Breiðfirðingur - 01.04.1975, Blaðsíða 27
BREIÐFIRÐINGUR
25
fátækum frumbýlingum. Fátæk hjón voru þar í hús-
mennsku, sem urðu að láta börnin frá sér og fluttust út
í Flatey á Brei,ifirði með eitthvað af börnunum. Yngsta
barnið árs gömul telpa, varð eftir hjá Jófríði og manni
hennar og dvaldi hún hjá þeim til fullorðins ára. Ekki er
mér kunnugt um hvers vegna þau urðu að fara frá Frakka-
nesi, Jófríður og Alexander, en eftir það voru þau á sí-
felldum hrakningi, annað ‘hvort við búhokur eða í hús-
mennsku víða um Ströndina.
Jófríður og Alexander eignuðust 3 börn, 2 áður talin
og síðast dreng, sem dó í fæðingu. Að lokum lá leið þeirra
út í Breiðafjarðareyjar, Rauðseyjar. Þar bjuggu þá myndar-
hjónin Gísli Bergsveinsson og Magðalena Kristjánsdóttir.
Alexander var þá að bila á heilsu og gat lítið unnið og var
hann því mest á vegum konu sinnar. Þessi heiðurshjón
fluttu úr Rauðseyjum í Akureyjar á Breiðafirði og Jó-
fríður og Alexander með þeim.
Jófríður, sú mikla dugnaðarkona, hefur víst ekki sparað
að vinna þessum góðu hjónum allt það gagn sem hún ork-
aði, bæði úti og inni, enda minntist hún þeirra ávallt með
virðingu og þakklæti. Ur Akureyjum lá leiðin til lands
aftur, að Ytri-Fagradal til Lárusar sonar þeirra, sem þá
var að byrja húskap (vorið 1926), þá sem leiguliði, seinna
keypti hann alla jörðina.
Hér endar hraknings- og baráttusaga þeirra hjóna, Jó-
fríðar og Alexanders, þau dóu bæði hjá Lárusi svni sín-
um, hann 67 ára, hún 98 ára. Ég sá aldrei Alexander,
hann var þá dáinn þegar ég kom að Heinabergi, mér hef-
ur verið sagt að hann hafi verið huggulegur maður ungur
og gleðimaður.