Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1981, Side 50

Breiðfirðingur - 01.04.1981, Side 50
Örnefni í Snókdals sókn, eptir Jón Jónsson, bónda í Hlíð í Hörðadal'. (Ur safni til sögu Islands) I. Ornefni úr fornsögum. Landnámabók, Laxdælasögu, Eyrbyggju, Hænsa-Þóris sögu, Bjarnar sögu Hítdælakappa og Sturlúngu. Dúnkaðarstaðir: Bær þessi er einn af þeim sex bæjum, sem eru á milli Skraumuhlaupsár og Skógarstrandar, og kallaðir eru útbæir. Þessi jörð heitir nú Dúnkr, og hefir lengi haft það nafn. Alþýðu saga er: að bær þessi dragi nafn af því: að Gauti nokkur hafi byggt Gautastaði í landnámstíð, og hafi hann haft þar rauðablástr og smiðju sína, og Gauti lúð járnið þar, sem skömmu síðar hafi verið bygðr bærinn, og látinn heita á Dúnki. Enn í dag er sýndr reksteinn Gauta í túninu á Dúnki, skammt fyrir ofan heygarðinn, hann er að mestu sokkinn í jörð, og eru tvær holur ofan í hann af mönnum gjörðar, önnur stærri en önnur minni: sú hin stærri eptir steðja, en hin eptir saumhögg. Aðrir ætla, að bærinn dragi nafn af ánni, sem fellr skammt fyrir vestan bæinn og hét að fornu Dúnká, segja menn hún hafi svo verið kölluð af því, að í henni er hár foss, sem mikill niðr heyrist í; nú er á þessi almennt kölluð Bakka-á, af því bærinn Dúnkárbakki stendr á árbakkanum vestan til við ána. Jörð þessi var fyrrum talin XL hundruð að dýrleika, og hefir það verið með

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.