Morgunblaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 48
LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 230. DAGUR ÁRSINS 2018
Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Sofandi í hengirúmum við …
2. Milla Ósk og Einar skrá sig í …
3. Júlíus Vífill ákærður
4. Þetta var bara brandari
Á Menningarnótt fá gestir Hörpu
tækifæri til að sjá brot úr dagskrá
áttunda starfsárs Hörpu sem var vígð
á Menningarnótt árið 2011. Hlusta
má á Sinfóníuhljómsveit Íslands,
kóra, djass og blús um allt hús, auk
þess sem heilmikið verður í boði fyrir
börnin, og allir geta mátað skóinn
hans Páls Óskars á Hörputorgi.
Opið hús í Hörpu
á Menningarnótt
Listamaðurinn
Egill Sæbjörnsson
mun í dag, laugar-
dag, á Menning-
arnótt, afhjúpa
nýtt listaverk og
kynna ilmvatn
sem hann hefur
sett á markað, í
Madison ilmhúsi,
Aðalstræti 9.
Egill afhjúpar lista-
verk og ilmvatn
Jim Black trommuleikari frá New
York, Óskar Guðjónsson saxófónleik-
ari og Skúli Sverrisson bassaleikari
leika saman lög og sjálfsprottin verk
í Mengi sunnudagkvöld kl. 21.
Óskar og Skúli hafa mikið leikið
saman og gefið út plötur. Black hefur
leikið með Skúla seinasta aldarfjórð-
unginn í New York og víðar, og Óskar
og Black eru í kvartettinum Mala-
mute. Hins vegar er þetta í fyrsta
sinn sem þeir leika allir þrír saman.
Tríó leikur saman í
Mengi í fyrsta sinn
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðvestan 8-13 m/s og áfram væta á NA-verðu landinu, en léttir
til þar seinni partinn. Hægari vindur og yfirleitt bjart veður í öðrum landshlutum.
Á sunnudag Hæg suðvestanátt, skýjað og stöku skúrir en þurrt A-lands. Hiti 10 til 15
stig.
Á mánudag Sunnan 3-10 og dálítil rigning en þurrt að kalla á NA- og A-landi. Hiti breytist
lítið.
Íslenska landsliðið í handknattleik
karla, skipað leikmönnum 18 ára og
yngri, leikur til úrslita við Svía á Evr-
ópumeistaramótinu sem lýkur í Kró-
atíu á morgun. Íslenska liðið vann lið
heimamanna örugglega, 30:26, í
undanúrslitum í gærkvöld þar sem
Haukur Þrastarson fór á kostum og
skoraði 10 mörk. Leikmenn segja ár-
angurinn ekki koma á óvart. »1
Ísland leikur til úrslita á
Evrópumótinu í Króatíu
„Þetta er geggjað spenn-
andi verkefni sem við erum
að fá. Fyrst við fengum eitt
af þessum toppliðum var
skemmtilegt að fá alvöru
leik á móti einu af bestu lið-
unum,“ sagði Sandra María
Jessen, leikmaður Þórs/KA,
sem dróst í gær á móti
þýska stórliðinu Wolfs-
burg í 32 liða úrslitum
í Meistaradeildinni í
knattspyrnu. »1
Skemmtilegt
að fá alvöru leik
„Það eru allt önnur gæði á körfubolt-
anum hér en heima. Þetta minnir mig
smá á þegar ég var í háskólabolt-
anum í Bandaríkjunum. Þá var haldið
svakalega vel utan um
allt. Það var allt annar
bragur á æfingum og
allt utanumhald er til
fyrirmyndar,“ segir
Kári Jónsson meðal
annars í samtali
við Morgun-
blaðið í dag um
fyrstu kynni sín
af körfubolta-
liði Barcelona.
»4
Allt annar bragur á
æfingum en hér heima
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Gerður Steinþórsdóttir, fyrrverandi
borgarfulltrúi og ævintýramanneskja
með meiru, lauk nýlega við allar
Landvættaþrautirnar svokölluðu. Að
hennar sögn gekk undirbúningur fyr-
ir keppnina vel og var hún sátt við
árangurinn. „Ég er allavega ekkert
þreytt eftir þetta,“ segir Gerður og
hlær. Hún var hluti af stórum hópi
sem æfði á vegum Ferðafélags Ís-
lands fyrir þrautirnar, en um níu
mánaða undirbúningsferli er að
ræða.
„Ég hef þekkt ýmsa sem hafa verið
í þessu. Svo var einhver sem benti
mér á þetta, að ég væri líkleg til að
geta þetta, svo ég sló til. Það er líka
voða gaman að prófa eitthvað nýtt,“
segir Gerður, en hún býr að mikilli
reynslu af útivist og hefur t.a.m.
gengið á alla tinda úr bókinni Íslensk
fjöll, gönguleiðir á 151 tind.
80 manna æfingahópur
Þrátt fyrir göngureynsluna var
Landvættaverkefnið ærin áskorun að
sögn Gerðar. „Ég hafði auðvitað hjól-
að á götuhjóli en að vera á fjallahjóli
er allt annað,“ segir hún hlæjandi.
„Af þessum fjórum þrautum hef ég
mesta reynslu af gönguskíðum.
Fossavatnsgangan er svona það sem
ég þekkti best af þessu,“ segir Gerð-
ur, en hún hefur einnig tekið þrisvar
þátt í Vasa-göngunni í Svíþjóð, einu
sinni hálfri og tvisvar sinnum fullri
göngu, sem er 90 kílómetrar.
Utanumhald æfinganna var í hönd-
um hjónanna Róberts Marshall og
Brynhildar Ólafsdóttur, en þau
bjuggu til dagskrána fyrir hópinn um
hvernig skyldi æfa yfir vikuna. Auk
þess hittist hópurinn einu sinni í viku
og æfði saman. Segir Gerður hópinn
upphaflega hafa átt að vera fjörutíu
manns en aðsóknin hafi verið það
mikil að fjöldinn hafi endað í yfir átta-
tíu. „Við tókum oftast eina helgi í
hverja þraut. Fórum t.d. á yndis-
legum degi á skíði inn í Landmanna-
laugar og á Snæfellsnes þar sem æft
var í bland sund og hlaup.“
Gerður er 74 ára og var að eigin
sögn langsamlega elst í Landvætta-
hópnum. „Það voru nokkrir þarna
sem voru um sextugt en flestir í
kringum fimmtugt. Annars var ég
ekki að spekúlera mikið í þessum
aldri.“ Hún hefur ekki ákveðið hvort
hún fer aftur í Landvættirnar en seg-
ist þó búin að skrá sig aftur í 50 kíló-
metra í Fossavatnsgöngunni á Ísa-
firði. Hún telur mikilvægt að huga að
heilsunni og finna sér hreyfingu við
hæfi. „Ég veit þó hreinlega ekki hver
er lykillinn að þessu hjá mér. Ég
borða hollt og hreyfi mig mikið, svo
hef ég bara gaman af lífinu.“
„Hef bara gaman af lífinu“
Kláraði allar
Landvættaþraut-
irnar 74 ára
Ljósmynd/Gerður Steinþórsdóttir
Gleði Gerður komin í mark eftir 50 kílómetra Fossavatnsgöngu. Gangan er fyrsta af fjórum Landvættaþrautum.
Landvættaþrautirnar eru fjórar
og þarf að ljúka þeim öllum á
innan við 12 mánuðum til að
bera heitið Landvættur. Sú
fyrsta er Fossavatnsgangan, sem
er 50 km skíðaganga á Ísafirði.
Önnur er Bláalónsþrautin, sem
er 60 km fjallahjólskeppni frá
Hafnarfirði í Bláa lónið. Þriðja er
Urriðavatnssundið, en þar synda
keppendur 2,5 km útisund í Urr-
iðavatni, skammt frá Fellabæ. Í
síðustu þrautinni, Jökulsárhlaup-
inu, er hlaupið 32,7 km frá
Dettifossi til Ásbyrgis.
Samkvæmt viðmiðum Land-
vættahóps Ferðafélags Íslands
er miðað við að fólk geti að
minnsta kosti skíðað og hlaupið
10 km á undir 1 1/2 klst., hjólað
10 km á undir 40 mínútum og
synt 1 km á undir 50 mínútum
til að hafa burði í að taka þátt í
þrautunum.
Landvættaþrautirnar fjórar
ÓLÍKAR ÞRAUTIR Í HVERJUM LANDSFJÓRÐUNGI