ragnar Pálsson
heldur þrjár vinnustofur í vikunni.
/////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////