Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1981, Page 10

Breiðfirðingur - 01.04.1981, Page 10
8 BREIÐFIRÐINGUR í Tóftarholt (sem stundum er kallað Lepparúst) og þaðan beint uppá fellið, en þar er merkjavarða, sem er jafnframt landamerki milli Þórólfsstaða og Erpsstaða. Nesin niður með Tunguá voru löngum talin bestu engjar á Sauðafelli. Til forna er getið um þrjár hjáleigur í heimalandi: Gissurshús, Gróugerði (eða Grófargerði) og Brúðgumastaði og ofan við Fellið voru Glæsisvellir í byggð 1911-1937. Þeir draga nafn af Glæsiskeldu sem er þar skammt frá og þjóðsagnir eru til um. Sauðafellskirkja var bændaeign eins og fyrr segir. Þangað átti kirkjusókn framsveitin öll frá Hamraendum og bæirnir fyrir ofan Fellið sunnan Tunguár, en þegar Kvennabrekkukirkja var lögð niður eftir miðja 19. öld bættust bæirnir frá Harrastöðum að Kolsstöðum við Sauðafellssókn. Eftir sóknarlýsingu frá 1855 eru eignir Sauðafellskirkju taldar þessar: Hlíðartún í Sökkólfsdal, Kross í Haukadal og Hamrar í Laxárdal hver á 16 hndr. Afrétt á öllum Sanddal og 5 hndr. í Saurbæjarfjöru. í fríðu átti kirkjan 24 málnytu kúgildi. Þegar Björn sýslumaður kaupir Sauðafell mun ekki hafa verið annað eftir af þessum eignum en Hlíðartún ásamt Sellandinu og afréttarlandið á Sanddal. Afréttarlandið á Sanddal ásamt Sanddalstungu selur Björn Ólafí hreppstjóra Finnssyni á Fellsenda 1898 og hefur þaðfylgt Fellsenda síðan. Hlíðartún selur Björn sýslumaður 1911 Oddi Arngrímssyni, sem eitt sinn bjó á Hömrum í Haukadal. Fyrr á öldum hefur verið haft í seli frá Sauðafelli á Sanddal, og benda örnefnin Sauðfellingamúli og Sauðafellingaseltilþess. A síðari tímum höfðu Sauðafellsbændur í seli á Suðurárdal og sjást selrústir þeirra þar ennþá greinilega. Þetta land á Suðurárdal fylgir Sauðafelli enn og er oftast nefnt Sellandið, það nær frá Kringlugili og suður á háfjallið eftir því sem vötnum hallar. Heitir þar Merkjahryggur og um hann eru sýslumörk Mýra- og Dalasýslu. I Sturlungu segir, þegar sagt er

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.