Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1981, Side 42

Breiðfirðingur - 01.04.1981, Side 42
40 BREIÐFIRÐINGUR lesandi, mér var bent á bækurnar á hillunni og sagt að ég ætti að lesa þetta sjálf, en ekki að vera að láta segja mér sögurnar. En bækurnar voru svo stórar og þykkar, mér fannst ómögulegt að ég gæti nokkurn tíma lesið þær. Þennan vetur var á ferð og gisti hjá okkur bóksali, sem kallaður var Tómas spólurokkur. Hann tók úr tösku sinni mynda- og sögubók, sem hét Samtíningur; hann gaf mér hana og sagði að ég ætti að vera orðin lesandi, þegar hann kæmi næst. (Hann kom nú aldrei aftur). Þessi Tómas var raddmaður mikill og þetta kvöld sem hann gisti hjá okkur, kvað hann alla Kjartansrímu, eftir Símon Dalaskáld. Mikið fannst mér það gaman. Annars var ekki mikið um rímnakveðskap hjá okkur, ég held að faðir minn hafí ekki verið mikið hrifinn af honum, enda var tíminn svo naumur hjá honum, hann varð líka að nota kvöldin til að kenna börnum og unglingum, sem voru hjá honum. Svo voru kvöldvökurnar ekki svo langar hjá okkur, því að kl. 10 var lesinn húslesturinn og að því loknu fór fólk að hátta. Sumir lásu við týruljós í rúmum sínum. Faðir minn hafði týru á koffortinu við rúmið sitt og las fram á nótt. Húslesturinn var lesinn á hverju kvöldi frá veturnóttum til páska. Fyrst til nýjuviknaföstu var lesið á kvöldin í hugvekjum og sunginn sálmur úr sálmabókinni. Svo þegar níuviknafastan byrjaði, var lesið í föstuhugvekjum Péturs biskups og sunginn einn passíusálmur á kvöldi. Faðir minn færði koffortið sitt nær lampaljósinu og las og söng, allir tóku undir sönginn sem gátu, margar konurnar þurftu ekki að horfa á bók. Eftir lesturinn bændu sig allir og þökkuðu svo fyrir lesturinn með handabandi. Þegar ég var á 9. árinu, var á heimilinu húskona með dóttur sína, sem var jafngömul mér; þá var faðir minn nokkrar vikur að kenna á bæ í annarri sveit. Þá lásum við Sella húsiesturinn sitt kvöldið hvor. Vissara fannst okkur að hafa faðirvorið skrifað. Um þetta leyti fór ég að læra biblíusögurnar, svo gaf faðir minn

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.