Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1981, Page 12

Breiðfirðingur - 01.04.1981, Page 12
10 BREIÐFIRÐINGUR árum hefur verið staðið svo myndarlega að umbótum að vel hæfir þessu forna höfuðbóli. Utihús hafa verið byggð að nýju og íbúðarhús hefur verið reist eftir kröfum tímans. Allt bendir því til að Sauðafell eigi bjarta framtíð sem fyrirmyndarbýli, ef fólkið sem þar vex upp trúir á mátt moldarinnar og heldur tryggð við staðinn. Mun þá höfuðbólið halda sinni reisn, ekki í skjóli auðs og valda eins og til forna, heldur í manngöfgi og mildi, þar sem öllum er veitt hjálp og góð ráð í önn hins daglega lífs. Úr Hvammsannál anno 1737 ..Harðnaði enn meir með jólum, mest með kyndilmessu, svo víðatók fyrir jarðir, samt mislagðist mjög veturinn. Þágekk og enn blinda á fénu sumstaðar fyrir austan. Þann 16. og 17. Februarii var stórmikið kafald, svoþáurðuúti 11 menn í Vöðla- og Þingeyjarþingi og meir en 16 hundruð fjár fórst þá þar.I sumarmálavikunni kom og stórhríð í hverri mest fórst af peningi manna, hestum og fé, svo sumir misstu allt sitt, sem langt er að telja. - í Hvammssveit fórst 5 hundruð fjár samantalið og 33 hestar, líkt því varð og fellir á Fellsströnd og Skarðsströnd út undir Klofning. Margt af sauðfé hrakti í sjó, en sumt hordó, en skárra var annarsstaðar í Dalasýslu.

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.